Fréttablaðið - 25.08.2010, Blaðsíða 4
4 25. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
31°
30°
20°
17°
23°
24°
17°
17°
24°
18°
31°
26°
34°
19°
24°
23°
17°Á MORGUN
3-8 m/s
um allt land.
FÖSTUDAGUR
Hægviðri
víðast hvar.
11
9
7
10
8
8
7
11
12
14
7
6
7
3
8
3
5
6
9
3
4
3
10
6 8
7
11 11
8 7
8
10
HÆGVIÐRI Litlar
breytingar verða
á veðrinu fram að
helgi. Vindur verð-
ur fremur hæg-
ur og að mestu
norðlægur. N- og
NA-til verður skýj-
að á köfl um, væta
á stöku stað og
heldur svalt. Besta
veðrið verður S- og
SV-lands, bjart að
mestu og hitinn
ágætur.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
SAMGÖNGUR Vestmanneyingar vilja
að ferðum Herjólfs milli Eyja og
Landeyjahafnar verði fjölgað.
Einungis er mánuður frá því að ný
Landeyjahöfn var tekin í notkun
og ferðum var fjölgað verulega en
bæjarstjóri Vestmannaeyja segir
að skipið anni ekki eftirspurn að
óbreyttu.
Um síðustu mánaðamót gekk
í gildi ný Evrópureglugerð sem
leiðir til þess að Herjólfi er nú
aðeins leyfilegt að flytja 399 far-
þega í hverri ferð í stað 520 far-
þega áður, segir Elliði Vignisson
bæjarstjóri.
Síðastliðinn mánuð hafa 60.000
farþegar siglt milli lands og Eyja.
Allt árið á undan voru farþegarn-
ir 127.000 talsins á tólf mánuðum.
Farþegafjöldinn síðasta mánuð
jafngildir því helmingi farþega-
fjölda alls síðasta árs. „Skipið ber
ekki nóg til að núverandi áætlun
dugi,“ segir Elliði. „Það er ein-
göngu ein leið fær og það er að
fjölga ferðum.“
Nú eru farnar þrjár til fimm
ferðir daglega, flestar um helgar
en fæstar í byrjun viku. Næsta
laugardag á 300 manna hópur
pantað far með fyrstu ferð dags-
ins, að sögn Elsu Valgeirsdóttur,
framkvæmdastjóra Golfklúbbs
Vestmannaeyja. Þetta leiðir til
þess að 100 manna hópur sem var
búinn að panta rástíma á Golfvelli
Vestmannaeyja að morgni laugar-
dagsins kemst ekki út í Eyjar.
Elsa segir að það sé bagalegt
fyrir ferðaþjónustuaðila í Eyjum
hve seint siglingar skipsins hefjist
um helgar. Fyrsta ferð er klukk-
an níu um helgar en klukkan hálf-
átta virka daga. Best væri að ferð-
ir væru á sama tíma um helgar og
virka daga.
Elliði segir að Eyjamenn vilji
bara að ferðirnar anni eftirspurn,
ekkert umfram það. „Orðræðan í
gegnum tíðina hefur verið sú að
siglingar Herjólfs séu eitthvert
einkamál okkar Eyjamanna. Nýt-
ingartölur fyrsta mánuðinn eftir
að Landeyjahöfn kom til sýnir að
notendurnir eru í hverfandi mæli
Eyjamenn. Þessir 60.000 farþegar
eru að mestu leyti Íslendingar sem
eru að nota skipið sér til skemmt-
unar og ánægju.“
„Ég er mjög bjartsýnn á að við
fáum aukaferð á laugardag,“ segir
bæjarstjórinn. „Og ég er bjartsýnn
á að samgönguyfirvöld komi til
móts við okkur og sjái að það er
brýn þörf á að endurskoða áætl-
unina.“
peturg@frettabladid.is
Eyjamenn vilja
fleiri ferðir Herjólfs
Á einum mánuði hafa 60.000 farþegar siglt til Eyja. Ný reglugerð takmarkar
fjölda farþega sem Herjólfur getur flutt í hverri ferð. Færri komast til Eyja en
vilja um næstu helgi. Bæjarstjóri Vestmannaeyja vill fjölga áætlunarferðum.
HERJÓLFUR Landeyjahöfn hefur dregið gríðarlegan fjölda ferðamanna til Eyja. Fyrir
kemur að heimamenn komist ekki með skipinu um helgar vegna ásóknar ferða-
manna. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ÞJÓÐKIRKJAN Helmingur ríkis-
stjórnarinnar vill aðskilnað ríkis
og kirkju. Jóhanna Sigurðardótt-
ir forsætisráðherra sagðist íhuga
að segja sig úr þjóðkirkjunni á
blaðamannafundi að loknum rík-
isstjórnarfundi í gær en vildi þó
ekki gefa upp hvort það væri í
ljósi atburða síðustu daga. Forsæt-
isráðherra vill vinna að aðskilnaði
ríkis og kirkju, líkt og Steingrím-
ur J. Sigfússon fjármálaráðherra,
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, Össur
Skarphéðinsson utanríkisráð-
herra, Gylfi Magnússon, efna-
hags- og viðskiptaráðherra, og
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð-
herra.
Hvorki utanríkisráðherra né
mennta- og menningarmálaráð-
herra eru skráð í þjóðkirkjuna.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð-
herra og Gylfi Magnússon efna-
hags- og viðskiptaráðherra eru
það hins vegar bæði og segjast
hvorugt hafa íhugað að skrá sig
úr henni.
