Fréttablaðið - 14.07.2010, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 14.07.2010, Blaðsíða 15
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 HEIMASMURT NESTI er langbest í ferðalagið. Gaman getur verið að láta hugmyndaflugið ráða en annars er ótrú- legt hvað einföld samloka með smjöri og osti bragðast miklu betur fyrir utan bæjarmörkin en heima í eldhúsi. GALLAFATNAÐUR- FERÐAFATNAÐUR – MIKIÐ ÚRVAL Laugavegi 63 • S: 551 4422 Skoðið sýnishornin á laxdal.is - thema KORSIKA „Þegar ég heyrði af verkefninu hafði ég samband við Rauða kross- inn og spurði hvort ég mætti slást með í för. Þar var vel tekið í hug- myndina og fyrr en varði var ég á ferðalagi um snævi þaktar slétt- ur Hvíta-Rússlands,“ segir Brynja Dögg Friðriksdóttir, meistara- nemi í heimildarmyndagerð við University of Salford í Manchest- er, sem hefur gert mynd um för starfsmanna Rauða kross Íslands til Hvíta-Rússlands, þar sem þeir afhentu gám með gjöfum fyrir ung- börn og bágstadda í febrúar síðast- liðnum. Hópurinn var að störfum í fimm daga og segir Brynja margt hafa komið sér á óvart. „Ég vissi lítið um landið áður en ég lagði af stað, annað en það sem ég hafði kynnt mér á netinu. Hins vegar komst ég að raun um að íbúarnir eru mjög gestrisið fólk og áhugasamt um menningu annarra þjóða. Maturinn er góður og fjölbreyttur, sérstak- lega í Minsk, arkitektúrinn mikil- fenglegur og náttúran stórbrotin með sínum fallegu sléttum, sem ég myndi vilja sjá að sumarlagi.“ Brynja viðurkennir hins vegar að Hvíta-Rússland eigi sér skugga- hliðar. „Bilið er mikið á milli þeirra efnuðu og fátæku. Eins er mikill munur á lífskjörum íbúa á höfuð- borgarsvæðinu og landsbyggðinni þar sem fólk getur þurft að ferðast tugi kílómetra til að fá viðunandi heilbrigðisþjónustu. Það er þó gott til þess að vita að Rauði krossinn hefur styrkt lækna og hjúkrunar- fræðinga sem fara á milli og þjón- usta íbúana.“ Brynja segir ferðina hafa verið lærdómsríka. „Mér þótti til dæmis mjög athyglisvert að uppgötva að þrátt fyrir bágborið efnahags- ástand skuli Hvít-Rússar hafa í nafni Rauða krossins styrkt íbúa Haítí eftir að jarðskjálftar riðu þar yfir. Það þykir mér göfugmann- legt,“ segir Brynja, sem langar að heimsækja landið aftur við gott tækifæri, en heimildarmynd henn- ar Slétt og brugðið má sjá á http:// vimeo.com/11742896. roald@frettabladid.is Utan alfaraleiðar Brynja Dögg Friðriksdóttir, nemi í heimildarmyndagerð, myndaði ferð starfsmanna Rauða kross Íslands til Hvíta-Rússlands í febrúar síðastliðnum og uppgötvaði margt áhugavert í þessu síðasta einræðisríki Evópu. „Þetta land virðist af einhverjum ástæðum gleymast í umræðunni um áhugaverða ferðastaði en hefur margt til brunns að bera,“ segir Brynja Dögg Friðriksdóttir, um Hvíta-Rússland sem hún heimsótti fyrr á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.