Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 1. september 2010 3
Reiðhjól eru mikið notuð sam-
göngutæki og nauðsynlegt er að
huga vel að ljósabúnaði þeirra
nú þegar skuggsýnt er orðið á
kvöldin.
Steingrímur Sigurjónsson bygg-
ingafræðingur er á nýju hjóli og
hefur búið það endurskinsmerkjum
og glitaugum í bak og fyrir. Þannig
er hann alveg til fyrirmyndar og
vill líka vera það. „Ég vil að hjól-
reiðamenn séu sem öruggastir og
þar eru endurskinsmerkin þýð-
ingarmikil. Þeir verða að sjást í
myrkri og þegar skyggni er slæmt.
Það eru orðnir svo margir á hjól-
um og þetta eru atriði sem þarf að
hafa í huga,“ segir hann.
Steingrímur kveðst hafa búið
í Danmörku í tíu ár og í Svíþjóð
í sex ár. Þar hafi hann hjólað um
allt. „Ég hef líka hjólað mikið hér
á landi undanfarið,“ segir hann
og kveðst mikill áhugamaður um
öryggi almennt enda búinn að vera
björgunarsveitarmaður síðan 1965.
„Ég er að berjast fyrir því að svona
glitaugu og endurskinsmerki séu
sett líka á hina ýmsu burðarvagna
aftan í dráttarbílum. Það eru svo
margir gamlir vagnar í umferð
sem perur fást ekki í lengur,“ segir
hann til skýringar. - gun
Sést vel í myrkri
„Ég vil að hjólreiðamenn séu sem öruggastir,“ segir Steingrímur, sem sjálfur er vel
sýnilegur á hjólinu þótt tekið sé að dimma. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Útivist stefnir á vinnuferð í Dala-
kofann 10. til 12. september.
Þar leggja sjálfboðaliðar hönd
á plóg við endurgerð veglegs
fjallaskála sem mun nýtast
ferðalöngum á hálendi Íslands.
Ferðafélagið Útivist hefur síð-
ustu þrjú árin unnið að uppbygg-
ingu skála á Syðra-Fjallabaki sem
kallast Dalakofinn. „Þessi skáli
var byggður í kringum 1971 af
Rudolf Stolzenwald,“ segir Þór-
hallur Másson, í stjórn jeppa-
deildar Útivistar. „Einn veturinn
varð hann bráðkvaddur á leið
heim úr skálanum og skál-
arnir komu í eigu afkomenda
hans,“ útskýrir Þórhallur en
fyrir nokkrum árum kom upp
sú hugmynd að Útivist fengi afnot
af skálanum gegn því að gera þá
upp. „Ástæðan var sú að fáa skála
er að finna þarna megin á Fjalla-
baki,“ segir Þórhallur en Dala-
kofinn er staðsettur norðan við
Laufarfell á Fjallabaksleið syðri,
um tíu kílómetra suðvestan við
Hrafntinnusker.
„Þegar hafist var handa kom í
ljós að húsin, sem eru tvö, voru
mun verr farin en talið var í upp-
hafi,“ segir Þórhallur, en í stað
þess að gefast upp var ákveð-
ið að gera enn betur og byggja
millibyggingu milli húsanna.
„Við fengum byggingarleyfi og
hófumst handa árið 2007.“
Félagsmenn Útivistar hafa
unnið að endurbyggingu Dalakof-
ans smátt og smátt enda allt unnið
í sjálfboðastarfi. „Mjög margt er
komið, búið er að byggja milli-
bygginguna og setja upp rotþró en
enn er nokkur frágangur eftir á
gólfefnum auk þess sem við erum
ekkert byrjaðir á minna húsinu.“
Helgina 10. til 12. september verð-
ur farin vinnuferð í Dalakofann en
þá er ætlunin að ganga frá öllum
vatnslögnum í skálann. Menn eru
stórhuga og er stefnt á að koma
hitaveitu í húsið enda
eru hverir rétt
neðan við skál-
ann.
Stefnt er að
því að Dalakof-
inn verði kominn í fulla
notkun næsta sumar.
„Meiningin hjá Útivist er
síðan að búa til nýjar göngu-
leiðir út frá skálanum,“ segir
Þórhallur og bendir á að fáir
hafi gengið á þessu svæði
og því eigi fólk margt eftir
ókannað.
Öllum áhugasömum er vel-
komið að taka þátt í vinnuferð-
inni 10. til 12. september en Úti-
vist býður sjálfboðaliðum í mat
auk þess sem hópurinn mun gera
sér glaðan dag í lok góðs vinnu-
dags. Nánar á www.utivist.is. - sg
Leggja lokahönd
á Dalakofann
Mikil vinna hefur verið lögð í Dalakofann. Stærra húsið hefur verið tekið alveg í gegn
en aðeins fjórar sperrur standa eftir af upprunalega húsinu. MYND/ÚR EINKASAFNI
Salsa
Kennum Kúbu-salsa
Krakkar
Frábær 14 vikna námskeið
fyrir ykkur. Yngst 5 ára.
Freestyle
Allt það nýjasta.
Yngst 9 ára.
Einnig námskeið fyrir 18+
Reykjavík og Mosfessbær
Innritun og upplýsingar
www.dansskoliheidars.is
og í síma 551 3129
milli klukkan 16 og 20 til 12. sept.
Kennsla hefst mánudaginn 13. sept.
Systkinaafsláttur 2. barn hálft gjald 3. barn frítt
Reykjavík og Mosfellsbær styrkja dansnám barna
Konusalsa
Sjóðheitt námskeið.
Hentar öllum konum,
ungum og öldnum,
liðugum og stirðum.
Skemmtileg hjóna-
og paranámskeið
Byrjendur og framhald.
Salsa-merenge,
gömlu dansarnir,
samkvæmisdansar og
upprifjunarnámskeið.
Keppnisdansar
Hinn frábæri danskennari Svanhildur
Sigurðardóttir sér um þjálfunina.
Mæting 2x eða 3x í viku.
AFMÆLI
BANDALAGS
ÍSLENSKRA GRÆÐARA
Á GRAND HÓTEL REYKJAVÍK 4. OG 5. SEPTEMBER 2010
GLÆSILEG AFMÆLISDAGSKRÁ
UM ÝMISLEGT SEM VIÐKEMUR BÆTTRI HEILSU
Fjölbreyttir og áhugaverðir fyrirlestrar báða dagana. Allir velkomnir.
Aðgangseyrir: Laugardagur 4.000 kr. Sunnudagur 3.500 kr. Báðir dagarnir 6.500 kr.
NÁNAR UM DAGSKRÁNA ER Á www.big.is
ÖRNÁMSKEIÐ
3. september eru haldin örnámskeið um ýmislegt sem viðkemur heilsu.
Námskeiðið er frá kl. 13 til kl. 17 og kostar 5000 kr.
Fyrir framan ráðstefnusalinn verða upplýsingaborð frá aðildar félögum
BIG, með fróðleik og kynningu á starfsemi þeirra.
Einnig verða sölu– og kynningarborð með vörum sem tengjast heilsu
og heilbrigði og verður það svæði opið öllum, aðgangur ókeypis.
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 90 stöðum
um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing