Fréttablaðið - 06.09.2010, Qupperneq 46
26 6. september 2010 MÁNUDAGUR
MORGUNMATURINN
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Við förum á þriðjudaginn og svo eru tón-
leikarnir sjálfir næstkomandi föstudag,“
segir Ólafur Arnalds tónlistarmaður en
hann er að fara að spila á World Expo-
sýningunni í Sjanghæ. Þjóðardagur Íslands
á heimssýningunni er einmitt föstudaginn
11. september og mun Ólafur spila meðal
annars fyrir forseta Íslands, Ólaf Ragnar
Grímsson.
„Þetta verður voðalega gaman og það er
alltaf gaman að koma til Asíu,“ segir Ólafur
en hann og hljómsveitin hans hafa ákveðið að
framlengja ferðalagið um tvær vikur og fara
í tónleikaferðalag um Kína og spila svo á tón-
listarhátíð í Hollandi á leiðinni heim.
„Við ákváðum að nýta þetta langa ferðalag
til að spila á fleiri stöðum í landinu. Ég hef
áður spilað í Kína og það gekk mjög vel,“
segir Ólafur en með honum í för er sex
manna hljómsveit og eru þau á fullu við undir-
búning þessa dagana. „Við erum að búa til
nýtt „show“ og í dag er ég til dæmis að læra
inn á svona tölvustýrða ljósatakka. Mjög
hressandi,“ segir Ólafur en hann á nokk-
krum vinsældum að fagna í Kína og hefur til
að mynda selt margar plötur. Spurður hvort
hann viti ástæðuna fyrir velgenginni svar-
ar Ólafur hlæjandi: „Ætli það sé bara ekki
vegna þess að þeir eru svo fjölmenn þjóð, nei
ég veit það ekki en það er gaman.“
Hann segir að það sé frábær upplifun að
spila fyrir kínverska áhorfendur og að hann
finni strax að það er önnur stemming á tón-
leikum. „Kínverjar bera mikla virðingu fyrir
tónlistinni og eru einbeittir þegar þeir hlusta
á tónlistina. Svo einbeittir að þeir þora varla
að klappa milli laga en bæta það svo upp með
því að klappa þeim mun meira í lokin,“ segir
Ólafur en Íslendingar fá næst að berja hann
augum á Airwaves-hátíðinni í október. - áp
Spilar á heimssýningunni í Kína
Stuttmyndin Líf og dauði Henry
Darger er fyrsta íslenska stutt-
myndin sem hefur verið valin á
hina virtu kvikmyndahátíð á Fen-
eyjum. Þar verður hún sýnd dag-
ana 8. og 9. september en Katrín
Ólafsdóttir, framleiðandi hennar,
verður fjarri góðu gamni því henni
tókst ekki fá styrk til að kynna
myndina.
„Það er rosalega leiðinlegt að
komast ekki út,“ segir Katrín. „Ég
er búin að fara á milli stofnana alla
vikuna. Ég veit að landið er ekkert
sérstaklega vel stætt en það væri
gott að geta fylgt menningarverk-
efnum eftir út fyrir landsteinana,“
segir Katrín, sem kom alls staðar
að lokuðum dyrum.
„Við reyndum líka að fá styrk
til að gera sýningareintök til að
koma myndinni til Feneyja en
það var ekki nokkur leið. Það var
enginn sem vildi eða gat. Kvik-
myndagerðin á Íslandi er svolít-
ið íhaldssöm. Það væri gaman að
færa hana út fyrir landamærin þar
sem fólk gæti spurt sig: „Hvað er
bíó?“ Sérstaklega í dag þar sem öll
kvikmyndahúsin sýna tiltölulega
venjulegar amerískar bíómyndir.“
Þess má geta að fólk getur styrkt
verkefnið með því að leggja inn
frjálst framlag á reikning 11175-
05-763142, kennitala 620210-1100,
merkt Feneyjar.
Katrín hefur á ferli sínum leik-
stýrt stuttmyndunum Slurpinn & Co
og Opaque. Hún hefur einnig unnið
myndbandsverk með listakonunni
Steinunni Gunnlaugsdóttur.
