Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 40
32 1. september 2010 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is > Tómas Joð í þriggja leikja bann Tómas Joð Þorsteinsson, leikmaður Fylkis, fékk þriggja leikja bann fyrir að ýta í Örvar Sæ Gíslason dómara í leiknum gegn KR í síðustu viku. Tómas fékk tvö gul spjöld með nokkurra sekúndna millibili og var orðinn ansi heitur þegar hann gekk að Örvari og ýtti í hann. Tómas sagði að um uppsafnaðan pirring hefði verið að ræða. Hann hefur þegar afplánað einn leikinn og getur aðeins tekið þátt í tveimur leikjum til viðbótar í sumar, gegn Haukum og KR. Samherjar hans, Kristján Valdimarsson og Valur Fannar Gíslason, voru dæmdir í eins leiks bann í gær. Lengi vel leit út fyrir að Alfreð Finnbogason væri á leið til Póllands. Félag þar í landi, Lechia Gdansk, var í viðræðum við Blika um að kaupa Alfreð. Félögin sendu tilboð sín á milli en á endanum var pólska félagið ekki tilbúið til að borga setta upphæð fyrir framherjann. „Ég er ekkert svekktur. Ég viðurkenni alveg að þetta var aldrei neinn draumastaður til að hefja atvinnumannaferilinn á,“ sagði Alfreð léttur. En hver er draumastaðurinn? „Manchester Unit- ed,“ sagði Alfreð strax, sposkur. Það gæti vel gerst enda United með öllu óútreiknanlegt í félagaskiptum, það keypti til að mynda nýlega framherja úr portúgölsku þriðju deildinni sem var áður heimilislaus, Bebe. „Ef maður lítur á þetta þannig er það alltaf hægt,“ sagði Alfreð. „Maður verður jú að eiga drauma,“ sagði Alfreð réttilega. Pólska félagið dró lappirnar að því er virðist og eðlilega hefði Alfreð ekki samið við félagið án þess að fara út og kanna aðstæð- ur. „Ég fékk eiginlega aldrei tækifæri til að skoða þetta frá Póllandi almennilega, félögin náðu ekki saman og það er lokapunkturinn. Maður verður samt ekkert nær afstöðu með því að lesa netið,“ sagði Alfreð. Framherjinn segir að það hafi alltaf verið áætlunin að klára tímabilið með Blikum og hann er ánægður að ná því. „Nú er bara að klára þetta með stæl. Þetta er í fyrsta skipti sem við eigum svona góðan möguleika á titlinum,“ segir Alfreð. Hann stefnir nú ótrauður á að komast út í janúar- glugganum á næsta ári. „Ég er ekkert að missa svefn yfir þessum hlutum. Góðir hlutir gerast hægt,“ segir Alfreð. Næsta verkefni hans er þó að fara með U21 árs landsliði Íslands til Tékklands í næstu viku. ALFREÐ FINNBOGASON: FÓR EKKI TIL PÓLLANDS Í ÆVINTÝRALEIT OG KLÁRAR TÍMABILIÐ MEÐ BLIKUM Pólland var aldrei draumastaðurinn FÓTBOLTI Jón Guðni Fjóluson mun halda til viðræðna við AEK frá Aþenu eftir tímabilið hér á landi. Félagið var í viðræðum við Fram í vikunni um kaup á Jóni Guðna en eftir þær var ákveð- ið að geyma viðræðurnar í bili. Þetta staðfestir þjálfari Fram, Þorvaldur Örlygsson. „Við ákváðum að bíða fram á haustið en viðræður munu halda áfram seinna. Það er ánægjuefni að Jón Guðni muni klára tímabil- ið með okkur, en einnig að leik- maður frá okkur skuli eiga mögu- leika á að komast að erlendis. En það er tími og staður fyrir allt, síðar meir munum við finna tíma fyrir þetta,“ sagði Þorvaldur. - hþh Jón Guðni Fjóluson: Fer í viðræður við AEK Aþenu ÖFLUGUR Jón fer væntanlega í atvinnu- mennsku í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Óhætt er að segja að ekki sé slegist um miða á lands- leik Danmerkur og Íslands í undankeppni EM sem fram fer á Parken í Kaupmannahöfn næsta þriðjudag. „Það er búið að selja um 15 þúsund miða á leikinn og ég tel ekki möguleika á að það verði uppselt á hann,“ segir Suzanne Aabo hjá danska knattspyrnu- sambandinu en Parken tekur 38 þúsund manns í sæti. Síðast þegar Danmörk og Ísland mættust í undankeppni á Parken voru 15.393 áhorfendur. Það hefur gerst ellefu sinnum að Danmörk hefur leikið leik í undankeppni fyrir framan færri en 20 þúsund manns. Aabo býst ekki við tólfta skiptinu á þriðju- dag. „Ég vonast til að áhorfenda- fjöldinn á leiknum verði milli 25.000 og 28.000,“ segir Aabo. - egm Miðasala á Parken: Ísland trekkir ekki að á Parken STUÐNINGSMENN Það gengur illa að selja miða á Parken. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Stjarnan vann öruggan sigur á Fylki í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í gær. Stjörnustúlk- ur skoruðu fimm mörk gegn engu í Árbænum. Katie McCoy og Inga Birna Friðjónsdóttir skor- uðu báðar tvö mörk en eitt marka Stjörnunnar var sjálfsmark. Með sigrinum er Stjarnan komin með 25 stig og komst því upp fyrir Fylki í fjórða sæti deildarinnar. - hþh Pepsi-deild kvenna í gær: Fimm stjörnu sigur í Árbæ Leikmaður Tímabil Leikir/mörk Bjarni Guðjónsson 2000-2003 (161 leikur, sautján mörk) Brynjar Björn Gunnarsson 1999-2003 (161 leikur, nítján mörk) Tryggvi Guðmundsson 2005 (enginn leikur) Þorvaldur Örlygsson 1993-1995 (102 leikir, 21 mark) Lárus Orri Sigurðsson 1994-1999 (228 leikir, sjö mörk) Einar Örn Daníelsson 1999-2000 (8 leikir, eitt mark) Þórður Guðjónsson 2004-2005 (tveir leikir, ekkert mark) Arnar Gunnlaugsson 2000-2002 (22 leikir, fimm mörk) Birkir Kristinsson 2000-2001 (18 leikir) Pétur Marteinsson 2001-2003 (18 leikir, tvö mörk) Sigursteinn Gíslason 1999-2000 (átta leikir, ekkert mark) Ríkharður Daðason 2000-2002 (42 leikir, 11 mörk) Hannes Þ. Sigurðsson 2005-2006 (29 leikir, 1 mark) Stefán Þórðarson 2000-2002 (65 leikir, 11 mörk) 1994-1995 var Lárus Orri valinn leikmaður tímabilsins og Brynjar Björn tímabilið 2000-2001. Guðjón Þórðarson stýrði liðinu frá 1999 til 2002. Íslendingar hjá Stoke FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen gekk frá eins árs löngum lánssamn- ingi við Stoke seinni partinn í gær, rétt áður en félagaskiptagluggan- um lokaði á Englandi. Hann verð- ur því án félags eftir tímabilið þar sem hann verður þá samningslaus hjá Monaco. Eiður spilaði aðeins níu leiki fyrir franska félagið, sex í byrjunarliðinu. Samkvæmt fréttum frá Eng- landi í gær gekk erfiðlega hjá Eiði og Monaco að ganga frá samning- um um launamál. Eiður er talinn fá um 75 þúsund pund í vikulaun frá Monaco en deilur um hvern- ig Stoke, eða eitthvert annað félag sem hefði áhuga á Eiði, og franska félagið ættu að skipta launagreiðsl- um á milli sín töfðu samninginn. Það var ekki fyrr en Eiður gaf eftir tíu þúsund pund, eða 1,8 milljónir króna, af vikulaununum að samningar náðust. Ekki náð- ist í Arnór Guðjohnsen, föður og umboðsmann Eiðs, til að fá nánari útskýringar á málinu. Hugsanlegt er að það sé ástæða þess að Eiður gekk ekki frá samn- ingum við neitt félag fyrr en á síð- asta degi gluggans. Hann flaug ekki til viðræðna hjá Stoke fyrr en í gær en var á Íslandi á mánu- daginn. Fjölmiðlafulltrúi Monaco neitaði að tjá sig um málið þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær- kvöldi. Saga Íslendinga hjá Stoke er mikil. Það var í eigu Íslendinga frá 1999 til 2006. Gunnar Gíslason var stjórnarformaður þess en það kostaði 6,6 milljónir punda. Guð- jón Þórðarson tók við félaginu og stýrði því í þrjú ár. Eiður verður fimmtándi Íslendingurinn til að spila með Stoke. „Ég er í skýjunum með að koma hingað. Þetta er ný áskorun fyrir mig, stór áskorun, en ég hlakka mikið til hennar,“ sagði Eiður á heimasíðu Stoke í gær. Eiður sagði að hann hefði rætt við stjórann, Tony Pulis, og sann- færst um að Stoke væri réttur kostur fyrir sig. „Eftir að hafa talað við hann um félagið og metnað þess sannfærði hann mig alveg og ég er virki- lega ánægður með að ganga frá þessu.“ Pulis sjálfur sagði að Eiður væri stórkostlegur fengur. „Eiður er magnaður leikmaður sem hefur staðið sig vel á meðal þeirra bestu. Það er hægt að benda á það með sigri Tottenham hérna í apríl þar sem hann skoraði meðal annars. Hann sýndi knattspyrnuheilann sem hann býr yfir og leikskilning- inn í hæsta gæðaflokki. Hann mun búa til fleiri mörk fyrir okkur,“ sagði Pulis. Eiður sagði sjálfur að hann myndi vel eftir andrúmsloftinu á Britannia-leikvangnum. „Ég get ekki beðið eftir því að byrja að spila. Stuðningsmennirnir hérna eru frábærir og ég man alltaf eftir andrúmsloftinu hérna. Ég skoraði hérna fyrir stuttu fyrir Tottenham, kannski skulda ég stuðningsmönn- unum þessvegna eitthvað. Vonandi get ég skorað nokkur mörk fyrir þá,“ sagði Eiður. „Ég er metnaðarfullur leikmað- ur og þetta er metnaðarfullt knatt- spyrnufélag. Ég vil hjálpa því að komast á næsta stig, það er mitt aðalmarkmið,“ sagði Eiður. Stoke hefur tapað öllum þremur leikjunum í deildinni, fyrir Stoke, Tottenham og Wolves. Félagið gekk í gær frá samningum við þrjá aðra leikmenn, Salif Diao, Jerma- ine Pennant og Marc Wilson. Eiður hefur á ferlinum leikið með Val, PSV Eindhoven, KR, Bolt- on, Chelsea, Barcelona, Monaco og Tottenham. Stoke er því níunda félag Eiðs sem verður 32 ára gam- all eftir tvær vikur. hjalti@frettabladid.is Eiður fórnar 1,8 milljónum á viku Eiður Smári Guðjohnsen gekk í gær í raðir Stoke frá Monaco á eins árs löngum lánssamningi. Eiður tók á sig launalækkun til að komast til Stoke. Hann verður fimmtándi Íslendingurinn til að spila með Stoke. MEÐ OG MÓTI Eiður er hér í leik með Tottenham gegn Stoke á síðasta tímabili. Hann skoraði einmitt í leiknum og gantaðist með það í gær að hann skuldaði stuðnings- mönnum Stoke mark í staðinn. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Sóknarmaðurinn Garðar Jóhannsson gekk frá fjögurra mán- aða löngum samningi við norska úrvalsdeildarfélagið Strømsgodset í gærkvöldi. Verið var að ganga frá lausum endum þegar Fréttablaðið ræddi við Garðar. „Það er verið að ganga frá þessu. Þetta var ekki klárað fyrr en núna í kvöld en það er nokkuð síðan við byrjuðum að ræða saman. Þetta er að verða klappað og klárt,“ sagði Garðar þar sem hann beið tíðinda í gærkvöldi. „Þetta hentar mér fínt. Ég þekki ágætlega til félagsins og spilaði meðal annars á móti þjálfaran- um. Hann hlýtur því að vita hvað maður getur,“ sagði Garðar sem lék þrjá leiki með Stjörnunni í sumar. „Það var fínt að vera hjá Stjörn- unni, þetta var skemmtilegur tími,“ sagði Garðar sem útilokar ekki að koma aftur heim eftir leik- ina í Noregi. Strømsgodset á átta leiki eftir í deildinni og er komið í undanúrslit bikarsins. „Það eru bara tveir mánuðir eftir af tímabilinu. Ég hefði ekki farið út ef ég væri ekki ánægður með samninginn en ég verð ekki áfram úti nema eitthvað bitastætt bjóðist,“ sagði Garðar. Emil Hallfreðsson hefur gengið frá samningi við Verona í ítölsku C-deildinni. Hann verður lánaður til liðsins frá Reggina. Gunnar Heiðar Þorvaldsson mun leika með Fredrikstad í Nor- egi þaðan sem hann er lánaður frá Esjberg í Danmörku. Aron Jóhannsson, markahæsti leikmað- ur 1. deildarinnar á Íslandi, fór til AGF í Árósum. Þá er Eiður Smári Guðjohn- sen kominn til Stoke og Gylfi Þór Sigurðsson til Hoffenheim. - hþh Nokkrir Íslendingar gengu frá samningum fyrir lok félagaskiptagluggans í gær: Tveir mánuðir hjá Strømsgodset Í BARÁTTUNNI Garðar náði að koma við sögu í þremur leikjum með Stjörnunni í ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÖGNUÐUR Stjörnustúlkur gátu fagnað í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.