Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 22
22 9. september 2010 FIMMTUDAGUR Ferðaþjónustan er á topp þremur listanum í öflun gjaldeyristekna hér á landi. Gjaldeyristekjur Íslands árið 2008 skiptust þannig að 29,7% voru af stóriðju, 26,3% af sjávarafurðum og 16,9% af erlendum ferðamönnum. Ef vel er haldið á mál- efnum ferðaþjónustunnar munu gjaldeyristekjur okkar aukast til muna. Áætlun um ferðamennsku á hálendinu Á mánudag var samþykkt þingsálykturnartillaga á Alþingi um gerð áætlunar um ferðamennsku á miðhá- lendi Íslands þannig að unnt sé að taka vel á móti þeim aukna fjölda ferðamanna sem ferðast um hálendið án þess að ganga of nærri því. Undirrituð er fyrsti flutningsmaður tillögunnar, en þingmenn úr öllum flokkum eru meðflutningsmenn. Nú verður það verk iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra að vinna áætlunina fyrir árslok 2013. Verkefni þetta er afar aðkallandi því mikilvægt er að hugað sé með skipulögðum hætti að nýt- ingu hálendisins og annarra lítt snortinna náttúrusvæða fyrir ferðaþjónustuna. Við viljum taka vel á móti ferðamönnum, erlend- um sem innlendum, án þess að ganga of nærri umhverfinu á sama tíma. Milljón ferðamenn 2016 Ísland nýtur vaxandi hylli ferða- manna. Sé litið til hlutfallslegrar aukningar síðustu ára má vænta þess að yfir ein milljón erlendra ferðamanna sæki landið heim árið 2016 en í fyrra voru þeir um 500.000 talsins. Hvernig ætlum við að taka á móti ferðamönnum svo að sem flestum líki á sama tíma og við verjumst ágangi á viðkvæmustu svæðunum? Til hvaða ferðamannahópa eigum við að höfða og hvert eigum við að beina þeim? Er hægt að dreifa ferðamönnunum á fleiri staði og á hvaða staði þá helst? Hvaða ferðamannahópar geta samnýtt svæði og á hvaða hátt svo ekki skapist togstreita milli þeirra? Erum við komin að þolmörkum einstakra svæða þ.a. verði ferða- mannafjöldinn meiri þar hnign- ar svæðunum, þau skemmast og ferðamenn verða óánægðir? Hvar liggja áherslur ferðaþjón- ustufyrirtækja, sveitarfélaga, ferðamanna og annarra hags- munahópa? Öllum þessu spurn- ingum þarf að leita svara við með öflugum rannsóknum í ferðamennsku og góðu samráði þegar áætlunin er unnin. Hálendið vinsælt Í ferðaþjónustu er Ísland kynnt á grundvelli hreinnar óspilltrar náttúru þar sem saman fer sér- stætt og fjölbreytilegt landslag og ósnortin víðerni. Um 42% landsins flokkast til ósnortinna víðerna. Ósnortin víðerni án jökla eru innan við 31% lands- ins og brýnt að huga vel að þess- um landsvæðum svo sérstaðan glatist ekki. Kannanir Ferða- málastofu (2006) sýna glögglega að vel hefur tekist til í kynn- ingarmálum en 76% erlendra ferðamanna koma til að upp- lifa náttúruna. Hálendið skipar þar mikilvægan sess en sam- kvæmt könnun Ferðamálastofu (2008) fara um 26% erlendra ferðamanna í Landmannalaug- ar, vinsælustu náttúruperlu hálendisins. Undirrituð gekk fjölsóttustu gönguleið landsins fyrir skömmu, Laugaveginn milli Landmannalauga og Þórs- merkur, alls 55 km. leið. Gist var í skálum Ferðafélags Íslands, en þar taka liprir skálaverðir vel á móti göngufólk í lok hvers göngudags. Þessa stórkostlegu leið ganga 8.000-10.000 manns árlega, útlendingar og Íslending- ar. Land þar sem slíka gönguleið er að finna og margar aðrar af sömu gæðum er auðugt, svo ekki sé minnst á alla hina mikilvægu áningarstaðina sem ferðamenn sækja heim um land allt. Atvinna og gjaldeyristekjur Ferðaþjónustan veitir mörg kær- komin atvinnutækifæri m.a. á landsbyggðinni. Með vaxandi fjölda ferðamanna skapast ný og mikilvæg störf. Ferðaþjón- ustan er á topp þremur listan- um í öflun gjaldeyristekna hér á landi. Gjaldeyristekjur Íslands árið 2008 skiptust þannig að 29,7% voru af stóriðju, 26,3% af sjávarafurðum og 16,9% af erlendum ferðamönnum. Ef vel er haldið á málefnum ferðaþjón- ustunnar munu gjaldeyristekjur okkar aukast til muna. Af fram- angreindu er ljóst að það er allra hagur að vinna áætlun um ferða- mennsku á miðhálendinu. Því fyrr, því betra. Hálendið Siv Friðleifsdóttir alþingismaður Föstudaginn 3. september síð-astliðinn var í tilefni Ljósa- nætur í Reykjanesbæ afhjúpað listaverk eftir bandaríska lista- manninn Todd McGrain. Verk Todd McGrain er því miður neyð- arleg endurtekning á verki eftir íslenska myndlistarmanninn Ólöfu Nordal, verki sem hefur staðið í 13 ár úti í Skerjafirði og er í eigu Listasafns Reykjavík- ur. Listaverk Ólafar er 120 cm hátt og er úr áli, það stendur á flæðis- keri í Skerjafirðinum og horfir til Eldeyjar, með álverið í Straums- vík í baksýn. Verk Todds er 157 cm hátt úr bronsi, staðsett við Valahnúk á Reykjanesi og horf- ir til Eldeyjar. Grunnhugmynd verkanna er hin sama, minna á að tegundin dó út vegna ásókn- ar manna og hversu viðkvæmt sampil náttúru og manns er. Verk Todd McGrain er hluti af „The Lost Bird Project“ sem listamaðurinn segist hafa verið að vinna að undanfarin ár til að minnast fimm norður-amerískra fuglategunda sem hefur verið útrýmt. Í undirbúningsvinnu sinni hefur hann án vafa rekist á upplýsingar um verk Ólafar og myndir af því. Siðferði í Höfundarréttur Harpa Björnsdóttir myndlistarmaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.