Fréttablaðið - 25.08.2010, Qupperneq 18
25. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR2
LAERA.IS er vefsíða þar sem hægt er að finna upplýsingar um
og skrá sig á hin ýmsu námskeið. Næstu námskeið eru meðal
annars Markaðssetning á Netinu og Photoshop fyrir byrjendur.
Erla Björk Steinarsdóttir hóf
kennslu í grunnskóla árið 1979
og eftir að hafa fylgst með
grunnskólum seinni árin, fannst
henni mikið vanta upp á að börn
fengju næga örvun og atlæti í
skólakerfinu. Nú í ágúst fór Erla
af stað með námskeið fyrir börn á
aldrinum 4-9 ára sem þurfa og vilja
meira en þau fá í skólakerfinu og
kallast það Snillingarnir.
„Forsagan að þessum nám-
skeiðum er löng. Síðustu árin mín
í kennslunni fylgdist ég með því
hvernig nýjar og mismunandi stefn-
ur komu inn í grunnskólana, með
misgóðum árangri fyrir skólastarf-
ið. Sumt í þessum stefnum, sem oft
eru teknar erlendis frá, er gott en
margt hefur ekki hentað börnunum
og þau ekki fengið það út úr þessum
mótandi árum í skólanum sem þau
gætu fengið,“ segir Erla.
Erla bætir við að þar sé vilja
kennara ekki um að kenna, sem
séu duglegir og vilji sinna starfinu
sínu vel. „Í dag starfar svokallaður
grunnskóli án aðgreiningar, þar
sem kennslan á að miðast fyrir
allan hópinn í heild, en til að geta
keyrt skóla á þeim forsendum
þyrfti meira fjármagn inn í
skólakerfið og fækka í bekkjum. Ég
lagði kennsluna á hilluna sem fast
starf fyrir nokkrum árum en sinnti
forfallakennslu síðasta vetur og
mér var virkilega brugðið þar sem
greinilegt var að niðurskurðurinn
var farinn að bitna á þjónustu
við börnin. Í hverjum bekk er
orðið miklu meira um börn sem
þurfa á mikilli aðstoð að halda
og stuðningsfulltrúar duga þar
ekki til þar sem bekkirnir eru svo
fjölmennir. Einnig má nefna að
börn geta ekki fengið sérstakan
stuðning í stærðfræði fyrr en í
þriðja bekk og það er of seint fyrir
marga.“
Námskeiðin sem Erla stendur
fyrir, heima hjá sér í Hverafold í
Grafarvogi, eru sem fyrr segir
bæði fyrir leikskóla- og grunn-
skólabörn. Námskeiðin eru hugs-
uð fyrir duglega krakka sem vilja
meira út úr náminu. Einnig eru
námskeiðin hugsuð fyrir börn sem
hafa annað móðurmál en íslensku
og þurfa stuðning í íslenskunni.
„Mér finnst svo mikilvægt, á þessu
skeiði, frá fæðingu og til níu ára
aldurs, þar sem börn sanka stöðugt
að sér upplýsingum, að tíminn sé
vel nýttur og það er sárt ef þjóðfé-
lagsástandið kemur í veg fyrir það.
Þessi námskeið eru svo bara eitt
námskeiðsform í viðbót við íþrótt-
ir og tónlistarnám, söng, myndlist-
arnám og slíkt, fyrir krakka sem
vilja styrkja sig á þessu sviði.“
Yngstu börnin eru fjórar vikur í
senn á námskeiði, fjóra daga vik-
unnar, hálftíma á dag. Þá er farið
yfir stafina og þau þjálfuð í teng-
ingu á þeim. „Þetta reynist þeim
gott veganesti þegar þau koma inn
í skólana. Önnur námskeið, svo sem
fyrir 1.-3. bekk, eru lengri en einnig
er boðið upp á einkatíma. Í byrjun
mun ég einskorða námskeiðin við
lestur og stærðfræði en síðar hef
ég áhuga á að bæta fleiri fögum við.
Eflaust mun fleira bætast við enda
finn ég mikinn áhuga fyrir þess-
um möguleika.“ Heimasíða nám-
skeiðanna er www.snillingarnir.is
og einnig er síða á Facebook með
sama heiti. juliam@frettabladid.is
Námskeið fyrir
litla snillinga
Erla Björk Steinarsdóttir býður upp á sérhæfð námskeið í lestri og
stærðfræði fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri sem kallast Snilling-
arnir. Námskeiðin eru meðal annars ætluð bráðgerum börnum.
„Í hverjum bekk er orðið miklu meira um börn sem þurfa á mikilli aðstoð að halda
og stuðningsfulltrúar duga þar ekki til þar sem bekkirnir eru svo fjölmennir,“ segir
Erla Björk Steinarsdóttir sem stendur fyrir námskeiðunum Snillingarnir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1