Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 9. september 2010 21 Ætla þau að svíkja? Umbúnaður ríkisstjórnar-innar um endurskoðun fiskveiðistjórnarkerfisins virðist bera með sér, að rík- isstjórnin hyggist bregðast fyrirheitum, sem hún gaf fólkinu í landinu. Í stjórnar- sáttmála Samfylkingarinnar og VG frá í maí 2009 stendur skýrum stöfum: „Bregðast þarf frekar við áliti Mannrétt- indanefndar Sameinuðu þjóð- anna, m.a. með því að gæta atvinnufrelsis og að tryggja að jafnræðis verði gætt við úthlutun afnotaréttarins og aðgengi að hinni sameigin- legu auðlind.“ Og enn fremur: „Lög um stjórn fiskveiða verði endurskoðuð í heild með það að markmiði að ... skapa sátt meðal þjóðarinnar um eignar- hald og nýtingu auðlinda sjáv- ar og leggja grunn að inn- köllun og endurráðstöfun aflaheimilda á 20 ára tímabili í samræmi við stefnu beggja flokka.“ Mannréttindabrot í boði vinstri stjórnar Ríkisstjórnin hefur ekki enn hirt um að afturkalla hroka- fullt svarbréf ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Sam- fylkingarinnar til Mannrétt- indanefndar SÞ, heldur hefur hún aðeins beðið nefndina um frekari frest. Boðskapur bréfsins – í reyndinni þess efnis, að íslenzkur sjávarút- vegur útheimti ítrekuð mann- réttindabrot – stendur því enn sem svar íslenzkra stjórn- valda til nefndarinnar. Sam- fylkingin getur ekki lengur kennt Sjálfstæðisflokknum um, að bréfið hefur ekki enn verið afturkallað. Ekki bara það: nú stýrir VG nýju dóms- mála- og mannréttindaráðu- neyti eins og til að bíta höfuðið af skömminni. Tvær leiðir Tvær tillögur lágu fyrir stjórnskipaðri nefnd, sem falið var að leggja á ráðin um endurskoðun fiskveiðilag- anna í samræmi við stjórn- arsáttmálann. Önnur tillag- an er kennd við „tilboðsleið“ og lýsir vandlegri útfærslu á fyrningu aflaheimilda á tut- tugu árum í samræmi við stjórnarsáttmálann, sem er vel í lagt eftir allt, sem á undan er gengið. Hin tillagan er kölluð „samningaleið“ og felur í sér uppgjöf ríkisstjórn- arinnar fyrir útvegsmönnum. Skýrsla nefndarinnar er óvönduð, í henni eru alvar- legar villur, og hún er lituð af hlutdrægum heimildum. Til dæmis eru rakin í þaula gömul rök íslenzkra lögfræðinga, þótt Mannréttindanefnd SÞ hafi fjallað rækilega um rökin og hafnað þeim. Meiri hluti nefndarinn- ar mælir með samningaleið- inni. Ekki þar fyrir, að ríkis- stjórnin hyggist semja um lausn málsins við þjóðina, svo sem orðalag stjórnarsátt- málans felur í sér. Nei, öðru nær, stjórnmálamennirnir hafa setið að samningum við útvegsmenn eina með gamla laginu og hafa þó aldrei feng- izt til að greina frá því fé, sem útvegsfyrirtækin hafa borið á flokkana árum saman líkt og bankarnir og önnur útrás- arfyrirtæki gerðu fram að hruni. Niðurstaða nefndarinn- ar bendir til, að ríkisstjórn- in ætli sér að rjúfa heitið um fyrningu kvótans á tuttugu árum og einnig vilyrði forsæt- isráðherra um að efna til þjóð- aratkvæðagreiðslu um málið. Þá reynir á forseta Íslands. Hann getur beitt málskots- rétti sínum til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu. Hyldjúpt skuldafen Hvers vegna býst ríkisstjórnin til að ganga á bak orða sinna? Hér þykknar þráðurinn. Upp- gjöfin helgast öðrum þræði af umhyggju stjórnmála- mannanna fyrir bönkunum. Sjávarútvegurinn er á hvín- andi kúpunni eins og jafnan áður og kann ekki annað, enda hefur hann verið á ríkisfram- færi í aldarfjórðung í gegnum ókeypis afnot af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. Skuldir margra útvegsfyrirtækja eru meiri en svo, að þau ráði við þær. Skuldasöfnunin stafar ýmist af gamalli óráðsíu, sem einkennir ævinlega atvinnu- greinar á langvinnu ríkis- framfæri, eða nýrri græðgi, sem birtist í því, að útvegsfyr- irtækin reyndu mörg að auðg- ast á glórulausu braski fram að hruni og veðsettu sameign- ina upp í rjáfur í því skyni. Þetta er alkunna, þótt ekki hafi enn verið gerð opinber grein fyrir þessum hluta upp- gjörs gömlu bankanna. Inni í eignasafni bankanna eru lán til útvegsfyrirtækja, sem þau geta mörg ekki staðið skil á. Því hafa erindrekar útvegsins gripið til þess ráðs að kenna fyrningu kvótans samkvæmt stjórnarsáttmálanum um aðsteðjandi fjárhagserfiðleika útgerðarinnar. Hitt er sönnu nær, að mörg útvegsfyrirtæki eiga ekki fyrir skuldum, jafn- vel þótt þau haldi áfram að þiggja ókeypis aðgang að sam- eignarauðlindinni. Útvegur- inn í heild er ámóta skuldugur og Reykjanesbær miðað við tekjur. Burt með brennuvargana Sannleikurinn um skulda- vanda sjávarútvegsins af völdum kvótakerfisins þarf að koma fram. Nóg er samt hræsnin og lygin, sem læsir sig um allt samfélagið. Greið leið að réttu marki er að halda fast við fyrningu kvótans, helzt á mun skemmri tíma en tuttugu árum, birta upp- lýsingar bankanna um stöðu útvegsins og leyfa þeim fyrir- tækjum, sem eiga ekki fyrir skuldum eða þykjast ekki geta greitt fyrir afnot sín af sam- eiginlegri auðlind þjóðarinnar, að skipta um eigendur. Þeir, sem settu sjávarútveginn í þrot, eiga ekki heima á fyrsta farrými. Þeim hæfir að sitja aftur í. Hið sama á við um stjórnmálastéttina og útrásar- liðið, sem keyrði Ísland í kaf. Þorvaldur Gylfason prófessor Í DAG Sannleikurinn um skuldavanda sjávarútvegsins af völdum kvótakerf- isins þarf að koma fram. Nóg er samt hræsnin og lygin, sem læsir sig um allt samfélagið. Greið leið að réttu marki er að halda fast við fyrningu kvótans. K ó p a v o g u r, S m i ð j u v e g i 6 8 - 7 0, s í m i 5 4 4 5 0 0 0 N j a r ð v í k , F it jabraut 12, sími 421 1399 S e l f o s s, Gagnhe ið i 2 , s ími 482 2722 SÓLNING Skútuvogi 2 | 104 Reykjavík | Sími 568 3080 | www.bardinn. is Mastercraft hefur framleitt dekk síðan 1909 og byggir því á yfir 100 ára reynslu. Mastercraft jeppadekk – nú á lægra verði Dekkin frá Mastercraft eru sérhönnuð fyrir stærri bifreiðar og jeppa og veita hámarksöryggi og eru á sama tíma einkar hljóðlát. Vertu því öruggari í vetur með Mastercraft undir bílnum. Pantaðu í síma 565 600 0 eða á w ww.som i.is Frí heim sending * FERSKT & ÞÆGILEGT TORTILLA VEISLUBAKKI EÐALBAKKI LÚXUSBAKKI DESERTBAKKI GAMLI GÓÐI TORTILLA OSTABAKKI 30 bitar 30 bitar 20 bitar 20 bitar 20 bitar 50 bitar Fyrir 10 manns ÁVAXTABAKKI Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm. *Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar. Skoðaðu nánar á somi.is A u g lý si n g a sí m i Allt sem þú þarft…
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.