Fréttablaðið - 09.09.2010, Page 21
FIMMTUDAGUR 9. september 2010 21
Ætla þau að svíkja?
Umbúnaður ríkisstjórnar-innar um endurskoðun
fiskveiðistjórnarkerfisins
virðist bera með sér, að rík-
isstjórnin hyggist bregðast
fyrirheitum, sem hún gaf
fólkinu í landinu. Í stjórnar-
sáttmála Samfylkingarinnar
og VG frá í maí 2009 stendur
skýrum stöfum: „Bregðast
þarf frekar við áliti Mannrétt-
indanefndar Sameinuðu þjóð-
anna, m.a. með því að gæta
atvinnufrelsis og að tryggja
að jafnræðis verði gætt við
úthlutun afnotaréttarins og
aðgengi að hinni sameigin-
legu auðlind.“ Og enn fremur:
„Lög um stjórn fiskveiða verði
endurskoðuð í heild með það
að markmiði að ... skapa sátt
meðal þjóðarinnar um eignar-
hald og nýtingu auðlinda sjáv-
ar og leggja grunn að inn-
köllun og endurráðstöfun
aflaheimilda á 20 ára tímabili
í samræmi við stefnu beggja
flokka.“
Mannréttindabrot
í boði vinstri stjórnar
Ríkisstjórnin hefur ekki enn
hirt um að afturkalla hroka-
fullt svarbréf ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokksins og Sam-
fylkingarinnar til Mannrétt-
indanefndar SÞ, heldur hefur
hún aðeins beðið nefndina
um frekari frest. Boðskapur
bréfsins – í reyndinni þess
efnis, að íslenzkur sjávarút-
vegur útheimti ítrekuð mann-
réttindabrot – stendur því enn
sem svar íslenzkra stjórn-
valda til nefndarinnar. Sam-
fylkingin getur ekki lengur
kennt Sjálfstæðisflokknum
um, að bréfið hefur ekki enn
verið afturkallað. Ekki bara
það: nú stýrir VG nýju dóms-
mála- og mannréttindaráðu-
neyti eins og til að bíta höfuðið
af skömminni.
Tvær leiðir
Tvær tillögur lágu fyrir
stjórnskipaðri nefnd, sem
falið var að leggja á ráðin um
endurskoðun fiskveiðilag-
anna í samræmi við stjórn-
arsáttmálann. Önnur tillag-
an er kennd við „tilboðsleið“
og lýsir vandlegri útfærslu á
fyrningu aflaheimilda á tut-
tugu árum í samræmi við
stjórnarsáttmálann, sem
er vel í lagt eftir allt, sem á
undan er gengið. Hin tillagan
er kölluð „samningaleið“ og
felur í sér uppgjöf ríkisstjórn-
arinnar fyrir útvegsmönnum.
Skýrsla nefndarinnar er
óvönduð, í henni eru alvar-
legar villur, og hún er lituð af
hlutdrægum heimildum. Til
dæmis eru rakin í þaula gömul
rök íslenzkra lögfræðinga,
þótt Mannréttindanefnd SÞ
hafi fjallað rækilega um rökin
og hafnað þeim.
Meiri hluti nefndarinn-
ar mælir með samningaleið-
inni. Ekki þar fyrir, að ríkis-
stjórnin hyggist semja um
lausn málsins við þjóðina,
svo sem orðalag stjórnarsátt-
málans felur í sér. Nei, öðru
nær, stjórnmálamennirnir
hafa setið að samningum við
útvegsmenn eina með gamla
laginu og hafa þó aldrei feng-
izt til að greina frá því fé, sem
útvegsfyrirtækin hafa borið
á flokkana árum saman líkt
og bankarnir og önnur útrás-
arfyrirtæki gerðu fram að
hruni. Niðurstaða nefndarinn-
ar bendir til, að ríkisstjórn-
in ætli sér að rjúfa heitið um
fyrningu kvótans á tuttugu
árum og einnig vilyrði forsæt-
isráðherra um að efna til þjóð-
aratkvæðagreiðslu um málið.
Þá reynir á forseta Íslands.
