Fréttablaðið - 16.07.2010, Side 6
6 16. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
MANNFJÖLDI Fólksfjöldi á Íslandi
breyttist lítið á öðrum fjórð-
ungi ársins. Í lok júní bjuggu
317.900 manns á landinu, sam-
kvæmt nýjum tölum frá Hag-
stofu Íslands. Þar af voru 21.100
erlendir ríkisborgarar.
Um 1.200 börn fæddust á
fyrstu þremur mánuðum ársins,
en 530 einstaklingar létust. Um
710 fleiri fluttu frá landinu en til.
Meirihlutinn voru einstaklingar
með erlent ríkisfang, en um 160
fleiri Íslendingar fluttu frá land-
inu en til, flestir til Noregs. - bj
Fólksfjöldi stendur í stað:
Fleiri flytja frá
Íslandi en til
EFNAHAGSMÁL Fall Aska Capital mun ekki hafa nein
áhrif á tryggingafélagið Sjóvá, en félagið sér fram
á tap vegna falls Avant, dótturfélags Aska. Óvíst er
hversu mikið tapið verður.
Ólafur Njáll Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjár-
málasviðs Sjóvár, segir félagið þola það áfall, og
viðskiptavinir þurfi ekki að óttast að félagið sé að
fara í þrot, og málið muni engin áhrif hafa á þá.
Eins og Fréttablaðið greindi frá á miðvikudag
bjargaði ríkissjóður Sjóvá frá falli í fyrra með
kaupum Seðlabankans á 73 prósenta hlut í félag-
inu. Kaupverðið var 11,6 milljarðar, 6,2 milljarð-
ar í formi bréfa í Öskum Capital og 2,9 milljarðar
í formi bréfa í Avant. Bæði félögin eru nú komin í
þrot.
Skuldabréf Aska eru tryggð með bréfum sem eru
með ábyrgð ríkissjóðs, og mun fall Aska ekki hafa
nein áhrif á Sjóvá, segir Ólafur. Félagið muni ekki
fara undir lágmörk Fjármálaeftirlitsins þrátt fyrir
að Askar hafi farið í þrot.
Skuldabréf Avant eru tryggð með öðrum hætti,
og verður gengið í að innheimta þær tryggingar,
segir Ólafur. Hann segir óvíst hversu mikið tap
félagsins vegna þessa geti orðið, en stærstu eigend-
ur Sjóvár ábyrgist að félagið muni standast skil-
yrði Fjármálaeftirlitsins um eigið fé og gjaldþol
með því að leggja Sjóvá til aukið fé ef þörf krefji.
- bj
Óvíst hversu miklu Sjóvá mun tapa vegna 2,9 milljarða króna bréfa í Avant:
Óttast ekki að Sjóvá fari í þrot
SJÓVÁ Seðlabankinn lagði fram bréf í Öskum Capital og dótt-
urfélagi þess, Avant, til að fjármagna Sjóvá eftir að félagið var
endurreist á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Daniel Hannan
á hádegisfundi
Heimdallar
Allir velkomnir – nánar á xd.is & frelsi.is
Í dag, föstudaginn 16. júlí, kl. 12.00 í
Antares-salnum í Háskólanum í Reykjavík.
Hannan er í breska Íhaldsflokknum og er
þingmaður á Evrópuþinginu. Hannan ræðir
Icesave-deiluna, málefni Evrópusambandsins,
stöðu Íslands í samningaviðræðum við
sambandið og hvernig hugsanlegur
aðildarsamningur muni líta út.
Daniel Hannan
Sjálfstæðisflokkurinn
Ætlar þú í tjaldútilegu í sumar?
Já 37,%
Nei 62,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú sótt kvikmyndahús í
sumar?
Segðu þína skoðun á visir.is
DÓMSMÁL „Ég missi ekki svefn út
af þessu,“ segir Steinunn Guð-
bjartsdóttir, formaður slita-
stjórnar Glitnis, um þau orð
Jóns Ásgeirs Jóhannesson-
ar að hann hyggist höfða
meiðyrðamál á hendur henni
vegna meintra lyga í eið-
svörnum yfirlýsingum fyrir
dómstólum.
Fréttablaðið náði ekki
tali af Jóni Ásgeiri í gær
en í samtali við fréttastofu
Stöðvar 2 sagðist hann jafn-
framt ætla að krefjast
kyrrsetningar á eign-
um Steinunnar hjá
sýslumanninum
í Reykjavík
þar til niður-
staða fengist
í meiðyrða-
málið.
„Þetta
kemur svo
sem ekki
á óvart,“
segir Stein-
unn. „Það er
greinilegt að
hann er ósáttur við
það sem við erum að
gera en það eina sem
ég er að gera er að
sinna skyldum mínum
í slitastjórn Glitnis
við að grípa til þeirra
aðgerða sem ég tel
að séu nauðsyn-
legar. Honum
er náttúrlega
frjálst að gera
það sem hann
vill – ég kippi
mér ekki upp
við það.“
Aðspurð
segist Stein-
unn ekki
te lja a ð
hún hafi að
neinu leyti
farið yfir strikið í eiðsvörnum
yfirlýsingum sínum fyrir dómi í
London og New York. Henni virðist
sem málið snúist fyrst og fremst
um tölvupóst með yfirliti yfir inni-
stæður Iceland Foods. „Og ég hef
aldrei fullyrt að þessar innistæður
hafi tilheyrt honum,“ segir hún.
Jón Ásgeir sagðist í viðtali við
Fréttablaðið í gær ætla að áfrýja
alheimskyrrsetningu eigna sinna
þrátt fyrir að dómari hafi hafnað
beiðni hans um áfrýjun fyrir viku.
„Mér skilst að hann geti óskað eftir
áfrýjunarleyfi og það er síðan dóm-
arans að ákveða hvort hann veitir
það,“ segir Steinunn. „Dómarinn
var hins vegar býsna skýr hvað
þetta varðaði og það hefur ekkert
nýtt komið fram sem ætti að breyta
þeirri afstöðu. Þetta mál með þenn-
an tölvupóst breytir engu í þessu
samhengi.“
Spurð um kostnað slitastjórnar-
innar við málaferlin segist Stein-
unn engar tölur geta gefið upp.
„En það sem við höfum þegar end-
urheimt á grundvelli rannsóknar
Kroll er að minnsta kosti tvöfalt
það sem við höfum varið í rann-
sóknina og málaferlin,“ segir Stein-
unn. „Við teljum ljóst að það sé vel
þess virði að eyða púðri í það að
leitast við að endurheimta verð-
mæti og að okkur muni takast að
endurheimta mun hærri fjárhæðir
í gegnum þetta.“
stigur@frettabladid.is
Steinunn missir ekki svefn
yfir áformum Jóns Ásgeirs
Formaður slitastjórnar Glitnis óttast ekki málshöfðun Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem ætlar að krefjast
kyrrsetningar á eignum hennar. Rannsókn Kroll hefur þegar skilað tvöfalt meira fé en hún kostaði Glitni.
Fasteign í London í eigu Jóns Ásgeirs var seld einum degi
áður en slitastjórn Glitnis lagði fram kyrrsetningarbeiðni
þar ytra í maí síðastliðnum, að því er fram kom í Morg-
unblaðinu í gær. Söluverðið var um 1,5 milljónir punda,
eða um 290 milljónir íslenskra króna, sem er meira en
andvirði allra þeirra eigna sem Jón Ásgeir hefur gefið upp
til kyrrsetningar.
Í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í gær sagðist Jón
Ásgeir hafa selt fasteignina vegna eignauppgjörs við
fyrrverandi eiginkonu sína. Eignin hefði verið sett á sölu
hinn 10. nóvember 2009 og að eins og allir vissu tæki
það þrjá til fjóra mánuði að ljúka sölu á fasteignum í
Bretlandi. Það hafi bara viljað svo til að sölunni hefði
verið lokið degi fyrir kyrrsetningarbeiðnina.
Steinunn Guðbjartsdóttir sagði í samtali við Frétta-
blaðið í gær að málið væri í skoðun hjá slitastjórninni
eins og öll önnur en vildi ekki tjá sig um það að öðru
leyti. Spurð hvort henni þætti það trúverðug skýring að
tilviljun hefði ráðið því að salan hefði farið í gegn þenn-
an dag sagði hún sínar skoðanir á því ekki skipta máli.
