Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 41
FIMMTUDAGUR 9. september 2010 25 Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Gunnlaugur Snædal læknir lést á heimili sínu, Sóltúni, Reykjavík, þriðjudaginn 7. september. Jón Snædal Guðrún Karlsdóttir Kristján Snædal Sólrún Vilbergsdóttir Gunnlaugur G Snædal Soffía Káradóttir barnabörn og barnabarnabörn. Óskar Ólason málarameistari, lést 27. ágúst á Sólvangi Hafnarfirði. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir til starfsfólks 4. hæðar Sólvangs fyrir góða umönnun. Óli Þorleifur Óskarsson Björg Óskarsdóttir Sigurður Jakobsson Lára Óskarsdóttir Ólafur Þór Jóelsson Helgi Rúnar Óskarsson Bjarney Harðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær frænka okkar, Sigrún Á. Sigurðardóttir sníða- og kjólameistari, lést mánudaginn 6. september að Hrafnistu í Reykjavík. Fyrir hönd aðstandenda Jóna Þorleifsdóttir Erna Bryndís Halldórsdóttir Sigrún Pálína Sigurpálsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ívar Örn Ingólfsson húsasmíðameistari lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 1. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstu- daginn 10. september kl. 15.00. Ingibjörg Rósa Ívarsdóttir Kristján Kristjánsson Ingólfur Valur Ívarsson Lára Gunnarsdóttir Ásmundur Rúnar Ívarsson Guðný Agla Jónsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, Einars Einarssonar vélstjóra, Stuðlaseli 31, 109 Reykjavík. Margrét Sigurðardóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Birgir Guðmundsson lést á Hrafnistu Hafnarfirði 1. september s.l. Jarðarförin verður föstudaginn 10. september kl.13.00 frá Garðakirkju. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Landsamtök Þroskahjálpar njóta þess. Marý Marinósdóttir Alma Birgisdóttir Steingrímur V. Haraldsson Marinó Flóvent Birgisson Jóhanna Sigrún Ingmarsdóttir Birgir Már Birgisson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar kæra Benný Sigurðardóttir hússtjórnarkennari, Skúlagötu 40, Reykjavík, lést á Líknardeild Landspítalans Landakoti laugar- daginn 4. september sl. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 17. september nk. kl. 15.00. Sigríður Á. Pálmadóttir Guðmundur I. Sigmundsson Björn Orri Guðmundsson Bergur Már Guðmundsson Sigrún Sigurðardóttir Sigurður Magnússon Okkar hjartkæri Heimir Þór Gíslason sem lést föstudaginn 3. september, verður jarðsettur frá Hallgrímskirkju föstudaginn 10. september kl. 15. Magnea Sigurbergsdóttir Helga Nína Heimisdóttir Hrafn Margeir Heimisson Sigurþór Albert Heimisson Ólöf K. Sigurðardóttir Gísli Björn Heimisson barnabörn og barnabarnabörn. Frænka okkar, Margrét Hanna Eyjólfsdóttir, Fossheiði 48, Selfossi, lést þriðjudaginn 31. ágúst. Útförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 11. september kl. 15.00. Guðrún Ásbjörnsdóttir Þorgeir Sigurðsson Sigurður Ingi Sigurðsson Tíðni sjálfsvíga á Íslandi er í lægri kantinum miðað við önnur Norðurlönd, eða tæp- lega 13 sjálfsvíg á hverja 100.000 íbúa. Þessi tala sveiflast þó mikið milli ára og er því miðað við nokkurra ára meðaltal. Þetta þýðir að allt að þrír til fjórir að meðal- tali svipta sig lífi í hverjum mánuði á Íslandi, en karlar eru yfirleitt líklegri til þess að stytta sér aldur heldur en konur. Í tilefni alþjóðlegs dags sjálfsvígsforvarna standa þjóðkirkjan, Landlæknis- embættið, geðsvið LSH, Geðhjálp og Hugarafl fyrir kyrrðarstund í Dómkirkj- unni föstudaginn 10. sept- ember, frá kl. 20-20.30 Elín Ebba Gunnarsdóttir, rithöf- undur