Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 28
 9. september 2010 FIMMTUDAGUR4 Finnur Guðni Þórðarson hefur getið sér gott orð frá því að hann lauk sveinsprófi í gullsmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 2004. Hann lærði hjá Dýrfinnu Torfadóttur á Akranesi frá árinu 2001 til 2004 og vann hjá henni eftir það til 2007 þegar hann ákvað að fara út í sjálfstæðan rekstur. „Í kjölfarið opnuðum við sameiginlega vinnustofu og versl- un að Stillholti 16-18, en erum þó með aðskilinn rekstur,“ segir Finnur. Hann vinnur mest með silfur en notar líka gull og alls kyns steina. „Ég hef síðan tals- vert verið að vinna upp úr gömlu gulli en þá kemur fólk með gam- alt skart og lætur vinna upp úr því nýtt,“ segir Finnur og mun það hafa aukist eftir kreppu. Hömruð áferð er nokkuð ein- kennandi fyrir skartgripi Finns en þó má sjá ýmsu öðru bregða fyrir. „Stórir aðilar á erlendri grund geta margir látið tvær línur á ári duga en það gengur ekki á Íslandi og þarf að bjóða upp á alla flóruna.“ Finnur segir starfið krefjandi en um leið skemmtilegt. „Ég handsmíða allt og er ekkert farinn að fjöldaframleiða eins og sumir kollegar mínir.“ Finn- ur tekur líka að sér viðgerðir en þá gildir að vanda vel til verka enda er hann oft með viðkvæma hluti, sem hafa persónulegt gildi, í höndunum. Finnur er með gripina sína í umboðssölu á Ísafirði, þaðan sem hann er ættaður, og á Selfossi en er auk þess að þreifa fyrir sér í Reykjavík og jafnvel á Akur- eyri. „Þá opnaði ég facebooksíðu í fyrra og hafa viðtökurnar verið vonum framar.“ Skartgripina er hægt að skoða nánar á www.finn- ur.is. vera@frettabladid.is Silfur og gamalt gull Gullsmiðurinn Finnur Guðni Þórðarson lætur æ meira að sér kveða en hann hóf sjálfstæðan rekstur á því herrans ári 2007. Hann vinnur mest með silfur og handsmíðar allt sem hann gerir. Finnur hóf sjálfstæðan rekstur á Akranesi fyrir þremur árum. MYNDIR/ ÖRN ARNARSON Finnur gerir hringa, hálsmen, eyrnalokka og armbönd ásamt því að bjóða talsvert úrval skartgripa fyrir karlmenn. Hér er annað dæmi um það nýjasta úr smiðju Finns. Hér má sjá hálsmen úr nýjustu línu Finns. Hömruð áferð er nokkuð ein- kennandi fyrir skargripi Finns. Linzi Stoppard fiðluleikari klæddist íburðarmiklum kjól þegar hún stillti sér upp með hermönnum í fullum skrúða í Hyde Park í London á dögunum. Uppátækið var ætlað til að vekja athygli á góðgerðasamkomu. Breski tískuhönnuðurinn Jasper Conran hannaði íburðarmikinn kjól fiðluleikarans Linzi Stoppard, sérstaklega fyrir fjáröflunar- kvöldverð sem fram fer 26. október næstkomandi þar sem safna á fyrir breska hermenn sem eiga um sárt að binda. Við það tækifæri munu yfir fimmtíu breskir fatahönnuðir sýna hönnun sína, þar á meðal Matthew Williamson, Victoria Beckham, Julien Macdonald og Paul Smith. Þá verða boðnir upp munir gefnir af stjörnum á borð við Dame Helen Mirren, Stephen Webster og Stephen Fry og sérstök útgáfa af Range Rover jeppa af árgerð 2011 til Tíska til fjáröflunar Linzi Stoppard vekur athygli á fjáröflunar- kvöldverði í Hyde Park í London. Sofia Coppola er þekktust sem leikstjóri kvikmynda á borð við Lost in Translation og Marie Antoinette. Hún hefur einnig hannað töskur fyrir hátísku- merkið Louis Vuitt- on. Nýjasta töskulína hennar kemur í verslanir í október á þessu ári. stylefrizz.com Sími 694 7911 Eikjuvogur 29, 104 Rvk. Opið mán.fim 12–18, fös. 12–16, lau. lokað Haust og vetrar- línan komin. Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504 Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 90 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.