„Það er ástæðulaust að ég sé að fabúlera um það. Ég
held að fólk verði bara að draga sínar ályktanir sjálft.“
Seldi fasteign í London degi fyrir kyrrsetningarbeiðni
Honum er náttúrlega frjálst að gera
það sem hann vill – ég kippi mér ekki
upp við það.
STEINUNN GUÐBJARTSDÓTTIR
FORMAÐUR SLITASTJÓRNAR GLITNIS
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON STEINUNN GUÐBJARTSDÓTTIR
FILIPPSEYJAR, AP Að minnsta kosti
26 eru látnir eftir að flóðbylgja
skall á eyjunni Luzon á Fil-
ipps eyjum, á miðvikudag. 38 til
viðbótar er saknað.
Meira en helmingur eyjunnar,
þar á meðal höfuðborgin Man-
illa, er nú án rafmagns og er talið
að það taki nokkra daga að koma
því í lag. Tugum fluga var aflýst
og skólum og opinberum stofn-
unum lokað. Þá lést ein kona í
Japan og þriggja er saknað eftir
gríðarlega vont veður þar. Um tíu
þúsund manns þurftu að yfirgefa
heimili sín þar. - þeb
Slæmt veður í Asíu:
Flóðbylgja varð
26 að bana
VESTFIRÐIR Bæjarstjórn Vestur-
byggðar óttast að sú ráðstöfun
dómsmálaráðherra að fela sýslu-
manninum á Patreksfirði emb-
ættið á Ísafirði með aðalbæki-
stöðvar þar í eitt ár sé undanfari
þess að embættið á Patreksfirði
verði lagt niður.
„Umdæmi sýslumannsins á
Patreksfirði, það er Vesturbyggð
og Tálknafjarðarhreppur, er
mjög einangrað svæði. Samgöng-
ur á milli þessara svæða liggja
niðri hluta úr ári. Því er nauðsyn-
legt að í Vesturbyggð sé starfs-
stöð með góðri þjónustu og að þar
starfi lögfræðingur,“ segir bæj-
arstjórnin. - gar
Ósátt við dómsmálaráðherra:
Óttast að missa
sýslumanninn
PATREKSFJÖRÐUR Sýslumaðurinn á Patr-
eksfirði á að bæta við sig embættinu á
Ísafirði og hafa aðalbækistöð þar.
STJÓRNSÝSLA Fjármálaráðuneyt-
ið braut lög með því að semja ein-
hliða um kaup á flugfarmiðum af
Icelandair í maí í fyrra. Þetta segir
kærunefnd útboðsmála.
Iceland Express kærði fjármála-
ráðuneytið vegna samningsins við
Icelandair og krafðist skaðabóta.
Kærunefndin segir hins vegar
að þótt ráðuneytið hafi ekki sinnt
útboðsskyldu sinni hafi Iceland
Express ekki sýnt fram á að fyrir-
tækið hafi átt raunhæfa möguleika
á að verða valið af ráðuneytinu í
útboði. Þá hafi ráðuneytið komið
til móts við kröfu fyrirtækisins að
því leyti að það
hafi beint því til
Ríkiskaupa að
skoða möguleika
á að bjóða út inn-
kaupin á farmið-
unum.
Iceland
Express benti á
að kostnaður af
ferðum ráðherra
og starfsmanna
ráðuneyta á fyrstu fjórum mánuð-
um þessa árs hafi numið 280 millj-
ónum króna. Verulegur hluti þess
væri vegna farmiðakaupa.
Fjármálaráðuneytið fyrir sitt
leyti bar því meðal annars við að
ekki væri um svokallaðan ramma-
samning að ræða. Aðeins væri um
að ræða kaup á stökum farmiðum
í hvert skipti. Þessari skilgrein-
ingu hafnar kærunefndin. Þó ekki
sé hægt að leggja saman öll kaup
ríkisins á farmiðum hafi ráðuneytið
gert samning um afsláttarkjör fyrir
hönd fjölmargra opinberra aðila og
því sjálft hlotið að hafa metið það
sem svo að um samlegðar áhrif væri
að ræða. Í samræmi við útboðs-
skyldu og jafnræðisreglu laga hafi
átt að bjóða viðskiptin út. - gar
Kærunefnd útboðsmála gagnrýnir samning fjármálaráðuneytisins við Icelandair:
Bar að bjóða út kaup á flugfarmiðum
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
KJÖRKASSINN