Fréttablaðið - 14.07.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 14.07.2010, Blaðsíða 30
26 14. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR Hin níu ára gamla Sesselja Sif Óðinsdóttir tók fyrir skemmstu þátt í fyrsta heimsmeistaramóti barna í fitness sem fram fór í Sló- vakíu. Sesselja Sif er dóttir Krist- ínar Kristjánsdóttur, Íslands- meistara kvenna í fitness, og stjúpdóttir Sigurðar Gestssonar, vaxtarræktarkappa. „Æfingarnar byggjast mest á fimleikum og dansi sem sýna bæði styrk og liðleika þátttak- enda. Krakkarnir koma einnig fram á stuttbuxum en mega til dæmis ekki nota farða eða annað slíkt eins og viðgengst í fullorð- inshópum,“ útskýrir Sigurður og segir Sesselju Sif hafa staðið sig með prýði á mótinu. „Keppendur voru tæplega hundrað og skiptust nokkuð jafnt í þrjá aldursflokka. Sesselja var í flokki með nokkrum bestu fimleikastúlkum heims og lenti í fjórtánda sæti í flokki átta til níu ára, þannig að hún stóð sig mjög vel stelpan.“ Þetta telst frá- bær árangur hjá Sesselju þar sem allir keppendur voru mjög góðir og flestir meistarar í sínum lönd- um, en þetta var fyrsta keppni Sesselju í fitness. Sesselja Sif, sem hefur æft fimleika í um sex ár, er að sögn Sigurðar ákveðin í að taka þátt í næsta heimsmeistaramóti barna í fitness sem fram fer í Mexíkó á næsta ári. „Í þessum rútínum eru engar skylduæfingar líkt og í fimleikum heldur fá þær frjáls- ar hendur hvað það varðar. Sess- elja er bæði mjög skapandi og dugleg að æfa sig og ég tel að hún eigi eftir að ná langt í íþróttinni. Árangur hennar á mótinu lofar í það minnsta góðu.“ Aðspurður segir Sigurður að mikill íþrótta- áhugi ríki á heimilinu og að lífið snúist mikið í kringum hreysti og hreyfingu. „Við Kristín eigum samtals sjö börn, ég á fjögur og hún þrjú, og mörg þeirra stunda einhvers konar íþróttir. Við leggj- um mikið upp úr því að vera heil- brigð og borða hollt og æfum mjög mikið, sumum finnst það kannski of mikið,“ segir Sigurður að lokum og hlær. sara@frettabladid.is 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 börn kepptu á mótinu í þrem- ur flokkum.100 VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Japan. 2 Thors Vilhjálmssonar. 3 Svanur Herbertsson. LÁRÉTT 2. eiga, 6. drykkur, 8. meðal, 9. sníkjudýr, 11. tveir eins, 12. orðrómur, 14. fótmál, 16. karlkyn, 17. knæpa, 18. eyrir, 20. klaki, 21. íþróttafélag. LÓÐRÉTT 1. hnapp, 3. verkfæri, 4. ölvun, 5. máttur, 7. lævís, 10. stykki, 13. ról, 15. aflast, 16. kóf, 19. guð. LAUSN LÁRÉTT: 2. hafa, 6. öl, 8. lyf, 9. lús, 11. ll, 12. umtal, 14. skref, 16. kk, 17. krá, 18. aur, 20. ís, 21. fram. LÓÐRÉTT: 1. tölu, 3. al, 4. fyllerí, 5. afl, 7. lúmskur, 10. stk, 13. ark, 15. fást, 16. kaf, 19. ra. GOTT Á GRILLIÐ „Það er ótrúlega gott að baka pitsu á grilli.“ Snærós Sindradóttir, formaður Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu. „Okkur kom þetta nú svolítið á óvart, enda við fyrst og fremst að einbeita okkur að því að koma myndinni í íslensk bíóhús,“ segir Hákon Einarsson, framleiðandi íslensku myndarinnar Boðbera. Erlendir dreifingaraðilar hafa sýnt kvik- myndinni mikinn áhuga, þar á meðal Universal kvikmyndadreifingaraðilinn í Evrópu. Þetta staðfestir Úlfar Helgason hjá Sambíóunum, sem sér um dreifingu myndarinnar hér á landi. „Ég fékk póst frá þeim sama dag og ég sá sjálfur sýnishornið úr myndinni. Þeir höfðu séð það og það vakti greinilega forvitni þeirra og vildu þeir fá að vita meira um myndina,“ segir Úlfar, en málin eru enn þá á viðræðustigi. „Þetta byrjaði allt saman þegar við settum enskan texta á sýnishorn myndarinnar á netinu. Hjálmar, leikstjóri Boðbera, hefur búið í Tékk- landi og setti enskan texta fyrir vini og kunn- ingja þar,“ segir Hákon en í kjölfarið fóru þeim að berast fyrirspurnir að utan og eru nú í við- ræðum við að minnsta kosti þrjá erlenda dreif- ingaraðila. Spurður hvað kveiki áhuga útlend- inga á myndinni segist Hákon hafa heyrt að myndin teljist mjög frumleg og að hún hafi eitt- hvað nýtt fram að færa á markaðinn. „Þessir menn úti vita hvað virkar hjá þeim og eru nátt- úrlega alltaf með allar klær úti. Með nef fyrir því hvað sé að ganga í þessum bransa núna. Að mínu mati er killer-blanda í myndinni, pólitík, trúmál og biblían,“ segir Hákon og bætir við að heildarútlitið á myndinni hafi vakið athygli sem nýtt og