Fréttablaðið - 14.07.2010, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 14. júlí 2010 17
timamot@frettabladid.is
„Okkur þykir mjög gaman að hafa náð
þessum áfanga og þótt ekki sé um stór-
afmæli að ræða þannig séð þá erum
við sökum aldurs að slá met á hverj-
um degi,“ segir Stefán Einar Stefáns-
son, framkvæmdastjóri Hins íslenska
biblíufélags sem varð 195 ára um síð-
ustu helgi og er elsta starfandi félag á
Íslandi.
Hið íslenska Biblíufélag var stofnað
á prestastefnu í Reykjavík þann 10. júlí
1815 sögn Stefáns. „Félagið var stofnað
á heimili Geirs Vídalín biskups að Aðal-
stræti 10, sem oft er kallað Fógetahúsið
en ætti að þekkjast sem biskupsgarð-
ur, fyrir tilstuðlan Ebenezers Hender-
sonar. Ebenezer var skoskur prestur
og trúboði sem kom hingað til lands á
vegum Breska og erlenda biblíufélags-
ins árið 1814 og fór hér um sveitir og
gaf og seldi landsmönnum Biblíuna
sem var þá orðin af skornum skammti,
bæði á heimilum og í kirkjum landsins.
Í framhaldi af því sáu menn ástæðu til
að koma Biblíunni enn betur á fram-
færi og stuðla að kynningu hennar og
lestri um landið og hefur það frá upp-
hafi verið meginmarkmið Hins íslenska
biblíufélags,“ útskýrir hann.
Veigamikill þáttur í starfi félagsins
hefur verið útgáfa á íslenskri þýðingu
Biblíunnar, en þær hafa verið nokkr-
ar frá því sú fyrsta leit dagsins ljós
árið 1841. „Hún var prentuð í Viðey og
því oft kölluð Viðeyjarbiblían þar sem
gætir mjög áhrifa Sveinbjörns Egils-
sonar, rektors við Lærða skólann. Því
starfi hefur verið haldið áfram eftir
það og síðasta heildstæða þýðingin leit
dagsins ljós 18. október 2007,“ segir
Stefán. Nokkur styr stóð um þá þýð-
ingu, meðal annars vegna notkunar
einstakra orða, en Stefán segir að það
hafi svo sem ekki komið á óvart þar
sem flestar þýðingar á Biblíunni hafi
verið umdeildar í gegnum tíðina. „Sem
dæmi uppnefndu sumir þýðinguna 1908
Heiðnu biblíuna þar sem mönnum þótti
hún taka þannig á texta ritningarinnar
að hún væri kristnum ekki samboðin.
Nú eru flestir ánægðir með hana og ég
tel að í fyllingu tímans muni sömuleið-
is góð og víðtæk sátt nást um síðustu
þýðingu.“
Spurður hvað sé svo á döfinni, segir
Stefán félagsmenn þegar vera farna
að huga að 200 ára stórafmælinu þótt
fimm ár séu enn til stefnu. „Við erum
að skoða í samráði við erlend biblíufé-
lög sem hafa staðið í svipuðum sporum
hvernig best sé að fagna þessum tíma-
mótum. Ekki er þó komin föst mynd á
dagskrána en ráðgert er að árið 2015
verði allt helgað þessu afmæli með
viðburðum af fjölbreyttum toga, en
við teljum góðan leik að hefja undir-
búning svona snemma,“ segir hann og
bætir við að eins standi til að fjölga
félagsmönnum. „Við erum þegar farin
að beita nýstárlegum aðferðum til að
vekja athygli á félaginu og erum meðal
annars komin á Facebook,“ segir hann
og hlær. roald@frettabladid.is
HIÐ ÍSLENSKA BIBLÍUFÉLAG: ER 195 ÁRA
SLÁUM MET Á HVERJUM DEGI
FRAMKVÆMDASTJÓRI Stefán Einar Stefánsson tók nýverið við stöðu framkvæmdastjóra Hins
íslenska biblíufélags en samhliða því kennir hann siðfræði við Háskóla Íslands og Háskólann í
Reykjavík og segir fara vel á því að blanda þessu saman. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
INGMAR BERGMAN FÆDDIST
ÞENNAN DAG.
„Leikhúsið er eins og trygg
eiginkona. Kvikmyndin stór-
kostlegt ævintýri – kostnaðar-
söm og krefjandi hjákona.“
Ingmar Bergman (1918-2007) var
sænskur leikstjóri, sem leikstýrði
á sviði og hvítu tjaldi og skrifaði
handrit að kvikmyndum. Fanny
og Alexander og Vetrarljós eru á
meðal þekktra mynda hans.