Líf og dauði Henry Darger var
tekin upp hér á landi fyrir tveim-
ur árum í leikstjórn Frakkans
Bertrand Mandico. Hún fjallar um
mann sem gengur eftir frostlagðri
auðn og veltir fyrir sér hversu
langt hann eigi eftir ólifað. Hann
fer á fund við bláa konu sem segir
honum að hann eigi tvo tíma eftir
ólifaða.
Katrín kynntist leikstjóranum
Mandico á þróunar- og kynningar-
ráðstefnunni Torino Film Lab, þar
sem spennandi kvikmyndaverkefni
eru kynnt. „Við gerðum myndina
fyrir enga peninga. Það gaf okkur
frelsi til að gera myndina nákvæm-
lega eins og við vildum hafa hana,“
segir hún um Líf og Dauða Henry
Darger. Harpa Arnardóttir og
Karl Guðmundsson leika aðalhlut-
verkin og Tómas Lemarquis er
sögumaður.
„Við höfum sett okkur það verk-
efni að gera eina stuttmynd á ári
á Íslandi næstu tuttugu árin. Við
viljum taka upp á Reykjanesi svo
framarlega sem álbrjálæðingarnir
verða ekki búnir að leggja svæðið
undir sig,“ segir Katrín. „Það verð-
ur mjög áhugavert að sjá breyt-
ingarnar á svæðinu af manna og
stóriðjuvöldum.” Hver mynd mun
standa sem sjálfstætt verk en eftir
að tökum á þeim öllum verður lokið
verða þær klipptar saman og gerð
úr þeim ein mynd í fullri lengd.
Líf og dauði Henry Darger verð-
ur sýnd á Alþjóðlegri kvikmynda-
hátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst
23. september, og þar verður leik-
stjórinn Mandico á meðal gesta.
freyr@frettabladid.is
KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR: LEIÐINLEGT AÐ KOMAST EKKI ÚT
Fyrsta íslenska stuttmynd-
in sem keppir í Feneyjum
Besti morgunmaturinn er The
French Connection og Cappucci-
no á Prikinu í góðra vina hópi á
sunnudagsmorgnum.
Rúna Sigurðardóttir viðskipta-og list-
fræðinemi.
Heimildarmyndin Backyard, í
leikstjórn Árna Sveinssonar, verð-
ur opnunarmynd hins nýja kvik-
myndahúss Bíó Paradís, sem opnar
í gamla Regnboganum 15. septem-
ber. Myndin var valin besta mynd
Skjaldborgarhátíðarinnar í ár og
fjallar hún um ákveðna tónlistar-
senu sem ríkir í Reykjavík í dag.
Árni segir það mikinn heiður að
myndin hafi verið valin sem opnun-
armynd bíóhússins og stendur hann
nú í ströngu við að undirbúa frum-
sýninguna. „Við erum bara í góðum
fíling að undirbúa okkur. Við erum
að vonast til að geta endurtekið
leikinn frá því á Skjaldborg. Þá
ríkti svakaleg stemning í salnum
því fólk komst í svo mikið stuð við
tónlistina sem spiluð er í myndinni.
Partíið hélt svo áfram eftir mynd-
ina og langt fram á nótt,“ segir
Árni.
Inntur eftir því hvort kalla megi
Backyard íslensku útgáfuna af söng-
myndinni Mamma Mía vegna lát-
anna í salnum segir hann hlæjandi:
„Já, það mætti segja að þetta sé hin
íslenska Mamma Mía, fólk syngur
með og kemst í mikið stuð.“
Upphaflega stóð til að Bíó Paradís
mundi opna mun fyrr í mánuðin-
um, hefði það gengið eftir hefði sú
skrítna staða komið upp að enginn
meðlimur hljómsveitanna sem komu
fram í Backyard hefði getað verið
viðstaddir frumsýninguna. „Fyrst
leit út fyrir að engin af hljómsveit-
unum gætu mætt á sýninguna því
þær voru allar einhvers staðar úti
í löndum. En þar sem dagsetning-
in breyttist sýnist mér nú að allir
nema tveir geti mætt, sem eru góðar
fréttir,“ segir hann.
