Fréttablaðið - 16.07.2010, Blaðsíða 25
16. júlí föstudagur 5
Ármúla 40 2. hæð Sími 553 9800 www.golfoutlet.is
Nýjar vörur á betra verði
Fullt af golfdóti, frábært verð
Pro Quip regn- og vindfatnaður,
notaður af Ryder liði Evrópu
Jakkar frá aðeins 18.900
Buxur frá aðeins 14.900
Vindjakkar og vesti frá 10.800
Barna- og unglingagolfsett
í standpoka frá 23.500
Stakar kylfur frá 3.900
Driver 5.900
hanskar, pokar
og kerrur.
Rafmagnsgolfkerra
Powerhouse Freedom frá Bretlandi,
28 AH geymir 69.900
Með uppblásnum dekkjum 79.900
Rescue kylfur og driverar
verð frá aðeins 7.900
Driverar dömu frá 8.900
John Letters Driver 27.900
Hippo XXL Driver 22.900
10.900
12.900
10.500
Golfboltar á góðu verði
Teitleist, Nike, Pinacle,
Wilson o.fl.
Verð 15 stk. frá 2.490
Golfsett, stakar kylfur, pokar og fleira
frá þessum þekkta framleiðanda.
Standpokar 12.900
Kerrupokar 24.900
6.990
18.500
19.900
42.900
Golfsett í poka 10% afsl.
Heilt sett karla og kvenna frá 44.550
Hálft sett í poka frá 24.750
Almennur
opnunartími
virka daga
11 til 18
G O L F V Ö R U R
R YRÐUM VINIR
eftir. Síðan eru tökudagarnir jafn
ólíkir og þeir eru margir og væg-
ast sagt lærdómsríkir,“ segir Al-
exander og bætir við að tíminn
á tökustað hafi verið ómetanleg
reynsla sem jafnist líklega á við
heilt ár í leiklistarnámi.
ERFITT AÐ HORFA Á SIG
LEIKA
Alexander hlakkar mikið til að
sjá lokaútkomuna á frumsýn-
ingardaginn þótt honum þyki
oft erfitt að horfa á sjálfan sig
á hvíta tjaldinu. „Mér finnst ég
læra mikið af því að horfa á sjálf-
an mig og þó það geti verið erf-
itt, þá trúi ég því að maður græði
mikið á því. Þannig að það er best
að venja sig bara á það strax. Ég
hef stundum fengið aulahroll
yfir áhorfinu en vil trúa því að
það hjálpi mér að skilja,“ segir
hann og hlær.
Sagan gerist að mestu að vetri
til og þurfa leikararnir því að
vera kappklæddir í sumarblíð-
unni. „Það getur orðið ansi heitt
í tökum en maður finnur sjaldn-
ast fyrir því enda með hugann
við allt annað. Við verjum fjórum
vikum í tökur núna og svo aftur
einni viku í október eða nóvem-
ber í vetrarútitökur.“
Leikstjóri myndarinnar er
Gunnar Björn Guðmundsson, en
hann leikstýrði einnig Áramóta-
skaupinu árið 2009 og gaman-
myndinni Astrópíu, og ber Alex-
ander honum vel söguna. „Gunni
er frábær þegar kemur að leik-
aravali og þótt ýmislegt hafi
komið upp á og miklar breyt-
ingar átt sér stað alveg fram að
fyrsta tökudegi eru allir leikar-
arnir fullkomnir í sín hlutverk.
Hann er líka orðinn svo sleip-
ur leikstjóri og er svo fljótur að
læra á mann að mér finnst eins
og við höfum verið félagar allt
frá grunnskólaaldri.“
GERIST RÍKISSTARFSMAÐ-
UR
Í vetur hyggst Alexander meðal
annars leggja land undir fót
og ferðast ásamt vini sínum til
Suður-Ameríku. Áfangastaður-
inn er þó ekki endanlega ákveð-
inn en hann kveðst spenntast-
ur fyrir Mið- og Suður-Ameríku.
„Okkur langaði til að upplifa
jól og áramót á nýjum stað, en
það mun ekki ganga upp því ég
þarf að koma fyrr heim svo ég
missi ekki af frumsýningunni
sem verður annan í jólum.“ Al-
exander mun einnig hefja störf
hjá Sjónvarpinu í haust og verð-
ur því ríkisstarfsmaður um hríð.
„Ég verð að leika á bak við tjöld-
in í Stundinni okkar. Ég leik tvær
sokkabrúður sem verður ábyggi-
lega mjög gaman. Það var verið að
hanna þær síðast þegar ég kíkti
uppeftir en ég fékk tvær æfinga-
brúður með mér heim,“ segir Al-
exander sem er öllum hnútum
kunnugur í Sjónvarpshúsinu því
móðir hans starfar sem útvarps-
maður hjá Rás 1. „Ég er algjört út-
varpsbarn og Útvarpshúsið er mitt
annað heimili og hefur alltaf verið
það.“
SYNGUR Í SÍMANN
Alexander hefur verið að gera
góða hluti sem söngvari hljóm-
sveitarinnar Soundspell, en sveit-
in gaf út plötuna An Ode to the
Umbrella fyrir þremur árum.
Hann segist hafa skoðað ýmis
tónlistartengd verkefni und-
anfarna mánuði og telur nokk-
uð víst að einhver tónlist komi
frá honum á næstunni. „Sound-
spell voru síðast í stúdíói í jan-
úar þar sem við tókum upp nokk-
ur lög sem við vorum allir ánægð-
ir með en við höfum ekkert gert
við. Það er þó ekki vegna leti,“
segir Alexander. „Ég hef verið
að skoða ýmis tónlistarverkefni
síðustu mánuði og ég er nokk-
uð viss um að það komi eitthvað
frá mér í vetur þó það verði ekki
endilega með Soundspell.“ Ertu
þá að grúska einn? „Nei, mér
finnst skemmtilegra að grúska
með öðrum. Það getur verið svo-
lítið erfitt að semja einn þegar
maður er söngvari sem kann ekki
á hljóðfæri. Ég hef reyndar tekið
upp heilu sinfóníurnar á símann
minn en það er sjaldnast hægt að
gera mikið við það,“ segir hann
að lokum og hlær.