Hringvegurinn, eða þjóðvegur
1, er 1.339 kílómetra vegur sem
tengir velflest byggileg héruð á
Vestur-, Norður-, Austur- og Suð-
urlandi. Vegurinn var fullgerður
með opnun Skeiðarárbrúar á
Skeiðarársandi á þessum degi
árið 1974, en að því hafði mark-
visst verið stefnt frá árinu 1967. Lengi hefur verið vinsælt meðal
íslenskra, og seinna erlendra, ferðamanna að fara hringveginn
enda margt að sjá á leiðinni. Leiðin er líka tiltölulega auðveld yfir-
ferðar, vegurinn að mestu leyti með bundnu slitlagi og tvíbreiður
nema í gegnum stærri bæi þar sem hann er breiðari. Af þeim
sökum verður oft mikill umferðarþungi á tilteknum vegarköflum,
mest í nágrenni höfuðborgarinnar og stærri bæja eins og Selfoss
og Akureyrar en fjarri þéttbýli er að finna kafla þar sem umferð er
lítil eða undir 100 ökutækjum á dag. Heimild: wikipedia.org
ÞETTA GERÐIST: 14. JÚLÍ 1974
Hringvegurinn fullgerður
Elsku dóttir okkar og systir
Ástríður Tómasdóttir
lést af slysförum 11. júlí.
Ásta Svavarsdóttir
Tómas R. Einarsson
Kristín Svava Tómasdóttir
Ása Bergný Tómasdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma, dóttir, systir, mágkona og
tengdadóttir,
Erna Björg
Guðmundsdóttir
Tjarnarhólma 2, Stykkishólmi
sem lést sunnudaginn 4. júlí á gjörgæsludeild
Landspítalans, verður jarðsungin frá Stykkishólms-
kirkju föstudaginn 16. júlí kl. 15.00.
Guðþór Sverrisson
Guðmundur Þór Guðþórsson Jóhanna María Ríkharðsdóttir
Kristján Valur Guðþórsson
Guðmundur Rúnar Guðþórsson
Sólveig Þóra Ásgeirsdóttir
Guðríður Guðmundsdóttir Þorsteinn Svavar McKinstry
Guðrún Guðmundsdóttir Sveinn Einar Magnússon
Björgvin Trausti Guðmundsson Nína Berglind Sigurgeirsdóttir
Arndís Þórðardóttir
og barnabörn.
Elskulegur sonur, bróðir og barnabarn,
Stefán H. Skúlason,
Hólmasundi 2,
lést að morgni 12. júlí sl. á Landspítala, Fossvogi.
Útför verður auglýst síðar.
Katrín Árnadóttir Páll E. Winkel
Guðný Kristín Winkel
Katrín Pála Winkel
Guðný Sigurðardóttir Árni Hreiðar Þorsteinsson
Ástkær móðir mín og tengdamóðir
Sesselja Halldórsdóttir
sem lést á Hrafnistu Hafnarfirði þann 9. júlí síðast-
liðinn verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 15. júlí kl. 11.00.
Rósa Halldórsdóttir Ragnar Hjaltason
Elskulegur eiginmaður minn, sonur,
faðir, tengdafaðir og afi,
Bjarni Björgvinsson
Hlíðarvegi 4, Kópavogi
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 8. júlí. Útförin
fer fram frá Hallgrímskirkju, föstudaginn 16. júlí
kl. 15.00.
Lára Magnúsdóttir
Ingibjörg Árnadóttir
Björgvin Bjarnason Guðrún Ósk Birgisdóttir
Sigurlaug H. Bjarnadóttir Skúli Baldursson
Stefán Pétur Bjarnason
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi
Snorri Arinbjarnarson
mjólkurfræðingur, Mýrarvegi 111
Akureyri
lést föstudaginn 9. júlí á Sjúkrahúsi Akureyrar. Útför
hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 16. júlí
kl. 13.30. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag
Akureyrar.
Guðrún Guðmundsdóttir
Unnur Snorradóttir Bjarki Kristinsson
Helga Snorradóttir Kristján Ólafsson
Arinbjörn Snorrason Friðný Møller
Guðmundur Hoff Møller Maríanna Hoff Møller
Bjarki Heiðar Ingason Hildur Soffía Vignisdóttir
Helga Þórey Ingadóttir
afa- og langafabörn.
Hjartkær amma okkar, systir og
mágkona,
Þórunn Árnadóttir,
Seli í Grímsnesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi,
sunnudaginn 4. júlí. Hún verður jarðsungin frá
Skálholtsdómkirkju föstudaginn 16. júlí kl. 14.
Aðalbjörg Skúladóttir
Halldóra Þórdís Skúladóttir
Árni Kristinn Skúlason
Sigrún Guðmundsdóttir Kristján Sigtryggsson
Unnur Ása Jónsdóttir Skúli Kristinsson.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir
og afi
Gylfi Magnússon
Hjarðarholti 13 Akranesi
lést 11. júlí. Útförin fer fram frá Akraneskirkju
þriðjudaginn 20. júlí kl. 14.00.
Aðalheiður Gylfadóttir Ásgeir Ólafsson
Magnea Gylfadóttir Hörður Einarsson
Ebba Magnúsdóttir
og barnabörn.