ferskt. „Við erum í skýjunum með þessa athygli án þess að vera búnir að gera neitt í þessum málum sjálfir, þó svo að erlend dreifing hafi alltaf verið á dagskránni. Við ætluðum bara fyrst að einbeita okkur að Íslandi,“ segir Hákon að lokum. - áp Universal í Evrópu með Boðbera í sigtinu VEKUR ATHYGLI Íslenska kvikmyndin Boðberi vekur áhuga erlendra dreifingaraðila, þar á meðal kvikmynda- risans Universal. „Þessi bók er fræðandi og skemmtileg þótt þú sért ekki að nota hana í leiknum Hver er maðurinn? Hún rifjar upp marga aðila sem fólk hefur gleymt en gaman er að muna aftur,“ segir skopmyndateiknarinn og útgef- andinn Hugleikur Dagsson. Útgáfufélagið Ókeibæ(!)kur hefur sent frá sér fjórðu bókina í rassvasabókaröð sinni. Bókin heitir Hver er maðurinn? og er höfundur bókarinnar undir dulnefninu Meðal-Jón. Það eru Arnar Ásgeirsson og Styrmir Örn Guðmundsson sem mynd- skreyta bókina en þeir félagar hafa unnið þó nokkuð saman. Bókin byggir á samnefndum leik sem Íslendingar spila gjarn- an á ferðalögum sínum. Í bókinni eru ýmsir frægir Íslendingar, sem eru þó ekki of frægir, taldir upp og þeir túlkaðir á skemmtilegan hátt. „Teiknistíll þeirra Arnars og Styrmis er ótrúlega svipaður og má líkja honum við „urban New York graffiti-stíl“ með skrípó ívafi. Þeim félögum tekst að gera persónunum ótrúleg skil í myndum sínum og fer það sjaldnast framhjá fólki um hvern ræðir,“ segir Hugleikur. Ástæða þess að höfundur er undir dulnefni er í raun engin sérstök. Hann kallar sig Meðal-Jón, og útskýrir það á þann hátt að „flestallir Íslendingar eru í raun ekk- ert nema meðal-Jón og það er höfundur líka.“ Í tilefni af útgáfu bókarinnar bjóða Ókei- bæ(!)kur í pub quiz með séríslensku dægraþema í kvöld klukkan 20.00 á Karaoke Sports Bar á Frakkastíg. Það verða Maggi Noem og Steindi Jr. sem spyrja spurn- inga og Gísli Galdur ætlar að sjá um tónlist fyrir keppni. Þeir Maggi og Steindi hafa svipað þema í keppninnni og í bókinni, en en ekki það sama og í leiknum Hver er maðurinn?. - ls Frægir Íslendingar í rassvasabók HUGLEIKUR DAGSON Útgáfufélag Hugleiks Ókei- bæ(!)kur gefur nú út fjórðu bókina í rassvasabókaröð sinni. JÓHANN RISI Persónunum eru gerð ótrúlega góð skil á teikningum í bókinni og fer það sjaldnast á milli mála um hvern ræðir. Leikbrúðusafn - Brúðuleikhús Veitingar - Gjafavara www.bruduheimar.is Sími 530 5000 Opið í Borgarnesi alla daga frá 10:00 til 22:00 L E I K S Ý N I N G á sunnudaginn kl 14:00 Hringdu í síma ef blaðið berst ekki SESSELJA SIF ÓÐINSDÓTTIR: NÍU ÁRA GÖMUL AFREKSSTÚLKA Í FITNESS Hafnaði í 14. sæti á fyrsta heimsmeistaramóti barna Miðasala á Þjóðhátíð í Eyjum fer betur af stað í ár, en á sama tíma í fyrra. Metfjöldi mætti á hátíðina í fyrra en nú búa eyjaskeggjar sig undir að slá metið með tilkomu Bakkahafnar. Á vefsíðu hátíðarinnar kemur fram að hljómsveitin Svört föt komi fram. Sama hljómsveit steig á svið í Galtalæk á dögunum þegar þýski teknórisinn Scooter tryllti lýðinn. Til að koma í veg fyrir misskilning þá skal áréttað að hljómsveitin Svört föt er einfaldlega Í svörtum fötum með Jónsa í broddi fylkingar, sem var stofnuð fyrir rúmum áratug ... Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu hefur leikarinn Felix Bergsson tekið að sér hlutverk The Big Bopper í söngleiknum um Buddy Holly sem settur verður á svið í Austurbæ í haust. The Big Bopper lést í flugslysinu sem söngvararnir Buddy Holly og Ritchie Valens létust einnig í. Söngvarinn var þéttur á velli og hafði um 20-30 kíló í forskot á Felix og kunna því einhverjir að velta fyrir sér hvort hann ætli að bæta þeim á sig. Felix ku eiga eftir að fara í samningaviðræður við leikstjórann Gunnar Helgason um að fá að klæðast einhvers konar þyngj- andi búningi. Eins og alþjóð veit þá hyggst fyrir- sætan og athafnakonan Ásdís Rán fækka fötum á síðum búlgörsku útgáfu Playboy sem kemur út í enda mánaðarins. Mynda- takan tók tvo daga og kláraðist í gær og nú hefst biðin langa fyrir aðdáendur Ásdísar, sem hafa verið dug- legir við að kaupa blaðið í forsölu á vefsíðu Eymunds- sonar. - afb/ls FRÉTTIR AF FÓLKI HRAUST FJÖLSKYLDA Sesselja Sif Óðinsdóttir ásamt foreldrum sínum, Sigurði Gestssyni og Kristínu Kristjánsdóttur. Sesselja hefur æft fimleika í sex ár en foreldrar hennar eru bæði í vaxtarrækt. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.