Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 18
18 1. september 2010 MIÐVIKUDAGUR Umræða um orkumál hefur verið fyrirferðarmikil í þjóðmálaum- ræðunni að undanförnu, ekki síst um eignarhald á orkufyrirtækjum. Sitt sýnist hverjum um þetta efni. Sumir eru þeirrar skoðunar að eignarhaldið eigi alfarið að vera í höndum opinberra aðila. Aðrir telja sjálfsagt að einkaaðilar eigi orku- fyrirtækin – ríkið eigi hvergi að koma þar nærri. Minna hefur farið fyrir sáttasjónarmiðum, málamiðl- unum, vangaveltum um skynsam- legar leiðir sem annars staðar hefur náðst ágætt samkomulag um. Umræður um Magma Þessi umræða hefur kristallast í átökunum um kanadíska fyrir- tækið Magma. Sú umræða hefur ekki verið þjóðinni til framdrátt- ar eða sóma, hvorki á innlendum vettvangi né erlendum. Enginn vafi er á því að umfjöllunin hefur dregið úr áhuga erlendra fjárfesta á Íslandi. Stjórnvöld þurfa að sýna fagmennsku og vera sjálfum sér samkvæm við afgreiðslu og frá- gang mála af þessu tagi. En nóg um Magma. Umræðan um eignarhaldið hefur verið erfið hér á landi og einkennst af öfgum til hvorrar áttar. Aðrar þjóðir sem við lítum til hafa leyst þetta mál í ágætri sátt með eign- arhaldsstefnu sem er árangursrík og í raun nær óumdeild. Nærtæk- ast er að líta til Norðurlandanna sem hafa komið þessum málum í farsælan farveg. Noregur stendur okkur nærri í þessu efni enda þáttur orkunnar í efnahagslífinu um margt áþekkur því sem gerist hér. Norðmenn hafa í aðalatriðum valið þá leið að láta opinbera aðila vera ráðandi í helstu orkufyrirtækjum landsins. Þannig á norska ríkið og tengdir aðilar í stærsta orkufyrirtæki landsins, Statoil, en fyrirtækið er þó alfar- ið rekið á markaðssjónarmiðum, er skráð á hlutabréfamarkað í Nor- egi og í New York. Ríkið hefur hins vegar tögl og haldir í eignarhaldi fyrirtækisins. Alþjóðlegir fjárfest- ar, sem og norskir, hafa því greið- an aðgang að fyrirtækinu á hluta- bréfamörkuðum. Sama gildir um ýmis önnur mikilvæg orkufyrirtæki í Noregi. Þannig á norska ríkið (og lífeyr- issjóður ríkisins) tæplega helm- ingshlut í Hydro en það sem eftir stendur dreifist á margar hendur og enginn annar hluthafi á stærri en 5% hlut. Í Finnlandi á ríkið ríflega helmingshlut í Fortum, stærsta orkufyrirtæki landsins. Fortum rekur m.a. fjölmörg vatnsorku- ver í Svíþjóð og Finnlandi. Félag- ið er skráð í NASDAQ OMX kaup- höllina í Helsinki og hluthafar eru nærri hundrað þúsund talsins. Þá hefur fjárfesting útlendinga í sænska orkugeiranum vaxið hröð- um skrefum undanfarin 15 ár. Við þurfum því ekki að leita langt yfir skammt að eigenda- stefnu sem ætti að geta náðst við- unandi sátt um. Eins og sjá má frá reynslu nágranna okkar er hún hvorki flókin né krefst sérlausna af ýmsu tagi. Stefnan felur einfald- lega í sér að ríkið ræður í höfuð- atriðum ferðinni en einkaaðilum – hvaðan sem þeir koma – er vel- komið að fjárfesta í umræddum fyrirtækjum að því marki að eign- arhald hins opinbera þynnist ekki svo mikið að stefnu hins opinbera verði teflt í tvísýnu. Fyrirtæki í orkugeiranum og opinberir aðilar standa nú frammi fyrir fjármögnunarvanda sem