Fréttablaðið - 14.07.2010, Síða 8
8 14. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR8
1 Hvar er helsti markaður
íslenskra æðardúnsútflytjenda?
2 Um hvaða pílagrímsgöngu
hvaða rithöfundar um Spán var
gerð heimildarmynd?
3 Hvað heitir sonur Herberts
Guðmundssonar?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
S
L
5
07
28
0
6/
10
Hafna hugmyndum AGS
Þingflokkur framsóknarmanna hafnar
hugmyndum Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins um hækkun á virðisaukaskatti
matvæla. Samkvæmt hugmyndunum
hækkar skattur á matvæli úr 7 pró-
sentum í 25,5 prósent. Framsóknar-
menn segja ekki hægt að leggja meiri
álögur á fjölskyldurnar í landinu.
STJÓRNMÁL
Nýtt skip tilbúið í nóvember
Togveiðiskipið Þórunn Sveinsdóttir
VE, sem verið hefur í smíði um hríð,
verður tilbúið í nóvember. Skipið var
dregið frá Póllandi til Danmerkur
í síðustu viku en skrokkurinn var
smíðaður í Gdansk í Póllandi og
tækjabúnaður verður settur í skipið í
Danmörku.
VESTMANNAEYJAR
FÉLAGSMÁL Skipuð hefur verið
nefnd af Árna Páli Árnasyni,
félags- og tryggingamálaráðherra,
um gerð nýrrar aðgerðaáætlunar
gegn kynbundnu ofbeldi fyrir árin
2011 til 2015.
Lögð verður sérstök áhersla á
samhengi kynbundinna ofbeld-
isbrota, saksóknar vegna þeirra
og meðferðar í dómskerfinu, en
afar fá mál af þessum toga fara
alla leið í dómskerfinu hér á landi.
Auk þessa verður mótuð afstaða til
meðferðar nýs sáttmála Evrópu-
ráðs í málum kynbundins ofbeldis
og endurskilgreiningar verkefna
með hliðsjón af honum.
Gildandi aðgerðaáætlun var
samþykkt árið 2006 og fólst mest-
megnis í viðamiklum rannsóknum
á eðli og umfangi ofbeldis karla
gegn konum í nánum samböndum.
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, höf-
undur bókarinnar Á mannamáli,
sem fjallaði um kynbundið ofbeldi
á Íslandi, á sæti í nefndinni. Hún
hefur gagnrýnt yfirvöld harðlega
fyrir úrræði þeirra varðandi kyn-
ferðisbrot og er mjög ósátt við
framkvæmdir á gildandi áætlun.
„Það er komin mikil pressa á
stjórnvöld að standa við þessar
áætlanir,“ segir Þórdís. „Hingað
til hefur aðgerðarleysið verið til
skammar.“ - sv
Nefnd stofnuð um gerð nýrrar aðgerðaáætlunar gegn kynbundnu ofbeldi:
Ósátt við aðgerðarleysi stjórnvalda
ÞÓRDÍS ELVA ÞORVALDSDÓTTIR Segir
aðgerðarleysið til skammar.
STJÓRNMÁL Fjörutíu umsóknir bár-
ust um starf bæjarstjóra á Akra-
nesi en umsóknarfrestur rann út á
sunnudag. Þrír umsækjendur hafa
síðan dregið umsókn sína til baka.
Bæjarstjórn Akraness fékk
Capacent til þess að annast
umsóknarferlið og mun fyrir-
tækið leggja fyrir bæjarstjórn
lista með nöfnum þeirra fimm
aðila sem það telur hæfasta. Listi
umsækjenda verður lagður fram á
bæjarráðsfundi á morgun og verð-
ur í framhaldinu birtur opinber-
lega. - mþl
Starf bæjarstjóra á Akranesi:
Fjörutíu sóttu
um starfið
FRAKKLAND, AP Neðri deild franska
þingsins samþykkti í gær frum-
varp sem bannar notkun blæja sem
hylja andlit kvenna. Slíkar blæj-
ur eru yfirleitt hluti af búrkum
og nikab-kuflum sem múslimsk-
ar konur klæðast. Talið er að um
1.900 konur í Frakklandi klæðist
slíkum kuflum.
Frumvarpið fer fyrir öldunga-
deild þingsins í september og er
gert ráð fyrir því að það verði
samþykkt þar. Talið er mögulegt
að dómstólar muni úrskurða að
bannið brjóti í bága við stjórnar-
skrá landsins. Mikið fylgi er við
bannið í Frakklandi þó það sé
umdeilt annars staðar.
Bannið var samþykkt með 335
atkvæðum en einn greiddi atkvæði
á móti. Margir þingmanna Sósíal-
istaflokksins gengu út og neituðu
að greiða atkvæði vegna ágrein-
ings um frumvarpið. Þeir eru
ekki á móti banninu heldur vildu
að það yrði aðeins bundið við opin-
bera staði en samkvæmt frum-
varpinu er bannað að hylja and-
lit sitt á almannafæri. Bannið er
þannig ekki takmarkað við mús-
limskar konur þó það sé sett vegna
þeirra. Hvergi er minnst á íslam
eða blæjur, en margar undantekn-
ingar á banninu eru teknar fram.
Meðal undantekninga eru mótor-
hjólahjálmar og ýmsar tegundir af
grímum sem notaðar eru af heilsu-
farsástæðum, á skíðum eða hátíð-
um svo dæmi séu tekin.
Verði bannið að veruleika mun
hver sú kona sem gengur um með
hyljandi blæju verða sektuð um
150 evrur. Þá er hægt að dæma
þær til að sitja ríkisborgaranám-
skeið. Frumvarpinu er þó líka
beint að eiginmönnum og feðrum,
og hver sá maður sem neyðir konu
til að ganga með blæju getur átt 30
þúsund evra sekt yfir höfði sér og
árs fangelsisdóm. Bæði sektin og
fangelsisvistin tvöfaldast ef konan
er undir lögaldri.
Nú þegar hefur verið komið á fót
sjóði sem er ætlað að borga sekt-
ir þeirra sem verða dæmdir. Það
gerði athafnamaðurinn Rachid
Nekkaz, sem reyndi að bjóða sig
fram til forseta árið 2007. Hann
segist vera á móti notkun blæj-
anna en segir bannið brjóta gegn
einstaklingsfrelsi. Stuðningsmenn
bannsins hafa hins vegar haldið
því fram að andlitsblæjur sam-
ræmist ekki frönskum hugmynd-
um og kynjajafnrétti.
thorunn@frettabladid.is
Franska þingið sam-
þykkti slæðubann
Neðri deild franska þingsins samþykkti í gær frumvarp um bann á blæjum sem
hylja andlit múslimskra kvenna á almannafæri. Konur verða dæmdar til sektar
en menn sem neyða konur til að ganga með blæjur verða dæmdir í fangelsi.
NIKAB-KUFL Bannið mun ná til um 1.900 kvenna í Frakklandi, en einnig er verið að skoða sams konar reglur í Belgíu og á Spáni.
Þessi kona er í svokölluðum Nikab-kufli, þar sem aðeins sést í augu hennar. NORDICPHOTOS/AFP
VEISTU SVARIÐ?