Fréttablaðið - 14.07.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 14.07.2010, Blaðsíða 4
4 14. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 31° 32° 29° 19° 30° 26° 26° 23° 24° 20° 25° 28° 36° 20° 27° 18° 26° Á MORGUN Hægviðri. FIMMTUDAGUR Víðast hæg NA-átt, en stífari suðaustast. 10 14 13 13 13 13 12 12 10 14 11 18 6 3 2 5 3 4 4 4 3 2 4 15 14 13 12 12 13 15 14 12 10 VÍÐAST GÓÐVIÐRI Veðurspá næstu daga er aldeilis góð og lítur út fyrir góð- viðri fram yfi r helgi um nánast allt land. Búast má við heldur vaxandi NA- átt suðaustanlands á fi mmtudag og örlítið stífari vindi á föstudag. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður VIÐSKIPTI Vilhjálmur H. Vilhjálms- son, fyrrverandi borgarlögmaður, er nýr stjórnarformaður Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflug- vallar ehf. Vilhjálmur var kjörinn til starfsins á aðalfundi félagsins nýverið. Kadeco var stofnað árið 2006 með það að markmiði að leiða þróun og umbreytingu á fyrrum varnarsvæðinu á Keflavíkurflug- velli til borgaralegra nota, að því er segir á heimasíðu félagsins. Á fundinum kom fram að hagn- aður félagsins árið 2009 var 170,5 milljónir íslenskra króna. - mþl Aðalfundur Kadeco haldinn: Nýr stjórnarfor- maður Kadeco LÖGREGLUMÁL Ökumaður bíls sem ók yfir á rangan vegarhelming á Hafnarfjarðarvegi norðan Arn- arnesbrúar 18. desember 2009 og lenti framan á öðrum bíl var með- vitundarlaus af völdum hjarta- áfalls þegar áreksturinn varð. Ökumenn beggja bílanna og far- þegi í bílnum sem ekið var á létust í slysinu. Lögregla segir rannsókn ekki gefa neinar vísbendingar um hraðakstur. Í krufningarskýrslu kemur fram að ökumaðurinn hafi verið meðvitundarlaus þegar árekstur varð. Hann hafði fengið hjartaáfall og var úrskurðaður lát- inn á slysstað, segir í tilkynningu frá lögreglunni. - gar Banaslys á Hafnarfjarðarvegi: Hafði fengið hjartaáfall áður ATVINNUMÁL Atvinnuleysi mældist 7,6 prósent í júní og minnkar um 6,4 prósent frá því í maí. Fækkun á atvinnuleysisskrá er hlutfallslega meiri á landsbyggðinni en á höfuð- borgarsvæðinu og er atvinnuleysi nú 8,5 prósent á höfuðborgarsvæð- inu en 5,9 prósent á landsbyggð- inni. Mest er atvinnuleysi á Suð- urnesjum, eða tæp 12 prósent, og minnst á Norðurlandi vestra, 2,6 prósent. Áætlað er að atvinnuleysi minnki í júlí og verði í kringum 7,5 pró- sent. - sv Skýrsla frá Vinnumálastofnun: Ástandið verst á Suðurnesjum VIÐSKIPTI Veltan á íslenska hluta- bréfamarkaðinum var um 151 milljón króna í síðustu viku, sem er um helmingi minni velta en meðaltal á viku í síðasta mánuði. Ekki er óeðlilegt að markaðurinn róist í byrjun júlí þegar fjárfest- ar fara í sumarfrí, samkvæmt samantekt Íslenskra verðbréfa. Langmest velta var með bréf Marels, um 110 milljónir af 151 milljón króna veltu. Bréf Marels hækkuðu um 2,15 prósent. - bj Ró yfir hlutabréfamarkaði: Vikuvelta helm- ingi minni Gamli Iðnskólinn til sölu Húsið að Þingvallastræti 23 á Akureyri hefur verið auglýst til sölu. Í húsinu var gamli Iðnskólinn á Akureyri lengi til húsa. Húsið hefur undanfarin ár verið nýtt af Háskólanum á Akureyri sem skrifstofu- og kennsluhúsnæði. AKUREYRI FÉLAGSMÁL Barnaverndaryfirvöld fóru að barnaverndar- og stjórn- sýslulögum við rannsókn á málefn- um Götusmiðjunnar, samkvæmt niðurstöðum félagsmálaráðuneyt- isins. Aðstæður barna sem voru í Götu- smiðjunni voru skoðaðar 25. júní. Í framhaldinu voru börnin færð þaðan seinna sama dag. Guðmundur Týr Þórarinsson, forstöðumaður Götu- smiðjunnar, gerði athugasemdir við ráðuneytið. Í niðurstöðu ráðuneytis- ins kemur fram að mat barnavernd- aryfirvalda um að flytja börnin hafi verið í samræmi við frumskyldur þeirra. Beita skuli þeim ráðstöfun- um sem séu barni fyrir bestu en í því felist að börnin skuli ávallt njóta vafans. Guðmundur sendi frá sér yfir- lýsingu í gær þar sem hann segir Barnaverndarstofu hafa gert þá kröfu að hann ræði málið ekki efnis- lega við fjölmiðla á meðan viðræður standi yfir milli þeirra. Hann segir