m.a. má rekja til mikillar erlendr- ar skuldsetningar á undanförn- um árum. Framangreind eigenda- stefna um sameiginlegt eignarhald ríkis og einkaaðila hefur það í för með sér að þörfin fyrir erlent láns- fé verður mun minni en ella og þar með er dregið úr þeirri áhættu sem óhjákvæmilega fylgir lánsfjár- mögnun. Erlent áhættufjármagn á þeim forsendum sem að framan eru nefndar gæti jafnframt greitt götu orkuframkvæmda sem að öðrum kosti gæti þurft að fresta enn frekar en orðið er. Gæti hentað vel á Íslandi Enginn vafi er á því í mínum huga að norræna leiðin gæti hentað vel á Íslandi. Ef á henni yrði byggt yrði til að mynda stærsta orkufyrir- tæki landsins, Landsvirkjun, breytt í hlutafélag og það skráð á hluta- bréfamarkað hér á landi og t.d. á NASDAQ OMX í New York. Ríkið eða opinberir aðilar ættu helming til tvo þriðju í fyrirtækinu og réðu fyrir vikið för (Statoil fyrirmynd- in). Fjárfestum um allan heim yrði boðið að koma að eignarhaldinu að þeim mörkum sem sátt næðist um að miða við. Í þessu fælist að opin- berir aðilar þyrftu ekki að binda jafn gríðarlega mikið fjármagn í áhættusömum rekstri og nú er raunin. Þetta viðskiptalíkan tel ég vera eftirsóknarvert fyrir Lands- virkjun og verðskuldi gaumgæfi- lega skoðun. Það gæti einnig átt vel við fyrir ýmis önnur orkufyrirtæki í landinu. Sátt um eignarhald á orkufyrirtækjum – norræna leiðin Orkumál Þórður Friðjónsson forstjóri NASDAQ OMX Iceland Eignarhald norrænna ríkja í þremur orkufyrirtækjum Fyrirtæki Land Eignarhlutur ríkisins Statoil Noregur 67% Hydro Noregur 49,94% Fortum Finnland 50,76% AF NETINU Starfslok óreiðumanns Sé ekki heila brú í að afhenda Jóhannesi í Bónus níutíu milljónir og tólf mánaða laun fyrir að fara. Gjald- þrota menn verða bara gjaldþrota án slíks. Hef bara aldrei heyrt um slíkt áður. Satt að segja er þetta glórulaust og sýnir, að stjórnendur Arion-banka eru tossar. Allt er athugavert við meðferð bankans. Fyrri eigendur fyrirtækja fá ekki starfslokasamning. Þeir eru ekki manna færastir til að reka fyrirtæki, þeir hafa sannað hið þveröfuga. Banki skuldar óreiðu- mönnum ekki eina krónu umfram það, sem þeir hafa áður haft af bank- anum. Stjórnendur Arion eiga að vera á fjalli með hinum bjöllusauðunum. jonas.is Jónas Kristjánsson Harðvítug hagsmunagæsla Merkilegt hefur verið að fylgjast með harðvítugri hagsmunagæslu útvegsmanna en þrátt fyrir fróm og sumpart fríð fyrirheit í sykursætum stefnuskrám og settlegum stjórnar- sáttmála ríkisstjórnarflokkanna virð- ast handhafar kvótans enn hafa tögl og hagldir í sjávarútvegsráðuneyti Jóns Bjarnasonar. Fyrir einhverjum árum hefði það kannski komið ein- hverjum á óvart að enginn munur yrði á VG-liðanum Jóni Bjarnasyni og erkisjálfstæðismanninum Einari K. Guðfinnssyni. En þannig er það nú samt. pressan.is Eiríkur Bergmann 2 fyrir 1 í bíó fyrir Námufélaga E N N E M M / S ÍA / N M 4 3 3 6 9 N B I h f. ( L a n d s b a n k in n ), k t. 4 7 10 0 8 -0 2 8 0 . * G ild ir í L au g ar ás b íó i, S m ár ab íó i,, H ás kó la b íó i o g B or g ar b íó i m án .