Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 4
4 1. september 2010 MIÐVIKUDAGUR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 28° 20° 18° 19° 20° 21° 18° 18° 24° 20° 27° 35° 33° 17° 22° 25° 17°Á MORGUN Strekkingur SV-til, annars mun hægari vindur. FIMMTUDAGUR 5-13 m/s. 16 13 13 16 15 15 14 14 18 12 8 12 5 8 7 5 2 2 3 3 3 4 14 15 20 20 17 18 2016 16 15 BONGÓBLÍÐA Þrátt fyrir að haust- ið sé gengið í garð þá verður sannköll- uð sumarblíða um norðan- og austan- vert landið næstu dagana og horfur á allt að 22°C. Á suðvesturhorninu verður hins vegar frekar leiðinlegt veður, strekkingur um tíma og væta. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður MENNTAMÁL Ríkisendurskoðun efast um að rekstrargrundvöll- ur sé fyrir Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs. Stofnunin segir að Keilir hafi varið hluta af ríkisframlagi til annarra náms- greina en um var samið. Fram- kvæmdastjóri Keilis er ósáttur við efni skýrslunnar og ekki síst fram- setningu hennar. Ríkisendurskoðun segir í skýrslu sinni að erfitt sé að meta faglegan árangur Keilis enda reynslan af starfsemi mennta- setursins lítil. Óumdeilt sé þó að Keilir hafi hleypt lífi í mennta- mál á Suðurnesjum og samfélagið á gamla flugvallarsvæðinu. Rík- isendurskoðun beinir tilmælum til Keilis í þremur liðum. Að Keili beri að tryggja eigið rekstrarör- yggi þar sem stjórnvöld séu ekki skuldbundin til að veita einka- skólum framlög af almannafé. Að tryggja að framlög ríkisins renni til umsam- inna verkefna og efla þurfi gæðastarf skól- ans. Sérstak- lega er nefnt að efla þurfi stærð- fræðikennslu og draga úr brottfalli nemenda. Á árunum 2007 til 2010 veitti ríkið Keili alls 685,7 milljónir króna í beinum og óbeinum fram- lögum. Í árslok 2009 nam uppsafn- aður halli af rekstri Keilis 136 milljónum króna en heildarskuld- ir voru um 463 milljónir. Hjálm- ar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, segir að Ríkisendurskoð- un kveði fastar að orði en ástæða sé til. „Það er látið í það skína að við séum að misfara með fé. Öfugt við það sem má skilja af lestri skýrslunnar þá hefur allt það fé sem Keilir hefur fengið runnið til námsbrauta. Þær námsbrautir eru allar viðurkenndar af opinberum aðilum, ýmist menntamálaráðu- neyti eða flugmálastjórn. Allt sem við höfum gert er uppi á borðum og ráðuneytið hefur hælt okkur fyrir frumkvæði. Á þeim nótum skrifaði ráðherra undir samning við Keili í maí og rammaði þar inn það starf sem hér er unnið.“ Hjálmar segir að margt í skýrsl- unni veki furðu. Ekki síst fram- setning skýrslunnar sem sé full af dylgjum. „Fyrirsagnir eru leið- andi og villandi. Setningar eins og „mikilvægt er að minna á að lögum samkvæmt eru stjórnvöld ekki skuldbundin til að veita einkaskól- um framlög af almannafé.“ Hjálm- ar langar að vita hverju Ríkisend- urskoðun er að koma á framfæri eða gefa í skyn. „Við gerðum sér- staklega athugasemd við þetta. Auðvitað eigum við að tryggja okkar rekstur. Það er skylda stjórnenda hvort sem um einka- eða ríkisskóla er að ræða. Þetta eru dylgjur og ekkert annað.“ Mikil umræða hefur verið um fjölda menntastofnana og mögu- lega þörf fyrir fækkun þeirra. Hjálmar segir Keili vettvang fyrir fjölda fólks sem ekki hefur fundið sig í skólakerfinu, enda sé námið bæði á framhalds- og háskóla- stigi. Í því liggi sérstaða skólans auk þess sem skólanum er ætlað að hafa samstarf við frumkvöðla og fyrirtæki á svæðinu. svavar@frettabladid.is Efast um rekstrargrundvöll Ríkisendurskoðun efast um rekstrargrundvöll menntasetursins Keilis og átelur notkun ríkisframlaga. Framkvæmdastjóri segir skýrsluna illa fram setta og fulla af dylgjum um reksturinn og faglegt starf. FRÁ MIÐNESHEIÐI Keilir er hluti af nýju samfélagi á gamla varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll þar sem eitt stærsta frumkvöðla- setur landsins er staðsett, orkurannsóknasetur, heilsuþorp og alþjóðlegt gagnaver. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HJÁLMAR ÁRNASON ÍRAK, AP Nouri al-Maliki, forseti Íraks, fagnaði því í gær að Írak væri orðið sjálfstætt og fullvalda ríki, nú þegar Bandaríkjaher er horfinn á braut. „Samskipti okkar við Bandaríkin eru komin á nýtt stig milli tveggja fullvalda ríkja, sem jafn- ræði er með.“ Frá og með deginum í dag taka bandarískir hermenn ekki leng- ur þátt í bardögum í Írak. Allar bardagasveitir þeirra eru farnar, þótt enn séu fimmtíu þúsund bandarískir hermenn eftir í land- inu. Þeir eiga að sjá um þjálfun og og ráðgjöf. - gb Bandaríkjaher frá Írak: Forseti Íraks fagnar fullveldi SVEITARSTJÓRNARMÁL Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur grennslast fyrir um áhuga mögulegra inn- lendra kaupenda að skuldabréfi á Geysi Green Energy vegna kaupanna á HS Orku. Uppreikn- að virði bréfsins er um sjö millj- arðar og er langstærsta peninga- lega eign bæjarfélagsins, sem á í töluverðum fjárhagskröggum og hefur ekki getað greitt af 1,8 milljarða erlendu láni sem fall- ið er í gjalddaga. Nú er unnið að færslu skuldabréfsins frá Geysi til Magma Energy. Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs, vill ekki tjá sig um til hvaða aðila hefur verið leit- að um hugsanleg kaup. Slíkar þreifingar séu þó ekki komnar á viðræðustig. Spurður hvort haft hafi verið samband við Fram- takssjóð Íslands segir Böðvar: „Þeir hafa verið að skoða hugs- anlega aðkomu að HS Orku og við höfum látið það ganga fyrir áður en við ræðum um hvort þeir vilja hugsanlega kaupa þetta skulda- bréf.“ Böðvar segir þó að engin sér- stök óvissa ríki um verðmæti bréfsins, þrátt fyrir mögu- legt inngrip stjórnvalda í kaup Magma á HS Orku. „Bréfið og skilmálar þess standa í sjálfu sér óhaggaðir,“ segir hann. Verði hins vegar komið í veg fyrir kaupin og Geysir ráði ekki við að greiða af bréfinu muni Reykja- nesbær einfaldlega eignast sinn hlut í HS orku að nýju. „Það getur auðvitað gerst, ef menn velta fyrir sér hinu versta.“ Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga sendir líklega bréf á verst stöddu sveitarfélög lands- ins í dag þar sem óskað er skýr- inga á stöðunni. - sh Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar vill frekar að Framtakssjóður Íslands kaupi í HS Orku en skuldabréf: Leitað að kaupendum að Magma-bréfinu BÖÐVAR JÓNSSON Hefur ekki gefið upp alla von um að 1,8 milljarða lánið gjald- fallna fáist endurfjármagnað. FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL NOURI AL-MALIKI Auðvitað eigum við að tryggja okkar rekstur. Það er skylda stjórn- enda hvort sem um einka- eða ríkisskóla er að ræða. HJÁLMAR ÁRNASON FRAMVÆMDASTJÓRI KEILIS ORKUMÁL HS Orka tapaði tæplega tveimur milljörðum króna á fyrri hluta ársins. Á sama tíma á síðasta ári skilaði HS Orka 612 milljóna króna hagnaði. Meðal ástæðna fyrir tapinu nú, og eru tíundaðar á heimasíðu fyrirtækisins, er talsverð lækkun á álverði og þar með hafi fram- tíðarvirði álsölusamninga lækk- að um rétt rúma fjóra milljarða á tímabilinu. Þá hefur gengi krónunnar einn- ig haft áhrif. Hækkun krónunn- ar hefur valdið gengishagnaði sem nemur tæplega 600 milljón- um króna samanborið við tæpleg- an milljarð á sama tíma á síðasta ári. Rekstur HS Orku: Tapaði tveimur milljörðum AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is GENGIÐ 31.08.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 197,0312 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 120,53 121,11 185,8 186,7 152,92 153,78 20,538 20,658 19,073 19,185 16,318 16,414 1,4261 1,4345 181,83 182,91 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Söngfólk óskast! Kammerkór Mosfellsbæjar getur bætt við söngfólki í vetur. Fjölbreytt og áhugavert verkefnaval, m.a. Flamenco messa og þekktar söngperlur. htt p:/ /w ww .sim ne t.is /ka mm erk orm os/ Nánari upplýsingar í síma 895 7634 (Símon) og 899 6447 (María) Netfang: simoni@simnet.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.