ráðuneytið ekki hafa fjallað um ágreining hans við Barnaverndar- stofu og á því og rökstuðningi ráðu- neytisins sjáist að verið sé að reyna að breiða yfir mistök barnaverndar- yfirvalda. - þeb Mummi í Götusmiðjunni tjáir sig ekki um ágreining við Barnaverndarstofu: Yfirvöld fóru að settum reglum MUMMI Í GÖTUSMIÐJUNNI Segir ekki fjallað um ágreininginn í úrskurðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EFNAHAGSMÁL Ólíklegt er að þeir viðskiptavinir eignaleigufyrir- tækisins Avant sem hafa greitt of mikið af bílalánum sínum fái endurgreitt nú þegar óskað hefur verið eftir því að Fjármálaeftir- litið skipi bráðabirgðastjórn yfir félagið. Þetta segir Heimir Har- aldsson, stjórnarformaður móður- félagsins Askar Capital. Stjórn Askar Capital samþykkti í gær að óska eftir slitameðferð á félaginu. Samhliða því kom ósk stjórnar Avant um að Fjármála- eftirlitið skipi bráðabirgðastjórn yfir félagið. Í fréttatilkynningu frá Askar Capital kemur fram að nýlegur dómur Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar lána hafi mikil áhrif á efnahag fyrir- tækjanna. Eignir Avant hafi verið metnar á um 23 milljarða króna 31. maí síðastliðinn en eftir dóm- inn séu þær metnar á bilinu níu til þrettán milljarða króna eftir því hvaða vaxtaviðmiðun er notuð. Enn fremur segir í fréttatil- kynningunni að vegna óvissu um vaxtaútreikningana hafi kröfu- hafar ekki komist að niðurstöðu um fjárhagslega endurskipulagn- ingu Avant. Þar sem endurskipu- lagningin er óvissu háð og eigin- fjárstaða félagsins neikvæð um að lágmarki tíu milljarða telur stjórn félagsins sig ekki hafa umboð til áframhaldandi setu. Staða Askar Capital er mjög háð afkomu Avant. Eiginfjár- staða Askar var metin jákvæð um 3,5 milljarða hinn 31. maí síð- astliðinn en í kjölfar dómsins er hún talin neikvæð um 3,5 millj- arða þar sem sjö milljarða króna krafa á Avant er talin töpuð. Þar sem ekki liggur fyrir samkomu- lag við kröfuhafa um endurskipu- lagningu hefur stjórn Askar því samþykkt að óska eftir slitameð- ferð á félaginu. FME sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi um að bráðabirgða- stjórnin hefði verið skipuð. Í henni sitja Friðjón Örn Friðjóns- son hæstaréttarlögmaður, sem verður formaður, Hulda Rós Rúr- iksdóttir hæstaréttarlögmaður og Ljósbrá H. Baldursdóttir, löggilt- ur endurskoðandi. Starfsmenn Askar Capital eru 23 og missa nú allir vinnuna. Að sögn Benedikts Árnasonar for- stjóra er hins vegar líklegt að ein- hverjir starfsmannanna taki sig saman um stofnun fyrirtækis sem muni halda áfram að þjónusta ein- hverja viðskiptavini bankans, sem eru á fjórða tug fjárfesta. magnusl@frettbladid.is Ofgreidd lán líklega ekki endurgreidd Óvissa um gengislán varð Avant að falli sem dregur Askar Capital niður með sér. Viðskiptavinir sem hafa ofgreitt gengislán fá líklega ekki endurgreitt. HEIMASÍÐA AVANT Vefsíða Avant var enn opin í gærkvöldi. Eignir fyrirtækisins voru metnar á 23 milljarða króna í maí en eftir dóm Hæstaréttar um gengislán voru þær metnar á 9 til 13 milljarða. IÐNAÐUR Björk Guðmundsdóttir tónlistarkona, Oddný Eir Ævars- dóttir rithöfundur og Jón Þóris- son arkitekt hafa sent umboðs- manni Alþingis ábendingu um að taka Magma-málið til gagngerrar endurskoðunar. Þau segja málið gríðar- legt hagsmunamál fyrir allan almenning í landinu. Mikilvægt sé að umboðsmaður taki það til skoðunar svo hægt sé að vita hvort hagsmuna almennings hafi verið gætt á fullnægjandi hátt, og hvort málsmeðferð hafi samræmst lögum og vönduðum stjórnsýsluháttum. - þeb Umboðsmaður endurskoði: Björk vill láta skoða Magma BJÖRK Vill að Magma-málið verði tekið til endurskoðunar. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is GENGIÐ 13.07.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 201,7855 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,75 125,35 188,16 189,08 156,91 157,79 21,043 21,167 19,695 19,811 16,658 16,756 1,4105 1,4187 186,06 187,16 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.