Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 62
46 9. september 2010 FIMMTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. drjúpa, 6. verkfæri, 8. veitt eftirför, 9. stroff, 11. bardagi, 12. stopp, 14. hlýða, 16. horfði, 17. dýrahljóð, 18. besti árangur, 20. til, 21. tútta. LÓÐRÉTT 1. slitrótt tal, 3. tveir eins, 4. gera óvandlega, 5. sigað, 7. land, 10. skrá, 13. tala, 15. nabbi, 16. smáskilaboð, 19. í röð. LAUSN LÁRÉTT: 2. leka, 6. al, 8. elt, 9. fit, 11. at, 12. stans, 14. hlíta, 16. sá, 17. urr, 18. met, 20. að, 21. snuð. LÓÐRÉTT: 1. tafs, 3. ee, 4. klastra, 5. att, 7. litháen, 10. tal, 13. níu, 15. arða, 16. sms, 19. tu. VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8. 1 Níu. 2 Jenis av Rana. 3 Til Þorlákshafnar. „Þetta getur verið djöfulsins vesen en þetta getur verið gaman stund- um,“ segir Kjartan Sveinsson, hljómsborðsleikari Sigur Rósar, um kórtónlistina sem hann hefur verið að semja í allt sumar. Tvö verk eftir hann verða flutt í kirkju Páls postula í New York 15. nóvember. Fyrra verkið er fyrir breska karlakvartettinn The Hilli- ard Ensemble og það síðara er fyrir þjóðarkór Lettlands. Tónleikarnir eru liður í tónlistarhátíðinni White Light Festival sem Lincoln Cent- er í New York stendur fyrir. Þar er megináhersla lögð á tengsl tónlist- ar og andlegra málefna. Seinni hluti kvöldsins er í höndum hljómsveitar- innar Riceboy Sleeps sem Jónsi úr Sigur Rós og kærastinn hans Alex Somers skipa. Kjartan hlakkar til að koma fram á hátíðinni en tekur fram að hann hafi enn ekki lokið við verkin og því séu þau ekki alveg fullmótuð. Hann hefur unnið við þau í sumar, enda haft góðan tíma aflögu á meðan Jónsi hefur verið í tónleikaferð um heiminn til að fylgja eftir plötu sinni Go. Sigur Rós hefur fyrir vikið verið í pásu en heldur áfram að vinna að nýrri plötu eftir áramót. Kjartan hefur á ferli sínum unnið töluvert einn á báti. Hann samdi tónlistina við stuttmyndirnar Síð- asti bærinn, sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna, og Plastic Bag eftir bandaríska verðlaunaleikstjór- ann Ramin Bahrani. Einnig samdi hann tónlistina við kvikmyndina Ondine eftir írska leikstjórann Neil Jordan með Colin Farrell í aðalhlut- verki. Kjartan starfar einnig sem upptökustjóri og hefur meðal ann- ars tekið upp báðar plötur Ólafar Arnalds. -fb Kórverk Kjartans flutt í New York SIGUR RÓS Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós (lengst til vinstri) tekur þátt í tónlistarhá- tíðinni White Light Festival 15. nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Íslenska þungarokkssveitin Dimma á þrjú lög á ábreiðuplötu til heiðurs Alice Cooper sem kemur út 26. október næstkomandi. Tvö þeirra voru tekin upp á tónleikum Dimmu og Michaels Bruce, upp- runalega gítarleikarans úr sveit- inni, hér á landi 2002 en þriðja lagið var tekið sérstaklega upp með Dennis Dunaway, bassaleik- aranum fræga, fyrir áðurnefnda plötu. Ingólfur Geirdal segir þetta vera sér mikið hjartans mál enda séu hann og bróðir hans, Silli sem einnig er meðlimur Dimmu, miklir Alice Cooper-aðdáendur. „Við höfum unnið með bæði Michael og Dennis áður. Denn- is samdi náttúrlega með okkur lag á síðustu Dimmu-plötu og við höfum verið í góðu sambandi við hann,“ segir Ingólfur en hann starfar sem töframaður í Svíþjóð og kemur meðal annars fram á ferju sem siglir milli Danmerk- ur og Svíþjóðar. Dimma hitaði jafnframt upp fyrir Alice Cooper þegar hann kom hingað til lands árið 2005. Þeim fannst lítið til- tökumál að henda í eitt ábreiðulag frá Cooper. „Við tókum upp okkar hluta hér á Íslandi og Dennis sinn í New York,“ segir Ingólfur og bætir því við að þeir hafi ekkert ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur. „Lagið heitir Halo of Flies. Það er fremur kaflaskipt og yfir átta mín- útur,“ útskýrir Ingólfur en Dimma er nú að undirbúa upptökur á næstu plötu. Þeir neyðast reyndar til að nýta hvern dauðann tíma því á meðan Ingólfur heillar sænska og danska ferjugesti upp úr skón- um með töfrabrögðum er Silli á flakki um heiminn með Jónsa, oft- ast kenndum við Sigur Rós. Hins vegar vill svo skemmtilega til að þetta er ekki fyrsta heiðurs- ábreiðuplatan sem Dimma tekur þátt í því fyrir skemmstu kom út ámóta plata til heiðurs Queen. Og aftur kom Dennis Dunaway við sögu. „Við gerðum okkar eigin útgáfu af We Will Rock You. Þessi útgáfa komst í hendurnar á Brian May og ég fékk síðan í sumar handskrifað bréf frá honum þar sem hann þakkaði mér kærlega vel fyrir þessa útgáfu, hún væri bara nokkuð góð.“ freyrgigja@frettabladid.is INGÓLFUR GEIRDAL: FÉKK HANDSKRIFAÐ BRÉF FRÁ BRIAN MAY Dimma með þrjú lög á heiðursplötu Alice Cooper VINSÆLIR DIMMU-DRENGIR Dimma á þrjú lög á heiðurs- ábreiðuplötu tileinkaðri Alice Cooper. Tvö þeirra voru tekin upp á tónleikum hér á landi 2002 en hljómsveitin fór sérstaklega í hljóðver með Dennis Dunaway úr sveitinni frægu til að taka upp þriðja lagið. Dimma átti einnig lag á ábreiðuplötu til heiðurs Queen og gítarleikarinn hárfagri, Brian May, var svo ánægður með útgáfuna að hann sendi Ingólfi Geirdal handskrifað þakkarbréf. Hrönn Marinósdóttir og hennar fólk eru nú að leggja lokahönd á dagskrá RIFF-kvikmyndahátíð- arinnar í byrjun október. Nú er ljóst orðið að tónlistarmyndin Oddsac eftir leikstjórann Danny Perez verður sýnd á hátíðinni. Myndin hefur að geyma tónlist bandarísku hljóm- sveitarinnar Animal Collective. Perez og David Portner, liðsmaður Animal Collective, ætla að koma til landsins af þessu tilefni og munu svara spurning- um gesta að loknum sýningum. Einnig ætla þeir að koma fram sem plötu- snúðar á Venue laugardagskvöldið 2. október. Portner hefur undanfarin ár verið kvæntur Kríu Brekkan, sem heitir réttu nafni Kristín Anna Val- týsdóttir og er fyrrum meðlimur hljómsveitarinnar múm. Þau eru nú að ganga í gegnum skilnað en síðustu ár hafa þau búið saman í Brooklyn í New York. Fyrir þremur árum gáfu þau út plötuna Pullhair Rubeye sem var tilraunakennd í meira lagi því hún hafði að geyma átta lög sem voru öll spiluð aftur á bak. Þess má geta að Kría heldur tónleika í Norræna húsinu 27. september og er þeir einnig hluti af dagskrá RIFF. - fb FRÉTTIR AF FÓLKI Ef ég fæ mér morgunmat, sem gerist því miður of sjaldan, þá fæ ég mér yfirleitt hafragraut. Þórunn Antonía Magnúsdóttir, söng- og leikkona. Fjölmiðlakonan og rithöfundurinn Þorbjörg Marinósdóttir hefur staðfest þátttöku sína í Útsvari, spurningaþætti milli sveitarfélaga sem er að hefja göngu sína fjórða árið í röð í Ríkisjónvarpinu. Þorbjörg, eða Tobba Marinós eins og hún er gjarnan kölluð, keppir fyrir hönd sveitarfélags síns, Kópavogs, í spurningaleikn- um sívinsæla og mun eflaust reynast liðsstyrk- ur fyrir sitt lið enda með puttana á púlsinum á flestu sem er að gerast í samfélaginu í dag. Aðstandendur Útsvars eru þessa dagana að leggja lokahönd á liðaskipan í þáttunum og eiga áhorfendur eftir að sjá nokkur ný og óþekkt andlit berjast sín á milli í vetur. Til að mynda verða tvær konur í liði Ísafjarðarbæjar en það er víst erfiðara að fá konur til að taka þátt í spurningaþættinum en karlpeninginn og er mikil ánægju með það hjá RÚV hversu margar konur taka þátt að þessu sinni. Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur ætlar að taka þátt í fyrsta sinn fyrir hönd Seltjarnar- ness og Kolfinna Baldvinsdóttir ætlar einnig að spreyta sig á skjánum. Vilhjálmur Bjarnasson og Svanhildur Hólm ætla að taka upp forna frægð og keppa aftur fyrir hönd Garðabæjar og Reykja- víkur þetta árið en þau mættust einmitt í úrslit- um í fyrra þar sem lið Garðabæjar undir for- ystu Vilhjáms fór með sigur af hólmi. - áp Tobba Marinós og Yrsa keppa í Útsvari SPENNANDI KEPPNI Þorbjörg Marinós- dóttir verður í liði Kópavogsbæjar í spurningaþættinum Útsvari á RÚV. Yrsa Sigurðardóttir keppir fyrir Seltjarnarnes og Vilhjálmur Bjarnason fyrir Garðabæ. Finnski hesturinn (Stóra sviðið) Fös 15/10 Kl. 20:00 frums Lau 16/10 Kl. 20:00 2.sýn Lau 23/10 Kl. 20:00 3.sýn Lau 30/10 Kl. 20:00 4.sýn Sun 31/10 Kl. 20:00 5.sýn Fös 5/11 Kl. 20:00 6.sýn Lau 6/11 Kl. 20:00 7.sýn Fim 11/11 Kl. 20:00 8.sýn Fös 12/11 Kl. 20:00 9.sýn Ö U Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Lau 11/9 Kl. 13:00 Lau 11/9 Kl. 15:00 Sun 12/9 Kl. 13:00 Sun 12/9 Kl. 15:00 Lau 18/9 Kl. 13:00 Lau 18/9 Kl. 15:00 Sun 19/9 Kl. 13:00 Sun 19/9 Kl. 15:00 Lau 25/9 Kl. 13:00 Lau 25/9 Kl. 15:00 Sun 26/9 Kl. 13:00 Lau 2/10 Kl. 13:00 Lau 2/10 Kl. 15:00 Sun 3/10 Kl. 13:00 Sun 3/10 Kl. 15:00 Fíasól (Kúlan) Fös 10/9 Kl. 20:00 Lau 11/9 Kl. 20:00 Sun 12/9 Kl. 20:00 Fim 16/9 Kl. 20:00 Fös 17/9 Kl. 20:00 Lau 18/9 Kl. 20:00 Sun 19/9 Kl. 20:00 Fim 23/9 Kl. 20:00 Fös 24/9 Kl. 20:00 Lau 25/9 Kl. 20:00 Sun 26/9 Kl. 20:00 Fim 30/9 Kl. 20:00 Fös 1/10 Kl. 20:00 Lau 2/10 Kl. 20:00 Hænuungarnir (Kassinn) Fim 9/9 Kl. 19:00 Fös 10/9 Kl. 19:00 Fös 17/9 Kl. 19:00 Lau 18/9 Kl. 19:00 Sun 19/9 Kl. 19:00 Mið 22/9 Kl. 19:00 Fös 24/9 Kl. 19:00 Lau 25/9 Kl. 19:00 Fös 1/10 Kl. 19:00 Lau 2/10 Kl. 19:00 Sun 3/10 Kl. 15:00 Fös 8/10 Kl. 19:00 Lau 9/10 Kl. 19:00 Sun 17/10 Kl. 19:00 Sun 24/10 Kl. 19:00 Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Lau 11/9 Kl. 20:00 Ö Sun 12/9 Kl. 20:00 U Fim 16/9 Kl. 20:00 Fös 17/9 Kl. 20:00 síð.sýn. Fim 21/10 Kl. 20:00 Fös 22/10 Kl. 20:00 Fös 29/10 Kl. 20:00 Fim 4/11 Kl. 20:00 Hamskiptin (Stóra sviðið) Gerpla (Stóra sviðið) U U U U Ö Ö Ö U Ö Ö Ö U Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö U Ö Ö Ö Ö Ö U Ö Ö Sunnudaginn 5. sept. frá 14-16 Þér er boðið í skemmtilegustu afmælisveislu ársins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.