Fréttablaðið - 14.07.2010, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 14.07.2010, Blaðsíða 26
22 14. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is Pepsi-deild kvenna: Lið fyrri umferðar: Sandra Sigurðardóttir Stjarnan Alicia Wilson KR Lidia Stjokanovic Fylkir Málfríður Erna Sigurðardóttir Valur Pála Marie Einarsdóttir Valur Dóra María Lárusdóttir Valur Sara Björk Gunnarsdótir Breiðablik Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir Stjarnan Mateja Zver Þór/KA Dagný Brynjarsdóttir Valur Katie McCoy Stjarnan FÓTBOLTI Stemningin var rafmögn- uð í höfuðstöðvum KSÍ í gær þegar dregið var í undanúrslit VISA-bik- ars karla. Í pottinum voru þrjú úrvalsdeildarlið og svo 2. deild- arlið Víkings frá Ólafsvík sem sló Stjörnuna út úr keppni á dramat- ískan hátt á mánudag. Ólafsvíkingum varð ekki að ósk sinni að fá heimaleik og þeirra bíður afar erfitt verkefni því þeir mæta Íslandsmeisturum FH í Kaplakrika. „Það er ekki á allt kosið í þess- um fótbolta. Fyrst við fengum ekki heimaleikinn var ekki verra að fá að mæta meisturunum á þeirra heimavelli,“ sagði Einar Hjörleifs- son, markvörður liðsins og hetjan frá því í vítaspyrnukeppninni við Stjörnuna. „Þetta er rosalega spennandi og við bíðum bara spenntir eftir því að komast í Krikann til að sýna virkilega hvað í okkur býr. Við spilum alltaf okkar leik og ég veit að þetta verður erfitt. Við erum samt með gott fótboltalið og strák- arnir í góðu formi. Við munum gera okkar besta og svo kemur í ljós hverju það skilar okkur,“ sagði Einar en hann segir Víkinga ekki óttast Íslandsmeistarana. „Það er mikið sjálfstraust í okkar liði. Við munum mæta þeim og taka á þeim. Við ætlum ekki að bjóða þeim að gjöra svo vel og fara heim. Við ætlum að mæta óhrædd- ir og vel stemmdir.“ Í hinni undanúrslitarimmunni mætast KR og Fram á KR-velli. Þetta er annað árið í röð sem þessi lið mætast í undanúrslitum. Fram vann í fyrra, 1-0, og KR á því harma að hefna. „Það er alltaf gott að fá heima- leik í þessari stöðu. Við töpuðum fyrir Fram í fyrra þannig að við þurfum að bæta fyrir það. Framar- ar eru geysilega erfiðir mótherjar og þetta verður hörkuleikur,“ sagði Logi Ólafsson, þjálfari KR. Margir knattspyrnuáhugamenn sjá í hill- ingum úrslitaleik á milli FH og KR sem yrði eflaust skemmtilegt fyrir Loga enda fyrrum þjálfari FH. „Ég er ekki farinn að horfa svo langt. Við viljum komast út úr leiknum gegn Fram og svo sjáum við hvað setur. Auðvitað væri gaman að mæta FH en ég er ekk- ert að hugsa um slíka hluti. Það er bara stórhættulegt,“ sagði Logi léttur sem fyrr. Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, var svekktur að hafa ekki fengið heimaleik. „Ég hefði viljað spila heima en það er ekki hægt að fá allt í lífinu,“ sagði Þorvaldur sem er þar með líklega einn fárra sem er svekktur yfir því að und- anúrslitaleikirnir fari ekki lengur fram á Laugardalsvelli. „Það var mikið vælt um að við ættum engan heimavöll og svo þegar var farið að spila í Laugar- dalnum var allt í einu talað um að þetta væri okkar heimavöllur. Ég er þeirrar skoðunar að hafa hlut- lausan völl í undanúrslitum,” bætti Þorvaldur Örlygsson við. henry@frettabladid.is Munum taka á FH-ingum 2. deildarlið Víkings frá Ólafsvík fær það verðuga verkefni að sækja Íslandsmeistara FH heim í Kaplakrikann í undanúrslitum VISA-bikars karla. KR fékk heimaleik gegn Fram þar sem Vesturbæingar eiga harma að hefna. Á LEIÐ Í KRIKANN Ólsararnir Brynjar Kristmundsson og Einar Hjörleifsson voru mætt- ir til þess að fylgjast með drættinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Tvö efstu liðin í Pepsi- deild kvenna, Valur og Þór/KA, munu mætast í undanúrslitum VISA-bikarsins í ár. Í hinum leiknum tekur 1. deildarlið ÍBV á móti Stjörnunni. „Við erum búnar að fara erfiða leið í keppninni og í raun skiptir ekki máli hverjum maður mætir. Ef maður ætlar að vinna þessa keppni þá þarf að vinna öll liðin á leiðinni,“ sagði Katrín Jónsdótt- ir, fyrirliði Vals, en hún var samt ekkert allt of kát eftir að hún dró norðanliðið sem mótherja. „Við fáum heimaleik og ég er ánægð með það. Þór/KA er með mjög gott lið og leikirnir á milli okkar eru alltaf jafnir. Þetta verður því svakaleikur og við þurfum að eiga toppleik til þess að vinna þær.“ - hbg VISA-bikarkeppni kvenna: Stórleikur að Hlíðarenda ÍBV FÆR HEIMALEIK Guðrún Inga Sívertsen, gjaldkeri KSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Í gær var kunngjört hvaða leikmenn hefðu skarað fram úr í fyrri hluta Pepsi-deildar kvenna. Þjálfarar liðanna í deildinni í samstarfi við Rúv stóðu að kjörinu. Mateja Zver í Þór/KA var kosinn besti leikmaðurinn en Freyr Alexandersson, þjálfari Vals, var valinn besti þjálfarinn. Dagný Brynjarsdóttir úr Val var síðan valin efnilegasti leikmaðurinn í fyrri umferðinni. „Það er alltaf gaman að fá hrós fyrir ágætis störf,“ sagði brosmildur Freyr eftir verðlaunaafhendinguna. „Ég get ekki annað en verið sáttur við stöðuna í deildinni en get samt viðurkennt að mér finnst við hafa tapað stigum gegn Stjörnunni og KR. Það er kannski frekja að biðja um heilt hús.“ Valskonur hafa fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar en Þór/KA kemur þar á eftir, einum fjórum stigum á eftir Val. „Við erum með feykilega gott lið og góðan hóp en það má lítið út af bera. Við vorum að missa Dagnýju og Málfríði Ernu Sigurðardóttir í meiðsli og þær koma ekki aftur fyrr en líklega seinni hlutann í ágúst. Þá þurfa aðrir leikmenn að stíga upp og þeir hafa verið að gera það sem er ánægjulegt. Ég býst við sterkara liði frá Þór/KA í seinni umferðinni en það hefur venjulega verið þannig hjá þeim. Þær eru með frábært ellefu manna lið og stórkostlega leikmenn eins og Zver og Rakel Hönnudóttur. Þær munu veita okkur mikla samkeppni,“ sagði Freyr. Dagný var mætt á hækjum til þess að taka við verðlaunum sínum en bar sig samt vel. „Það er mjög gaman að fá þessa viðurkenningu en verra að vera meidd. Er með sprungu í ristinni og hef spilað þannig í allt sumar. Ég var heppin að ristin brotnaði ekki.“ PEPSI-DEILD KVENNA: VALSARAR ÁBERANDI Í UPPGJÖRI FYRRI UMFERÐAR ÍSLANDSMÓTSINS Þór/KA mun veita okkur mikla samkeppni Frá 1957 Elsta starfandi fasteignasala landsins S í m i : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k • w w w . e i g n a m i d l u n . i s Reykjavík Sverrir Kristinssonlögg. fasteignasali Glæsileg samtals 158 fm 3ja herbergja endaíbúð á 2. hæð í 2ja hæða lyftuhúsi ásamt stæði í bílakjallara við Rúgakur 1 í Garðabæ (íbúð 201). Glæsilegar innrét- tingar og falleg gólfefni. 18 fm svalir. Eignin er laus til afhendingar strax. Áhvílandi 22,3 m. frá ILS með 4,9% vöxtum. Verð 38,9 millj. OPIÐ HÚS Í DAG (Miðvikudag) FRÁ KL. 17:00 - 18:00 Fullbúin útsýnisíbúð OP IÐ HÚ S FÓTBOLTI Guðlaugur Victor Páls- son verður með aðalliði Liverpool í æfingabúðum í Sviss að því er kom fram á fótbolta.net í gær. Liverpool mun vera í tíu daga í ferðinni og spilar við Al-Hilal, Grasshopper og Kaiserslautern. Roy Hodgson hefur lofað Guð- laugi að hann fái spilatíma í þess- um leikjum. - óój Æfingaferð Liverpool til Sviss: Guðlaugur með > FH-ingar í Hvíta-Rússlandi FH-ingar mæta í dag hvít-rússneska liðinu BATE Borisov í 2. umferð í undankeppni meistaradeildarinnar en leikur- inn fer fram úti í Hvíta-Rússlandi. BATE-liðið er orðinn góðkunningi Íslendinga því þetta er í þriðja sinn á fjórum árum sem liðið dregst gegn íslensku liði. FH-ingar mættu þeim 2007 og Valsmenn árið eftir. FH tapaði þá 2-4 samanlagt eftir að hafa tapað fyrri leiknum 1-3 á heimavelli. Valsmenn töpuðu 0-2 í fyrri leiknum sem fram fór úti og 0-3 samanlagt. Leikurinn í dag hefst klukkan 16.00 að íslenskum tíma. Pepsi-deild kvenna Valur-Haukar 7-2 0-1 Þórhildur Stefánsdóttir (5.), 1-1 Helga Sjöfn Jóhannesdóttir (14.), 2-1 Hallbera Guðný Gísla dóttir (27.), 3-1 Björg Gunnarsdóttir (28.), 4-1 Kristín Ýr Bjarnadóttir (32.), 4-2 Björg Magnea Ólafs (33.), 5-2 Elín Metta Jensen (81.), 6-2 Hall bera (84.), 7-2 Katrín Jónsdóttir (90.+1). Fylkir-Breiðablik 5-3 1-0 Sjálfsmark (2.), 1-1 Harpa Þorsteinsdóttir (13.), 1-2 Greta Mjöll Samúelsdóttir (15.), 2-2 Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir (27.), 3-2 Anna Björg Björnsdóttir (60.), 4-2 Íris Dóra Snorradóttir (70.), 5-2 Fjóla Dröfn Friðriksdóttir (71.), 5-3 Sara Björk Gunnarsdóttir (86.) Stjarnan-Afturelding 6-0 Inga Birna Friðjónsdóttir 2, Lindsay Schwartz 2, Katie McCoy, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir FH-KR 1-2 1-0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir (22.), 1-1 Sjálfsmark (42.), 1-2 Margrét Þórólfsdóttir (80.) Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af netmiðlinum fótbolta.net. STAÐA EFSTU LIÐA Valur 10 8 2 0 42-7 26 Þór/KA 9 6 1 2 26-11 19 Stjarnan 10 5 2 3 20-8 17 Breiðablik 10 5 2 3 18-14 17 Fylkir 10 5 1 4 20-15 16 1. deild karla Fjölnir-Leiknir R. 4-3 Aron Jóhannsson 3, Illugi Þór Gunnarsson - Kjartan Andri Baldvinsson, Fannar Þór Arnars son,Ólafur Hrannar Kristjánsson. Grótta-Njarðvík 1-0 Magnús Bernhard Gíslason. STAÐA EFSTU LIÐA Víkingur 10 7 1 2 18-9 22 Leiknir 11 7 1 3 19-11 22 Þór 10 6 3 1 24-12 21 ÍR 11 5 4 2 16-17 19 ÚRSLITN Í GÆR FÓTBOLTI Valskonur náðu sjö stiga forskoti á toppi Pepsi-deildar kvenna og níu stiga forskoti á Blika eftir 7-2 sigur á Haukum í gærkvöldi. Titilvonir Blika dóu endanlega í 5-3 tapi fyrir Fylki í Árbæ. Stjörnukon- ur unnu stærsta sigur kvöldsins þegar liðið vann 6-0 sigur á Aftureldingu í Garðabæ. Valskonur lentu undir á móti botnliði Haukum en svöruðu með fjórum mörkum á 18 mínútna kafla. Haukakonur minnkuðu muninn í 4-2 fyrir leikhlé en Valskonur skoruðu síðan þrjú mörk á síðustu tíu mín- útunum. Hin fimmtán ára Elín Metta Jensen skoraði í sínum fyrsta leik í efstu deild. Anna Björg Björnsdóttir kom heldur betur við sögu þegar Fylkiskonur skoruðu þrjú mörk á aðeins ellefu mínútna kafla og bretttu stöðunni úr 2-2 í 5-2. Anna skoraði fyrsta markið og lagði upp hin tvö. Tap Blika þýðir að þær eru nú níu stigum á eftir Val en þær komust 2-1 yfir í leiknum eftir að hafa skorað sjálfs- mark í upphafi leiksins. Stjörnukonur fóru á kostum í 6-0 sigri á Aftureld- ingu þar sem Inga Birna Friðjónsdóttir og Lindsay Schwartz skoruðu báðar tvö mörk. Öll mörk Stjörn- unnar komu á fyrstu 47 mínútum leiksins. Margrét Þórólfsdóttir tryggði KR 2-1 sigur á FH í Kaplakrika eftir að FH komst 1-0 yfir í fyrri hálfleik. KR-liðið komst upp í 6. sæti með sigrinum. Þór/KA getur minnkað forskot Vals aftur í fjögur stig með sigri á Grindavík í lokaleik umferðinnar sem fram fer á Akureyri í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.00 á Þórsvellinum. - óój Skoruð voru 26 mörk í fjórum leikjum Pepsi-deildar kvenna í gærkvöldi: Titilvonir Blika dóu í Árbæ FLOTTUR SIGUR Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir og félagar í Fylki unnu 5-3 sigur á Blikum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.