Myndin hefur verið send á nokkr-
ar kvikmyndahátíðir víða um heim
og að sögn Árna hefur hann þegar
fengið boð á nokkrar hátíðir. „Við
erum bara að velta þessu fyrir
okkur og spá í hvað við viljum gera.“
- sm
Vonast eftir partístemningu
MIKILL HEIÐUR Heimildarmynd Árna
Sveinssonar, Backyard, verður opnunar-
mynd Bíó Paradísar. Myndin sló í gegn á
Skjaldborgarhátíðinni í ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÁRÉTT
2. eyja í asíu, 6. hljóm, 8. farfa, 9.
rúmábreiða, 11. tveir eins, 12. vín-
blanda, 14. menntastofnun, 16. átt,
17. gat á steðja, 18. kvenkyns hundur,
20. fyrir hönd, 21. truflun.
LÓÐRÉTT
1. fita, 3. bor, 4. vitsmunamissir, 5.
sigað, 7. naggrís, 10. kverk, 13. væl,
15. innyfla, 16. hlóðir, 19. bókstafur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. java, 6. óm, 8. lit, 9. lak,
11. tt, 12. grogg, 14. skóli, 16. sv, 17.
löð, 18. tík, 20. pr, 21. ónáð.
LÓÐRÉTT: 1. tólg, 3. al, 4. vitglöp, 5.
att, 7. marsvín, 10. kok, 13. gól, 15.
iðra, 16. stó, 19. ká.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
UNDIRBÝR ASÍUFÖR
Ólafur Arnalds heldur
til Kína í vikunni
ásamt hljómsveit sinni
en þau ætla meðal
annars að spila á
heimssýningunni í
Sjanghæ.
einn
barnaís
eða
Stöð 2, Stöð 2 Bíó og Stöð 2 Extra
kosta aðeins 229 krónur á dag.
Tryggðu þér áskrift í dag!
FYRIR
229 KRÓNUR
FÆRÐ ÞÚ:
frábæra skemmtun í
heilan sólarhring fyrir
alla fjölskylduna
Fatahönnuðirnir Coco og Selma
Ragnarsdóttir hafa unnið baki
brotnu í allt sumar við að hanna
búninga sem Páll Óskar ætlar
að klæðast á tónleikum sínum
með Sinfóníu hljómsveit Íslands í
nóvember. Búningarnir eru fimm
talsins og verða allir handsaumaðir
og klæðskerasniðnir á söngvarann.
Coco, sem er íslenskur ríkisborgari
en fæddur í Perú, hefur
saumað mikið á Palla
í gegnum tíðina, rétt
eins og Selma. Þetta
er aftur á móti í fyrsta
sinn sem Coco hann-
ar búninga á Palla
alveg frá grunni.
Stemningin var góð í Listasafni
Reykjavíkur á föstudagskvöld
þegar haustdagskrá Stöðvar 2 var
kynnt. Gulldrengir stöðvarinnar,
þeir Auddi og Sveppi, voru að
sjálfsögðu staðnum ásamt Agli
„Gilzenegger“ Einarssyni en saman
hafa þeir fengið góð viðbrögð við
þættinum Ameríski draumurinn.
Hinir nýju gulldrengir stöðvarinnar
stálu þó senunni í partíinu, eða
strákarnir í Spaugstofunni sem
færðu sig á dögunum yfir á Stöð 2
frá Sjónvarpinu. Þeir léku á als oddi
í partíinu og virtust una hag sínum
vel á nýjum slóðum.
Sindri Már Sigfússon og félagar í
Seabear eru þessa dagana í tónleika-
ferð um Þýskaland til að fylgja eftir
plötu sinni We Built a Fire. Um miðjan
október ferðast hljómsveitin síðan
til Bandaríkjanna. Í tilefni af þeirri
tónleikaferð geta aðdáendur Seabear
tekið þátt í samkeppni þar sem keppt
er um bestu útgáfurnar
af lögum sveitarinnar.
Keppnin fer fram í gegn-
um Youtube-síðuna og
sigurvegarinn fær frítt
inn á Seabear-tónleika
og fær einnig að stíga
upp á svið og flytja
sigurlagið. - fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
EKKI TIL FENEYJA Katrín Ólafsdóttir fékk ekki styrk til að fylgja eftir stuttmynd sinni á kvikmyndahátíðina í Feneyjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON