Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 16
16 1. september 2010 MIÐVIKUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 M ögulega grillir nú í útlínur sáttar um fiskveiði- stjórnunina í starfshópi sjávarútvegsráðherra. Þar mun yfirgnæfandi meirihluti vera fyrir svokall- aðri samningaleið, eins og Fréttablaðið hefur sagt frá. Hún felur í sér fráhvarf frá fyrningarleiðinni, sem ríkisstjórnin lagði upp með, en gerir ráð fyrir að veiðiheim- ildum verði að stærstum hluta endurúthlutað til útgerðarinnar í sömu hlutföllum og nú, en á grundvelli samninga og komi gjald fyrir. Þannig verði undirstrikað að veiðiheimildirnar séu þjóðar- eign en ekki í einkaeigu og að kvótinn sé afnotaréttur, ekki eignarréttur. Sömuleiðis er þorri nefndar- manna á því að nauðsynlegt sé að setja skýrt ákvæði um þjóðareign á auðlindum í stjórnar skrána. Þar eru fulltrúar Landssambands íslenzkra útgerðarmanna þó undantekningin. Gagnrýnin á fiskveiðistjórnunarkerfið hefur einkum verið af tvennum toga. Annars vegar er gagnrýnt að útgerðarmenn hafi í upphafi fengið kvótann gefins og farið síðan með hann sem sína einkaeign, margir selt hann aftur og farið út úr greininni með milljarða í vasanum. Hins vegar hafa menn gagnrýnt frjálsa framsalið á kvótanum, aðallega út frá hagsmunum einstakra byggðarlaga, sem hafa misst frá sér kvóta. Nú er rætt um það að hluti af samningaleiðinni verði að fimm til tuttugu prósent kvótans fari í pott, sem úthlutað verði úr sam- kvæmt byggðasjónarmiðum eða öðrum félagslegum sjónarmiðum. Þá verði framsalið takmarkað með einhverjum hætti. Verði auðlindagjald hækkað með samningaleiðinni kemur það til móts við þá gagnrýni að útgerðin hafi fengið kvótann endur- gjaldslaust. Slík gjaldtaka, sem yrði ekki aðallega til málamynda, eins og verið hefur undanfarin ár, yrði þó að vera hluti af stærra samkomulagi um að allar atvinnugreinar sem nýta náttúru- auðlindir, þar á meðal orkugeirinn, greiði gjald fyrir afnotarétt- inn. Auðlindaákvæði í stjórnarskrá gengi í sömu átt. Um það ríkir í raun býsna breið samstaða meðal stjórnmálaflokkanna, sem hafa verið sammála um þörfina á slíku ákvæði þótt deilt hafi verið um orðalagið. Hinu verða menn að átta sig á að með því að takmarka fram- sal og taka stærri hluta kvótans frá til úthlutunar á grundvelli byggða- og félagslegra sjónarmiða, er dregið úr skilvirkni og hagkvæmni sjávarútvegsins í heild. Þannig er gengið erinda sér- hagsmuna einstakra byggðarlaga á kostnað heildarhagsmuna og sjávarútvegurinn gerður líkari þeirri ríkisstyrktu og félagslega reknu atvinnugrein, sem hann er í mörgum nágrannalöndum okkar. Út frá sjónarmiði útgerðarinnar ætti að vera skynsamlegt að fallast á hækkun auðlindagjaldsins og stjórnarskrárákvæðið, ef það mætti verða til þess að hagkvæmni fiskveiðistjórnarkerfisins yrði betur tryggð. HALLDÓR Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is Borgarmál Jón Gnarr borgarstjóri Daginn eftir frækilegan kosningasigur Besta flokksins fór ég í sund. Ég synti úr mér kosningastressið. Það er óneitanlega gaman að sveifla handleggjunum stjórn- laust svo klórblandað vatnið skvettist í allar áttir. Þegar ég var orðinn uppgefinn stökk ég fimlega upp úr lauginni og settist í heita pottinn. Potturinn var fullur af fólki. Allir voru búnir að heyra úrslitin og óskuðu mér til hamingju. Ég reyndi að sýnast hógvær og sagði að þetta væri nú bara heppni, flest atkvæðin hefðu verið svokölluð „óánægju- atkvæði“. Þá stóð upp gamall maður. Allir þögnuðu og horfðu á hann. Hann horfði skömmustulegur niður fyrir sig. Hann byrj- aði að tala. Í fyrstu muldraði hann. Það sem hann sagði var samhengislaust og ruglings- legt. Á milli komu langar þagnir. Hann var greinilega óvanur að tala í margmenni. Ein- hverjir byrjuðu að ræskja sig óþolinmóð- ir. Mér varð hugsað til Bandaríkjamanns- ins Dale Carnegie og hvort hann hefði ekki getað kennt þessum manni eitthvað. Ég hef ekki farið á námskeið hjá honum en er svo heppinn að fyrrverandi samstarfsmaður minn fór á slíkt námskeið og stóð sig svo vel að hann var heiðraður með pennagjöf. Þá var eins og gamli maðurinn læsi um þessa minningu í fjarrænu augnaráði mínu því skyndilega hætti hann að stama og muldra ofan í bringu sér. Hann leit upp og horfði nú ákveðið í augu mér og sagði hátt og snjallt: „Ég kaus Besta flokkinn!“ Undrunarkliður fór um pottinn. Einn af öðrum stóðu svo aðrir gestir pottsins upp og sögðu hið sama. Ég var orðlaus. Gamli maðurinn tók í hönd mér, hallaði sér upp að mér og hvíslaði í eyra mér. Í fyrstu átti ég erfitt með að greina orðaskil en svo átt- aði ég mig á því að hann var að segja mér frá bernsku sinni. Hann sagði frá því að foreldrar hans hefðu lagt mikla áherslu á að þau byðu hvert öðru góðan dag. Eftir að hafa sagt mér þetta settist hann aftur niður. En hann hafði haft áhrif á mig. Ég fór að velta því fyrir mér hvort við Reykvíking- ar værum hættir að kunna að bjóða hver öðrum góðan daginn. Þykir það kannski ekki lengur „kúl“? Ég veit það ekki. En ég veit að ef fátæk en lífsglöð bóndahjón sem búa á afskekktum bæ ásamt syni sínum, þar sem ekkert internet er eða 3G sam- band, geta verið kurteis við hvort annað og son sinn þá getum við það líka. Þess vegna ákvað ég að efna til „Góðan daginn“-dags- ins í dag, 1. september. Á „Góðan daginn“- daginn segjum við góðan daginn við alla sem við hittum og eflum þannig náunga- kærleikann í Reykjavík! Gleðilegan „Góðan daginn“-dag. Góðan daginn! Genginn af trúnni Það fréttist í gær að Björn Lomborg, tölfræðiprófessor og heimsþekktur talsmaður efasemdarmanna um alvarleika veðurfarsbreytinga af mannavöldum, sé genginn af trúnni. Breska blaðið Guardian sagði frá því að Lomborg vilji nú láta náttúr- una njóta vafans í loftslagsmál- um og setja stórfé í að finna leiðir til að draga úr hlýnun jarðar. Hún sé eitt alvarlegasta vandamál samtímans. Er þá fokið í flest skjól þeirra sem hafa viljað rökstyðja efasemdir um hlýnun jarðar með vísindalegum rökum. Hið sanna ástand heimsins Oft hefur verið vitnað í Lomborg í umræðum um loftslagsmál og náttúruvernd hér á landi af hálfu þeirra sem töldu ekki ástæðu til að hlusta á viðvaranir um loftslagsmál og umhverfismál. Það var Fiskifélag Íslands sem tók að sér fyrir nokkrum árum að gefa efasemdir Lomborgs um hlýnun af mannavöldum út á íslensku. Bók hans hét því kotroskna nafni: „Hið sanna ástand heimsins“. Ólíklegir bókaútgefendur Stjórnendur Fiskifélagsútgáfunnar voru þekktir fyrir flest annað en bókaútgáfu. Þar tóku sig saman Einar K. Guðfinnsson, síðar sjávarútvegs- ráðherra, Kristján Loftsson í Hval, Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Lands- sambands smábátaeigenda, Kristján Þórarinsson, stofnvistfræðingur LÍÚ, Gunnar Tómasson, útvegsmað- ur í Grindavík, að ógleymdum helstu forsvarsmönnum samtaka íslenskra sjómanna, eins og Helga Laxdal og Sævari Gunnars- syni. peturg@frettabladid.is Tillögur í mótun um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu: Grillir í sátt?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.