og aðstandandi, segir frá reynslu sinni og Berg- þór Böðvarsson, fulltrúi not- endaþjónustu geðsviðs LSH, flytur stutt erindi. Jafnframt mun sr. Sigfinnur Þorleifsson flytja hugvekju. Á dagskrá verða einnig tónlistaratriði þar sem Hera Ólafsdóttir, Ármann Ingvi Ármannsson og Kári Þormar dómorgan- isti flytja tónlist. Að lokinni athöfn í kirkj- unni verður gengið niður að Tjörn þar sem kertum verð- ur fleytt til minningar um þá sem hafa fallið fyrir eigin hendi. - jbá Kyrrðarstund vegna sjálfsvíga KYRRÐARSTUND Í tilefni alþjóð- legs dags sjálfsvígsforvarna verður efnt til kyrrðarstundar í Dómkirkjunni á morgun frá klukkan 20 til 20.30. Tvö hundruð ár verða liðin frá fæðingu Jóns Sigurðs- sonar á næsta ári. Í tilefni af þessum tímamótum skip- aði Alþingi á sínum tíma nefnd sem hefur undirbúið afmælisdagskrá með hátíð- um, ráðstefnum, sýning- um og ritgerðasamkeppni grunnskólabarna, svo fátt eitt sé nefnt. Fræðasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra tekur forskot á sæl- una á sunnudag og stend- ur fyrir málþingi í Bjarma- nesi á Skagaströnd þar sem beint verður sjónum að því með hvaða hætti minningin um Jón forseta sem leiðtoga Íslendinga í sjálfstæðisbar- áttunni varð til og hvern- ig hún mótaðist í íslensku sam- félagi fyrstu áratugina eftir andlát hans. Á mál- þing- i nu , sem ber heitið „Fram- tíð Jóns Sigurðssonar – Karlar á stalli og ímyndasköpun“ veltir Sigurður Gylfi Magn- ússon sagnfræðingur fyrir sér samhengi samfélagsþró- unar og þess hvernig þjóðin hefur kosið að muna fortíð sína. Þá talar Páll Björnsson sagnfræðingur um samein- ingartáknið Jón Sigurðsson sem menn gera gjarnan að samherja sínum í pólitísk- um hitamálum. Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðing- ur fjallar um það hvern- ig hugmyndin um hetjuna hefur bæði verið notuð til að réttlæta tilvist Háskóla Íslands og til að gagnrýna starfsemi hans. Síðast en ekki síst ræðir Jón Karl Helgason bókmenntafræð- ingur um þjóðardýrlinginn og spyr hver framtíð Jóns Sigurðssonar sé í því hlut- verki á næstu árum og áratugum. Málþing- ið hefst klukkan 13 og stendur til 16.30. - jbá Minning Jóns Sigurðssonar 200 ÁRA AFMÆLIÐ Í NÁND Málþingið verður haldið í Bjarmanesi á Skagaströnd. FORSKOT Á SÆLUNA Á næsta ári eru 200 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar en á sunnudag verður tekið forskot á sæluna. Íslenska bútasaumsfélagið stendur fyrir yfirlitssýning- unni Bút fyrir bút í þrjátíu ár í Perlunni dagana 10.-19. september. Sýningin er hald- in í tilefni af tíu ára afmæli félagsins, en það var stofn- að árið 2000 og voru skráð- ir félagar á öllu landinu 140 talsins. Í dag hefur þeim fjölgað umtalsvert og telja félagar 400 manns. Tilgangur Íslenska búta- saumsfélagsins er að auka áhuga og breiða út þekk- ingu á bútasaumi, halda uppi samstarfi milli bútasaumsfé- laga og klúbba á Íslandi sem og við önnur lönd. Félagið er aðili að samtökum Evr- ópskra bútasaumsfélaga og var félögum þeirra boðið að taka þátt í samkeppninni. Á yfirlitssýningunni verða sýnd verk sem voru saum- uð fyrir samkeppni félags- ins sem heitir Tækifæris- kort. Sýningin verður opnuð föstudaginn 10. september kl. 17 og verður eftir það opin á opnunartímum Perlunnar frá klukkan 10 til 18 alla daga. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu félagsins, www. butasaumur.is. - jbá Afmæli í Perlunni BÚT FYRIR BÚT Yfirlitssýning á bútasaumi verður opnuð í Perl- unni á föstudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.