Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 52
36 9. september 2010 FIMMTUDAGUR folk@frettabladid.is Jólatónleikar Björgvins Halldórssonar verða með glæsilegasta móti í ár en þrír erlendir gestir munu troða upp og flytja jólalög með sínu nefi. Tilkynnt hefur verið um Alexander Rybak og Paul Potts en síð- asta púslið er breska óperu- söngkonan Summer Watson. Summer Watson er rísandi stjarna í óperuheiminum og hefur sung- ið í mörgum af stærstu óperuhús- um heims. Fréttablaðið náði tali af henni í Los Angeles í stutta stund í gær. „Ég hef aldrei komið til Íslands áður, ég hef alltaf heyrt að fólkið þar sé ákaflega vingjarnlegt og opið og að hverirnir séu einstak- lega heilnæmir,“ segir Summer og á þar væntanlega við Bláa lónið. Summer kveðst líka hafa heyrt að landslagið á Íslandi sé einstakt og hún hlakkar mikið til að koma og syngja nokkur jólalög fyrir íslenska áhorfendur. Summer er þekkt fyrir að vera mikil ferðamanneskja, hefur ferð- ast um Evrópu, Afríku, Asíu, Ástr- alíu og sungið víðs vegar um Amer- íku. Þar að auki sigraðist hún á Mount Blanc-fjallinu og hyggst heimsækja Norðurpólinn á þessu ári. Hún segist því ekki hafa þurft að hugsa sig lengi um þegar boð um að koma til Íslands barst henni. „Ísland hefur alltaf verið ofarlega á lista yfir þau lönd sem mig hefur langað til að heimsækja þannig að það þurfti ekki mikið til að sann- færa mig,“ segir Summer. Breska óperusöngkonan segist hafa fylgst ágætlega með íslensku tónlistarlífi. Björk er þar auðvitað fyrst á lista en Summer hefur unnið töluvert með upptökustjóranum Marius de Vries sem hefur tekið upp með íslensku söngkonunni. „Og svo voru Sykurmolarnir auð- vitað frábærir. Ég hins vegar elska Sigur Rós og þá sérstaklega Hopp- ípolla-lagið þeirra. Draumur minn væri að halda tónleika og vinna að einhverri tónlist með þeim.“ freyrgigja@frettabladid.is ...ég sá það á Vísi Notaðu öfluga og ókeypis leit á Vísi til að finna allt sem þú þarft að vita um lítil og stór brúðkaup, veislurnar, borðbúnaðinn, kransakökurnar, og veislugestina – eða bara eitthvað allt annað. Leitaðu að efni úr Fréttablaðinu og af Vísi. Það eina sem þarf er leitarorð. Vísir er með það. „Brúðkaup“ > KAUPIR HÚS Í BRETLANDI Söngvarinn Robbie Williams hefur fest kaup á einbýlishúsi í Bretlandi aðeins einu ári eftir að hann fluttist til Bandaríkjanna því hann kærði sig ekki um veðurfarið á Bretlandi. Hann og eiginkona hans Ayda Fi- elds voru ekki hrifin af köldu veðri og sóttu því í sólina til Los Ang- eles. Nú virðast skötuhjúin vera komin með leiða á sólinni og hyggjast setjast að á herragarði í bænum Kent í Suður Englandi. Óperudíva syngur með Bó Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum stendur til að mynda, enn á ný, ævintýrið um skytturnar D‘Artagnan, Atos, Portos og Aramis sem Alexander Dumas gerði ódauð- lega í samnefndri bók. Þeir Matthew Mac- fadyen, Logan Lerman, Luke Evans og Ray Stevenson fá það erfiða hlutskipti að lyfta sverði og hrópa: „Einn fyrir alla og allir fyrir einn.“ Þótt þeir séu vissulega ungir og óreyndir verða þeir dyggilega studd- ir af Óskarsverðlaunahafanum Christoph Waltz og Orlando Bloom auk Millu Jovov- ich. Milla sagði við fjölmiðla nýverið að þessi Skyttumynd væri ekki í líkingu við neitt sem fólk hefði áður séð. „Við höfum verið í mjög stífum æfingum og búin að prófa heilan helling af búningum og hárgreiðslum. Þetta mun líta stór- kostlega út,“ segir Milla sem leik- ur M‘lady De Winter í myndinni. Milla bætir því við að áhættuat- riðin eigi eftir að koma fólki í opna skjöldu. „Mér er það til efs að fólk hafi einhvern tím- ann séð konu í korseletti í jafn- miklum loftköstum og í þess- ari mynd. Þetta á eftir að vekja mikla athygli,“ bætir Milla við en myndin verður væntanlega frumsýnd á næsta ári. Í SKYTTUMYND Milla Jovovich og Christoph Waltz leika bæði í nýrri Skyttumynd sem verður frumsýnd á næsta ári. Leikmunadeild Þjóðleikhússins hefur verið önnum kafin að undanförnu við að útbúa gervihrossakjöt fyrir verkið Finnski hesturinn sem verður frum- sýnt 15. október. „Við erum búin að vera að stúdera hrossakjötið. Leikmunadeildin fór í heimsókn í sláturhús á Sel- fossi. Þar var stöðvarstjórinn svo almennilegur að leyfa okkur að skoða,“ segir Ásta Sigríður Jónsdótt- ir úr leikmunadeildinni en henni til halds og trausts hefur verið Högni Sigurþórsson. „Við fengum að spjalla aðeins við fólkið og fengum að sjá hvernig þetta er unnið.“ Hún segir að vinnan við gervikjötið hafi geng- ið mjög vel og verið virkilega skemmtileg. Notað hafi verið sílikon við „framleiðsluna“ en í leikritinu drepast fimm hestar. Því þurfa leikararnir að með- höndla kjötið í mörgum atriðum. Ásta viðurkennir að vinnan hafi verið fremur subbuleg. „En það er nú ýmislegt subbulegt sem maður gerir í þessu starfi.“ Finnski hesturinn gerist á bóndabæ í afskekktri sveit í Finnlandi og með helstu hlutverk fara Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Kjartan Guðjónsson. -fb Hrossakjötsnám í sláturhúsi MEÐ GERVIHROSSAKJÖTIÐ Ásta Sigríður Jónsdóttir meðhöndl- ar gervihrossakjötið vegna sýningarinnar Finnski hesturinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Óskarsverðlaunaleikkonan Helen Mirren segist ekki eiga orð yfir það hversu hæfileikaríkur landi hennar, Russel Brand, sé. Þau tvö leika á móti hvort öðru í kvik- myndinni Arthur en hún er end- urgerð á hinni sígildu Dudley Moore-mynd frá árinu 1981. „Brand hefur ótrúlegan grín- heila og hefur næmt auga fyrir smáatriðum,“ segir Mirren og bætir því við að hún hafi verið mikill aðdáandi gömlu myndar- innar en hún fjallar um metnað- arlausan erfingja sem á í erfið- leikum með áfengi. Ótrúlegur Brand GÓÐIR GESTIR Paul Potts, Alexander Rybak og Summer Watson eru þeir erlendu gestir sem heiðra Björgvin Halldórsson á Jólagestum í ár. Auk þeirra koma meðal annars fram Sigríður Thorlacius og Högni Egilsson úr Hjaltalín og Jóhanna Guðrún sem mun syngja dúett með norsku Eurovision-stjörnunni. Milla lofar góðum Skyttum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.