Fréttablaðið - 14.07.2010, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 14.07.2010, Blaðsíða 12
12 14. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 S kýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um íslenzka skattkerfið hefur vakið nokkra athygli, enda er þar að finna að því er virðist róttækar tillögur um hærri skatta. Það er þó ekki þannig að AGS leggi til skattahækkanir að fyrra bragði. Það er ríkisstjórn Íslands, sem biður um skýrsl- una og þar kemur skýrt fram að sé vilji til þess hjá íslenzkum stjórnvöldum að hækka skatta, megi fara þessa eða hina leiðina að því marki. Ríkisstjórnin getur því að sjálfsögðu ekki skotið sér á bak við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, ákveði hún að hækka skatta enn frekar. Hún ber ábyrgðina sjálf, rétt eins og á þeim skatta- hækkunum sem þegar hafa verið ákveðnar. Skýrsla AGS er raunar athyglisverð lesning fyrir margra hluta sakir. Þar kemur til að mynda fram sú ályktun að Íslendingar séu alls ekki minna skattlagðir en til dæmis hinar Norðurlandaþjóðirnar. AGS tekur skyldugreiðslur í lífeyrissjóði með í reikninginn og fær út þá niðurstöðu að Íslendingar beri einna þyngstu skattbyrðina í OECD. Þetta er í andstöðu við það sem talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa gjarnan haldið fram. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn geldur sömuleiðis varhug við þrepaskiptu tekjuskattkerfi með stighækkandi skattprósentu. Sé farið yfir ákveðin mörk í því tilliti, skaði það beinlínis tekjuöflun ríkissjóðs. Sérfræðingar AGS benda á að flest ríki, sem nýti rík- isfjármálin til að jafna tekjur þegnanna, nái markmiðum sínum á gjaldahliðinni, með því að greiða bætur til tekjulágra, en noti ekki skattkerfið til tekjujöfnunar. Þetta gengur sömuleiðis gegn málflutningi ríkisstjórnarflokkanna í skattamálum. Rauði þráðurinn í tillögum AGS er að einfalda skattkerfið og breikka skattstofnana. Það er ekki sú stefna, sem ríkisstjórnin hefur fylgt, heldur hefur hún þvert á móti flækt kerfið. Í þessu ljósi ber að skoða tillögu AGS um að setja allar vörur í sama virð- isaukaskattþrep, enda fylgir henni sú ábending að bregðast yrði við slíkri skattahækkun með því að verja umtalsverðum hluta teknanna til þess að styðja við láglaunafjölskyldur. AGS varar raunar við hugsanlegum áhrifum skattahækkana og bendir til dæmis á það augljósa, að hækkun neyzluskatta myndi velta út í verðlagið, auka verðbólgu og þyngja enn greiðslubyrði þeirra sem eru með verðtryggð lán. Í skýrslu AGS kemur ekkert fram um að ríkisstjórnin neyðist til að hækka skatta. Það er eftir sem áður val ráðherranna, hvort þeir ná jöfnuði í ríkisfjármálunum með því að hækka skattana eða með því að skera frekar niður í rekstri ríkisins. Niðurskurður er erfiðari í framkvæmd, enda margir vel skipulagðir þrýstihóp- ar og hagsmunasamtök á móti honum. Skattgreiðendur eru stór hópur, sem hefur ekki skýrt skilgreinda hagsmuni og á sér enga sérstaka talsmenn. Þess vegna telja stjórnmálamenn oft að það sé auðveldara að hækka skatta en að skera niður. Í skýrslu AGS eru engin rök fyrir að það sé leiðin sem á að fara. HALLDÓR Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Fyrir þinglok í júní sl. stóð undirritaður að því, ásamt þingmönnum úr 3 öðrum flokkum, að leggja fram þingsályktunar- tillögu sem felur það í sér að aðildarum- sókn Íslands að Evrópusambandinu verði dregin til baka. Samkvæmt nýjum skoð- anakönnunum er mikill meirihluti þjóðar- innar andvígur þessari umsókn en það er einungis meðal kjósenda Samfylkingarinn- ar þar sem meirihluti er fyrir umsókninni og aðild að ESB. Mikill meirihluti kjósenda annarra flokka er mótfallinn aðild Íslands að ESB. Hlutföllin eru svipuð þegar kemur að stuðningi við það að draga aðildarum- sókn Íslands til baka. Samfylkingin er að verða einangruð í afstöðu sinni til ESB- umsóknarinnar og jarðvegur er að mynd- ast fyrir það að stöðva aðlögunarferlið sem nú er hafið. Þessu tækifæri ættu þeir að taka fagnandi sem raunverulega eru mót- fallnir ESB-aðild Íslands. ESB hefur verið erfitt mál fyrir Vinstri græn en mikil andstaðan hefur verið frá fyrsta degi við að lögð yrði inn aðildarum- sókn. Nú hefur þessi andstaða vaxið enn meðal grasrótar VG og er afdráttarlaus- ari en hún var í upphafi aðildarferlisins. Þetta kom skýrt fram á flokksráðsfundi VG, sem haldinn var í lok síðasta mánaðar. Fyrir fundinum lá tillaga sem fól það í sér að aðildarumsóknin yrði dregin til baka og undir þessa tillögu skrifuðu 20 flokksmenn víðs vegar af landinu, þar af margir sveitar- stjórnarmenn, formenn svæðisfélaga o.fl. Miklar umræður voru um ESB-umsókn- ina og fundurinn lýsti því yfir að forsend- ur umsóknarinnar sem lagt var af stað með væru brostnar og því væri mikilvægt að taka málið til gagngerrar endurskoðunar. Ákveðið var að vísa þeirri endurskoðun til sérstaks málefnaþings sem haldið verður á haustdögum og í framhaldinu yrði flokks- ráðsfundur þar sem tekin yrði ákvörðun um framhald umsóknarinnar og aðildarferlis- ins. Þrátt fyrir að það vantaði allmarga full- trúa af landsbyggðinni, þar sem andstaðan við ESB-aðild er alla jafna sterkari, þá var mjög greinilegt á fundinum að krafan um að umsóknin verði dregin til baka nýtur vax- andi og víðtæks stuðnings í grasrót flokks- ins. Nú er mikilvægt að stjórnvöld einbeiti sér að þeim stóru verkefnum sem þjóðin glímir við og haldi þannig endurreisninni áfram. Því eigum við að leggja til hliðar kostnað- arsöm gæluverkefni sem þjóðin er mótfallin og einbeita okkur að verkefnum sem tengj- ast endurreisn Íslands með beinum hætti. ESB-umsóknin verður endurskoðuð Evrópumál Ásmundur Einar Daðason þingmaður Vinstri grænna Viðarhöfða 6 – Reykjavík / Bæjarhrauni 12 – Hafnarfirði www.sindri.is / sími 575 0000 Verslanir PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 01 49 3 69.900 Verð með vsk. 18 V höggborvél DC988KL Öflug 18 V borvél m. höggi 3ja gíra, 0-450/1450/2000 Átak 52 Nm. 2x2,0 Ah Li-Ion rafhlöður 40 mín. hleðslutæki Taska fylgir Mörður í vatnsglasi Mörður Árnason segir Magma málið vera storm í vatnsglasi. „Það skiptir engu máli hvort útlendingurinn er kanadískur eða sænskur, ef hann fer að íslensk-evrópskum lögum,“ blogg- ar Mörður. „Það er líka fjarstæða að halda því fram að hérmeð sé hið illa alþjóðaauðvald að eignast íslenskar auðlindir.“ Málið er hins vegar að stór partur úr sam- starfsflokki Samfylkingarinnar er ekki sammála þessari greiningu. Það er því nokkuð stórt, vatns- glasið sem Mörður talar um, og hann er í miðri hringiðunni. Dýrt Sagt var frá því í Fréttablaðinu í gær að Jón Ásgeir Jóhannesson þurfi að greiða að minnsta kosti 140 millj- ónir króna í málskostnað fyrir að verjast kyrrsetningu eigna sinna í Lond- on og jafnvel allt upp í 180 milljónir. Allt fyrir aleiguna Fari svo er málskostnaðurinn þegar orðinn 75 prósent af andvirði allra eigna Jóns Ásgeirs. Þær nema 240 milljónum króna samkvæmt lista sem hann hefur lagt fram í London. Eignirnar eru hins vegar kyrrsettar og verða því ekki nýttar til að greiða máls- kostnaðinn. Jón Ásgeir ætlar með öðrum orðum að eyða jafnvirði nærri aleigu sinnar til að verjast kyrrsetningu aleigu sinnar. Það er sérstakt hagsmunamat. bergsteinn@frettabladid.is Ríkisstjórnin ber ábyrgð á skattahækkunum, ekki Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn. Auðvelda leiðin

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.