Kristján L. Möller, samgöngu-
og sveitarstjórnarráðherra, vildi
ekki svara spurningum blaða-
manns um efnið.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, og Ragna
Árnadóttir, dómsmála- og mann-
réttindaráðherra, vilja bæði halda
ríki og kirkju sameinuðum.
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðis-
ráðherra segir spurninguna varða
hennar einkamál og vildi ekki gefa
upp hvort hún sé skráð í þjóðkirkj-
una. Árni Páll Árnason, félags- og
tryggingamálaráðherra, er hlynnt-
ur sjálfstæði kirkjunnar. Árni Páll
hefur ekki íhugað að skrá sig úr
þjóðkirkjunni.
Svandís Svavarsdóttir umhverf-
isráðherra segist hafa efasemdir
um aðskilnað en hún hafi reglu-
lega íhugað að skrá sig úr þjóð-
kirkjunni. - sv
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur íhugað að segja sig úr þjóðkirkjunni:
Sex ráðherrar vilja aðskilnað ríkis og kirkju
ÚRSAGNIR HJÁ ÞJÓÐSKRÁ Hundruð
hafa lagt leið sína til Þjóðskrár á síðustu
tveimur dögum til að skrá sig úr þjóð-
kirkjunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMGÖNGUMÁL Um 80 þúsund far-
þegar nýttu sér strætó á menn-
ingarnótt um síðustu helgi. Það er
með því mesta sem almenningsfar-
artæki á Íslandi hafa flutt á einum
degi frá upphafi.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Strætó, en ferðum var fjölgað
og ókeypis var í strætisvagna allan
daginn. Þar segir að akstur strætó
hafi gengið mjög vel og eftir því
hafi verið tekið hversu jákvæðir
farþegar voru og duglegir að nýta
sér þjónustuna. Álagið hafi því
verið minna á götur og bílastæði
borgarinnar. - þeb
Metfjöldi á menningarnótt:
Áttatíu þúsund
tóku strætó
STRÆTÓ Áttatíu þúsund farþegar fóru
með strætisvögnum á menningarnótt,
sem er með því mesta sem verið hefur
á einum degi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Það er eingöngu ein
leið fær og það er að
fjölga ferðum.
ELLIÐI VIGNISSON
BÆJARSTJÓRI VESTMANNAEYJA
Ágangur kinda við sumarhús
Skógræktargirðing hjá Stapaseli í
Borgarfirði er í slæmu ástandi og það
hefur leitt af sér ágang fjár við sum-
ar hús hjá Stóru-Skógum og nágrenni.
Afréttarnefndin á svæðinu segir að
auk þess gangi illa að hafa uppi á því
fé sem komið sé inn fyrir skógræktar-
girðinguna.
BORGARFJÖRÐUR
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest úrskurð héraðsdóms um
áframhaldandi gæsluvarðhald
yfir tveimur mönnum sem dæmd-
ir voru fyrir stórfelldan fíkniefna-
innflutning í sumar.
Mennirnir, Davíð Garðarsson
og Guðlaugur Agnar Guðmunds-
son, voru dæmdir í fjögurra og
hálfs árs fangelsi hvor fyrir aðild
að smygli á 1,6 kílóum af kókaíni.
Þeir áfrýjuðu dómnum til Hæsta-
réttar. Auk þeirra voru þrír aðrir
dæmdir vegna málsins.
Ríkissaksóknari setti fram
kröfu um að Davíð og Guðlaug-
ur yrðu hafðir í gæsluvarðhaldi á
meðan málið væri til meðferðar
fyrir Hæstarétti og var orðið við
henni. - jss
Hæstiréttur staðfestir úrskurð:
Kókaínsmygl-
arar áfram í
gæsluvarðhaldi
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
líkamsárás.
Manninum er gefið að sök að
hafa kýlt mann í andlitið svo sá
síðarnefndi féll í gangstéttina og
kinnbeinsbrotnaði. Að auki bólgn-
aði hann, marðist og hruflaðist í
andliti og tognaði í baki og mjöðm.
Atvikið átti sér stað við
skemmtistaðinn Apótekið í
Reykjavík í janúar á síðasta ári.
Þess er krafist að ofbeldismað-
urinn greiði tæpar 600 þúsund
krónur í miskabætur til handa
fórnarlambinu. - jss
Ákærður fyrir líkamsárás:
Kýldi mann og
kinnbeinsbraut
Sextíu milljóna lán
Bæjarstjórn Stykkishólms hefur sam-
þykkt að taka 60 milljóna króna lán
hjá Lánasjóði sveitarfélaga til að fjár-
magna framkvæmdaáætlun bæjarins
á þessu ári. Lánið ber 4,57 prósenta
vexti og er til fjórtán ára.
STYKKISHÓLMUR
Hraðinn ekki aukinn
Bæjarráð Stykkishólms vill ekki
að hámarkshraði ökutækja þar í
bæ hækki úr 35 í 40 kílómetra á
klukkustund eins og Vegagerðin bað
bæjaryfirvöld að íhuga.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 24.08.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
207,8148
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
120,87 121,45
186,11 187,01
152,37 153,23
20,454 20,574
19,189 19,303
16,191 16,285
1,4311 1,4395
181,94 183,02
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR