Fréttablaðið - 14.07.2010, Side 6
6 14. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
Ert þú ánægð(ur) með að göt-
um í miðbænum sé lokað fyrir
bílaumferð?
JÁ 75,1%
NEI 24,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú í tjaldútilegu í sumar?
Segðu þína skoðun á visir.is
Veitt verða glæsileg verðlaun að vanda. Besta skor
án forgjafar, 1–5 sæti punktar. Nándarverðlaun á
öllum par 3 holum. Lengsta dræf á 11 braut.
Veitt verða verðlaun fyrir næst holu í öðru höggi á
18 braut. Í lokin verður dregið úr skorkortum.
Skráning á www.golf.is
Hámarksforgjöf 28
Mótsgjald 3.500 kr.
Opið kvennamót
Okkar árlega Gullmót Hansínu Jens
laugardaginn 17. júlí að Kiðjabergi
ORKUMÁL Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra segir engin lög
hafa verið brotin varðandi kaup
Magma Energy á hlut Geysis
Green Energy ehf. í HS Orku hf.
„Þau lögfræðiálit sem mér hafa
verið veitt undanfarið segja að
ekki hafi verið farið á svig við
lögin,“ segir Jóhanna. „En ég er
þeirrar skoðunar að nauðsynlegt
sé að endurskoða lögin í þessu
samhengi.“
Jóhanna segir engar óeðlileg-
ar leiðbeiningar hafa verið veitt-
ar af hálfu iðnaðarráðuneytis-
ins og verið sé
að taka málið
til umfjöllunar.
„Það er einn-
ig fjarri lagi að
þrýstingur hafi
verið af hálfu
Samfylking-
ar í þessu máli
eins og fram
hefur komið.
Umhverfisráð-
herra segir að
komin séu fram ný sjónarmið í
málinu og verið er að skoða þau.“
Gylfi Magnússon, efnahags- og
viðskiptaráðherra, er sammála
Jóhönnu og segir allt benda til þess
að brotalamir séu í lögunum.
Magma Energy stofnaði skúffu-
fyrirtæki í Svíþjóð til þess að fjár-
magna kaup sín á 43 prósenta hlut
í HS Orku hf. og hafa aðgerðirn-
ar verið harðlega gagnrýndar á
Alþingi. Svandís Svavarsdóttir
umhverfisráðherra hafði óskað
eftir því að mál Magma Energy
yrði tekið upp á ríkisstjórnarfundi
í gær en var þó ekki sjálf viðstödd
fundinn. - sv
Forsætisráðherra segir engin lög hafa verið brotin í kaupum Magma á HS Orku:
Brýn þörf á endurskoðun laga
JÓHANNA SIGURÐ-
ARDÓTTIR
FÓLK Tólf veiðimenn og gestir
þeirra gerðu góða ferð inn að Ell-
iðaám í gær í boði borgaryfirvalda.
Veiðimennirnir voru valdir úr hópi
þeirra sem almennir borgarar til-
nefndu fyrir að hafa lagt gott af
mörkum til samfélagsins.
Fjöldi laxa kom á land þótt
mannskapurinn væri misvanur
veiðimennsku enda úrvals leið-
sögumenn hópnum til halds og
trausts. Annar sambærilegur
hópur rennir síðan í Elliðaárnar í
boði Reykjavíkurborgar 20. júlí.
Dagurinn þar á eftir er hins
vegar frátekinn fyrir fyrrverandi
borgarstjóra. Er það í boði Orku-
veitu Reykjavíkur. „Ekki er enn
vitað hverjir munu þekkjast boðið
og svo getur farið að það skýrist
ekki fyrr en deginum áður,“ segir
Hulda Gunnarsdóttir, sérfræð-
ingur upplýsingamála á skrifstofu
borgarstjóra, spurð um það hvaða
fyrrverandi borgarstjórar og aðrir
gestir verði við laxveiðar í Elliða-
ánum 21. júlí. - gar
Boðsdagur borgaryfirvalda fyrir venjulegt fólk sem auðgar samfélagið tókst vel:
Samfélagshetjur veiddu nóg af laxi
HETJUVEIÐI Jón Valgeir Aðalsteinsson fékk tvo laxa í gær. Hér nýtur hann aðstoðar
Jóns Einarssonar, þaulreynds veiðimanns. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Fram kom á flokksráðsfundi
Vinstri grænna hinn 25. til 26. júní
síðastliðinn að flokkurinn leggist
eindregið gegn sölu eða lang-
tímaframsali á orkuauðlindum og
orkufyrirtækjum.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, telur að
nefnd um erlendar fjárfestingar
verði að taka kaup Magma Energy
á HS Orku aftur til umfjöllunar
og mikilvægt sé að setja lög sem
segi til um óskoruð yfirráð hins
opinbera á orkufyrirtækjum.
Setja ný lög
FRAMKVÆMDIR Fjármögnun bygg-
ingar nýs Landspítala er hluti af
alútboði sem fara þarf fram á Evr-
ópska efnahagssvæðinu vegna
verkefnisins.
Nýtt opinbert hlutafélag tók við
umsjón með byggingu sjúkrahúss-
ins um síðustu mánaðamót. Í upp-
hafi vikunnar hófust viðræður
milli félagsins og SPITAL-hópsins
sem var sigurvegari samkeppni um
hönnun sjúkrahúsbyggingarinnar.
Stefnt er að því að niðurstaða fáist
í þær viðræður í byrjun ágúst, sam-
kvæmt upplýsingum Fréttablaðs-
ins.
Um tuttugu íslenskir lífeyrissjóð-
ir gáfu í fyrra sameiginlega viljayf-
irlýsingu um þátttöku í fjármögnun
spítalabyggingarinnar.
Þrátt fyrir það liggur ekki form-
lega fyrir hvort af þátttöku þeirra
verður og hvernig henni verður
þá háttað. Þorbjörn Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Samiðnar,
sem hefur umsjón með aðkomu líf-
eyrissjóðanna að málinu, segir að
vegna EES-reglna hafi alltaf legið
fyrir að bjóða þyrfti út fjármögn-
unina vegna EES-reglna. Fyrst að
því loknu skýrist hvernig aðkomu
lífeyrissjóðanna verður háttað.
Ekki sé útilokað að verktaki vilji
sjálfur annast fjármögnun á fram-
kvæmdatíma. Lífeyrissjóðirnir
hafa hins vegar þegar skuldbundið
sig til að taka þátt í fjármögnun um
þriggja milljarða króna kostnaðar
við hönnun og undirbúningsfram-
kvæmdir. Einnig hafa þeir mikinn
áhuga á þátttöku í langtímafjár-
mögnun, þ.e.a.s. 40 ára leigu rík-
issjóðs á fullbúnu sjúkrahúsinu að
loknum framkvæmdum.
Þorbjörn segir að ef undirbúning-
ur verksins gangi vel megi reikna
með því að undirbúningi ljúki og
útboð heildarframkvæmda geti
farið fram um mitt næsta ár. Fram-
kvæmdir geti þá hafist seinni hluta
næsta árs. peturg@frettabladid.is
Fjármögnun kallar
á útboð innan EES
Þrátt fyrir viljayfirlýsingu lífeyrissjóða um þátttöku í fjármögnun nýs Landspít-
ala er enn óljóst hvort af henni verður þar sem bjóða þarf verkið út á EES-svæð-
inu. Stefnt er að því að ljúka samningum um hönnunarvinnu í ágúst.
NÝTT SJÚKRAHÚS Nýtt skipulag fyrir stækkun Landspítalans var kynnt á föstudaginn. Það var hönnunarteymið SPITAL sem varð
hlutskarpast í samkeppninni um áfangaskipt heildarskipulag nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut.
KJÖRKASSINN