Hann getur beitt málskots-
rétti sínum til að knýja fram
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hyldjúpt skuldafen
Hvers vegna býst ríkisstjórnin
til að ganga á bak orða sinna?
Hér þykknar þráðurinn. Upp-
gjöfin helgast öðrum þræði
af umhyggju stjórnmála-
mannanna fyrir bönkunum.
Sjávarútvegurinn er á hvín-
andi kúpunni eins og jafnan
áður og kann ekki annað, enda
hefur hann verið á ríkisfram-
færi í aldarfjórðung í gegnum
ókeypis afnot af sameiginlegri
auðlind þjóðarinnar. Skuldir
margra útvegsfyrirtækja eru
meiri en svo, að þau ráði við
þær. Skuldasöfnunin stafar
ýmist af gamalli óráðsíu, sem
einkennir ævinlega atvinnu-
greinar á langvinnu ríkis-
framfæri, eða nýrri græðgi,
sem birtist í því, að útvegsfyr-
irtækin reyndu mörg að auðg-
ast á glórulausu braski fram
að hruni og veðsettu sameign-
ina upp í rjáfur í því skyni.
Þetta er alkunna, þótt ekki
hafi enn verið gerð opinber
grein fyrir þessum hluta upp-
gjörs gömlu bankanna. Inni í
eignasafni bankanna eru lán
til útvegsfyrirtækja, sem þau
geta mörg ekki staðið skil á.
Því hafa erindrekar útvegsins
gripið til þess ráðs að kenna
fyrningu kvótans samkvæmt
stjórnarsáttmálanum um
aðsteðjandi fjárhagserfiðleika
útgerðarinnar. Hitt er sönnu
nær, að mörg útvegsfyrirtæki
eiga ekki fyrir skuldum, jafn-
vel þótt þau haldi áfram að
þiggja ókeypis aðgang að sam-
eignarauðlindinni. Útvegur-
inn í heild er ámóta skuldugur
og Reykjanesbær miðað við
tekjur.
Burt með brennuvargana
Sannleikurinn um skulda-
vanda sjávarútvegsins af
völdum kvótakerfisins þarf
að koma fram. Nóg er samt
hræsnin og lygin, sem læsir
sig um allt samfélagið. Greið
leið að réttu marki er að halda
fast við fyrningu kvótans,
helzt á mun skemmri tíma
en tuttugu árum, birta upp-
lýsingar bankanna um stöðu
útvegsins og leyfa þeim fyrir-
tækjum, sem eiga ekki fyrir
skuldum eða þykjast ekki geta
greitt fyrir afnot sín af sam-
eiginlegri auðlind þjóðarinnar,
að skipta um eigendur. Þeir,
sem settu sjávarútveginn í
þrot, eiga ekki heima á fyrsta
farrými. Þeim hæfir að sitja
aftur í. Hið sama á við um
stjórnmálastéttina og útrásar-
liðið, sem keyrði Ísland í kaf.
Þorvaldur Gylfason
prófessor
Í DAG
Sannleikurinn um skuldavanda
sjávarútvegsins af völdum kvótakerf-
isins þarf að koma fram. Nóg er samt
hræsnin og lygin, sem læsir sig um
allt samfélagið. Greið leið að réttu marki er að halda
fast við fyrningu kvótans.
K ó p a v o g u r, S m i ð j u v e g i 6 8 - 7 0, s í m i 5 4 4 5 0 0 0
N j a r ð v í k , F it jabraut 12, sími 421 1399
S e l f o s s, Gagnhe ið i 2 , s ími 482 2722 SÓLNING Skútuvogi 2 | 104 Reykjavík | Sími 568 3080 | www.bardinn. is
Mastercraft hefur framleitt dekk
síðan 1909 og byggir því á yfir
100 ára reynslu.
Mastercraft jeppadekk
– nú á lægra verði
Dekkin frá Mastercraft eru sérhönnuð fyrir stærri bifreiðar og jeppa og veita
hámarksöryggi og eru á sama tíma einkar hljóðlát. Vertu því öruggari í vetur
með Mastercraft undir bílnum.
Pantaðu
í síma
565 600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
FERSKT & ÞÆGILEGT
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
Skoðaðu nánar á somi.is
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…