Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 30
22 1. september 2010 MIÐVIKUDAGUR BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Jibbý, Nonni var valinn besti nem- andi í bekkn- um aftur! Kostirnir við skólanám í heimahúsi Heyrðu nú mig, ég hef ekki notað þessar í dágóðan tíma! Og það verður langt þangað til ég nota þær... Við erum komin. Já. Við sjáumst eftir klukku- stund! Ég elska þig! Hversu lengi hafa þau verið par? Mamma segir að við megum ekki byrja neinar setningar á „Mig lang- ar“, „Hvar er“ og „Ég get ekki“ það sem eftir lifir dags. Ok! En allar okkar setningar byrja á þessum orðum! Þetta verður laaaaaaaaaa- angur dagur. Þegar ég var ungur vann ég í tvö sumur í sumarskóla einum fyrir einhverf börn. Hófst sá stutti starfsferill brösuglega en samstarfsmönnum mínum þótti ég eiga erfitt með að kenna krökkunum góðar umgengnisreglur. Svo keyrði um þverbak þegar kollegar mínir sáu sig nauðbeygða til að kenna mér sjálfum eitt og annað um umgengni. MÉR var umhugað um að krakkarnir fengju að reyna sig í íþróttum og leikjum sem mest þeir máttu. Þær áherslur mættu síðan nokkurri andstöðu hjá samstarfs- mönnum og yfirmanni eftir að það varð að tæma eina almenningssundlaug eftir stutta veru okkar þar. ÉG UNDI því hag mínum illa og var eins og hálfdrættingur í starfsliðinu. Þá kemur þar um mitt sumar ný forstöðu- kona. Fylgdist hún grannt með í byrjun en gerði síðan breytingar á starf- seminni með það fyrir augum að nýta áhugasvið hvers starfs- manns. Einnig leysti hún upp ýmsan óþarfa ávana í starfslið- inu sem hreiðra vill um sig í hugsunarleysinu. FÉKK ég þá þann starfa að auka eftir fremsta megni íþróttaástundun og félagslíf krakkanna. Óhappið úr sund- lauginni varð ekki til að draga úr þeirri kröfu nýju forstöðukonunnar og varð það guðspjall hvers dags hjá mér eftir það að ryðja úr vegi þeim hindrunum sem verða á vegi einhverfs barns sem iðka vill íþróttir og tómstundir. FRAM að þessu hafði ég ekki fundið annan tilgang með lífinu en þann að fara í bæinn um helgar, gutla á gítar og reykja Lucky Strike. Með þessari nýju ábyrgð fór hins vegar að örla á lífsgleði og þá teygðist úr tilganginum. Á sömu lund fór með aðra starfsmenn og sumarskólinn tók miklum stakkaskiptum. NOKKRUM árum síðar fór þessi kona, hún Pála, á þinn fund. Erindið var ólíkt því sem hún átti við okkur í sumarskólan- um, og þó. Rétt eins og þar ætlaði hún að láta á dyggð ykkar reyna svo að því sem þrifist hafði á þínum „vinnustað“ yrði endanlega úthýst. ERINDI mitt með þessu bréfi er að hvetja þig til að taka Pálu eins og engli, engill þýðir einmitt sendiboði á grísku, og vittu hvort ekki fari fyrir þjóðkirkjunni eins og sumarskólanum í denn. E.S. Um haustið var ég búinn að læra að ganga almennilega um. Bréf til biskups

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.