- fim . s é g re it t m eð N ám uk or ti Náman leggur námsmönnum lið með því að bjóða hagstæðari kjör, betri yfirsýn yfir fjármálin, 2 fyrir 1 í bíó*, 150 fríar færslur á ári, Námu A-kort með Aukakrónusöfnun auk fjölda annarra fríðinda. NÁMAN | landsbankinn.is | 410 4000 Það er leikur að læra með Námunni. Kíktu á Námuna á Facebook Lausn: Dómari Sara Snædís Ólafsdóttir, Námufélagi og nemi í lögfræði Opið bréf til Elvu Daggar Þórð-ardóttur, formanns fram- kvæmda- og veitustjórnar Árborg- ar. Sæl Elva Sem gamall Sunnlendingur og unnandi Ölfusár hrökk ég við þegar þú kynntir nýlega áform bæjarstjórnar Árborgar um virkj- un í Ölfusá rétt við Selfoss. Líklega eru fá dæmi um að stjórn sveitar- félags taki sjálf frumkvæði að því að höggva í sína stærstu náttúru- perlu, en fá bæjarfélög hér á landi geta státað af slíkri náttúrufeg- urð í hjarta bæjarins, sem Ölfusá er. Tignarleg streymir hún undir brúna, sveipast í hringiðum fram hjá kirkjunni, veltur niður Selfoss- inn og rennur út í Sandvíkina. Í þessu sambandi velti ég fyrir mér afstöðu Selfyssinga til árinn- ar, en bærinn heitir jú eftir fossi eða flúðum í ánni og sveitarfélagið Árborg er beinlínis kennt við ána. Lengi vel fór allt skólp á Selfossi og frárennsli frá iðnaði beint í ána innan bæjarmarka Selfoss. Eftir stofnun hins nýja sveitarfélags Árborgar, var hins vegar allt frá- rennsli leitt í einu stóru ræsi niður fyrir þéttbýlið á Selfossi út í Sand- víkina, sem er fyrir landi fyrr- um Sandvíkurhrepps. Þessi fram- kvæmd var styrkt með tugum milljóna frá umhverfisráðuneyt- inu, sem vissi ekki betur en að frá- rennslið yrði hreinsað með við- eigandi hætti. Árborg fékk hins vegar undanþágu og frest að mig minnir til ársins 2009 til að fara að reglum og koma hreinsibúnaði á hina stóru skolplögn. Því hefur til skamms tíma mikil mengun verið í ánni við ræsið og fyrir neðan það. Áin lyktar jafnvel af skolpi vel yfir kílómetra fyrir neðan ræsið og klósettpappír, smokkar og dömu- bindi fljóta með straumnum. Því spyr ég þig Elín. Finnst þér þessi meðferð á Ölfusá sæmandi fyrir Árborgarbúa og þá einkum Selfyssinga, sem hafa lagt metnað í að byggja upp fallegan og hreinleg- an bæ? Hver er staðan nú varðandi hreinsibúnað fyrir skólpið og hvað hyggst Árborg gera á næstunni til að hreinsa frárennsli í ána með við- unandi hætti? Fyrst bæjarstjórn Árborgar hefur áhuga á að framleiða orku langar mig einnig að benda á þann möguleika að framleiða rafmagn úr metani frá skólpinu sem nú rennur í ána, en fréttir hafa borist frá Hol- landi um að þar sé verið að byggja orkuver sem framleiða rafmagn úr skít frá dýrum og fólki. Með slíkri orkuframleiðslu mætti með umhverfisvænum hætti afla tekna fyrir sveitarfélagið um leið og ánni er hlíft. Árborgarbúar gætu þannig vísað veginn fyrir önnur sveitar- félög í landinu. Reyndar er þegar hafin framleiðsla á metangasi úr kúamykju á sveitabæ skammt fyrir ofan Selfoss og geri ég ráð fyrir að sú mykja sé í grunninn ekki ólík þeirri mykju sem Selfyssingar gefa nú frá sér beint út í Ölfusá. Hve lengi tekur Ölfusá við? Umhverfismál Benedikt Jóhannsson frá Stóru-Sandvík

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.