Fréttablaðið - 17.09.2010, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 17.09.2010, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 17. september 2010 13 Í Fréttablaðinu hinn 10. septemb-er sl. birtist fréttaskýring þar sem tveir kennarar við Iðnskólann í Hafnarfirði (IH), Margrét Ing- ólfsdóttir og Sigríður Júlía Bjarna- dóttir, ryðja úr sér svo dæma- lausum rangfærslum og óhróðri um sannkallaðan heiðursmann, Jóhannes Einarsson, skólameist- ara skólans, að mann setur hljóðan. Sér undirritaður sig því knúinn til að koma á framfæri eftirfarandi sjónarmiðum. Undirritaður hefur verið for- maður skólanefndar IH sl. 10 ár og hefur skólinn þann tíma og gott betur búið að því að hafa við stjórnvölinn mjög hæfan og vand- aðan skólameistara, Jóhannes Einarsson, sem hefur verið vak- inn og sofinn yfir velferð skólans svo eftir hefur verið tekið. Hefur skólameistari ávallt gengið skref- inu lengra en þörf hefur kraf- ist hverju sinni og leitast við að búa kennurum skólans sem besta aðstöðu þrátt fyrir að skólan- um hafi verið, og er enn, þröngur stakkur skorinn af húsnæði sínu. Þær „langvarandi deilur“ sem fréttaskýringin vísar til eiga rætur sínar að rekja til ágrein- ings um launamál tilkomnu vegna breytinga á fyrirkomulagi kennslu skólaárið 2001-2002 og svo aftur skólaárið 2003-2004. Það mál varð því miður undir lokin að hitamáli innan skólans en var til lykta leitt með úrskurði Félagsdóms kennur- um í vil þann 12. maí 2009. Fjármálaráðuneytið fór með for- ræði málsins fyrir hönd skólans og fyrirbauð að nokkuð það yrði aðhafast sem breytt gæti mála- vöxtum áður en dómur gengi og við það varð að una. Það lögfræðiálit sem Margrét Ingólfsdóttir, þáver- andi formaður kennarafélags IH, sendi undirrituðum, og vísað er til í fréttaskýringunni, sendi hún reyndar allri skólanefndinni þann 19. maí 2008, ári fyrir úrskurð Félagsdóms, og voru nefndarfull- trúar fyllilega meðvitaðir um efni þess. Skólayfirvöld voru þó bund- in stjórnvalds fyrirmælum og var Margrét Ingólfsdóttir upplýst um það af undirrituðum þann 22. maí 2008. Jafnframt var hún vinsam- legast beðin um að beita sér fyrir því að friður ríkti innan skól- ans þar til málið væri útkljáð. Sú beiðni var virt að vettugi. Þegar athygli kennara hafði verið vakin á því að þeir gætu átt inni vangoldin laun stóðu þeir nokkuð einhuga með formanni sínum í því að láta reyna á kröf- una. Er ekkert nema gott eitt um það að segja því allir hafa rétt á að gæta eigin hagsmuna. Stóð Mar- grét Ingólfsdóttir þó þennan tíma fyrir stöðugum uppákomum og skeytasendingum til kennara skól- ans, KÍ og menntamálaráðuneytis sem miðuðu að því einu að ófrægja skólameistara hvar sem einhver nennti á að hlusta. Að dómnum gengnum voru kenn- urum greidd vangoldin laun sín með áunnum dráttarvöxtum. Mátti þá ætla að málinu lyki og að aðil- ar þess slíðruðu sverðin skólanum til heilla og benti margt til þess að svo yrði. Núverandi og fyrrverandi kennarar skólans fengu umtals- verða greiðslu í sína hönd og gátu unað vel við sitt. Margrét Ingólfs- dóttir kaus þó með stuðningi stöllu sinnar, Sigríðar Júlíu Bjarnadótt- ur, að halda áfram ófrægingarher- ferð sinni á hendur skólameistara. Nú er ljóst að Margrét Ingólfs- dóttir, í krafti formennsku sinnar í kennarafélagi skólans, afhenti menntamálaráðherra bréf eftir niðurstöðu Félagsdóms þar sem hún „krafðist“ að gerð yrði stjórn- sýsluúttekt á skólanum, væntan- lega svo klekkja mætti frekar á skólameistara. Jafnframt virðist Margrét hafa sagt í bréfi sínu að skólameistari láti þá „finna fyrir því“ sem ekki eru honum „sam- mála … í einu og öllu“ og að þeir hinir sömu fái m.a. „leiðinlegar“ stundatöflur. Um þetta er það eitt að segja að skólameistari hefur ekki komið nálægt stundatöflugerð í IH síðan árið 2000 svo hér var staðreyndum hliðrað vondum mál- stað til framdráttar. Kröfu Margrétar Ingólfsdóttur um stjórnsýsluúttekt var auðvitað hafnað af ráðuneytinu og telja má að það „sinnuleysi“ sem stjórnvöld eru ásökuð um í fyrirsögn frétta- skýringarinnar stafi af því einu að málstaðurinn og efni bréfsins hafi talist sjálfsþjónkandi. Gekk loks svo langt að kennarar skólans fengu sig fullsadda af og féllu allir sem einn frá stuðningi sínum við Margréti til frekari formennsku í kennarafélagi skólans. Haustið 2009 var kosin ný stjórn fyrir kennarafélagið og hefur sú stjórn stutt við bakið á skóla- meistara sínum og haft við hann eðlileg skoðanaskipti eins og vera ber. Auk þessa skrifuðu kennar- ar skólans undir eindregna stuðn- ingsyfirlýsingu við skólameistara, þar sem hinu rétta í ofangreind- um málefnum skólans var lýst. Var yfirlýsingin send menntamálaráð- herra til upplýsingar. Hefur frá þessum tíma ríkt góður friður og eindrægni á milli stjórnenda og kennara skólans, þó með framan- greindum undantekningum. Jóhannes Einarsson, skólameist- ari IH, hefur nú að eigin undirlagi ákveðið að láta af störfum frá og með 1. janúar 2011, liðlega ári fyrr en aldur hans krefst. Skólanefnd er mikil eftirsjá af Jóhannesi vegna starfa hans því samstarfið við hann hefur ávallt verið með mikl- um ágætum. Vonar nefndin að vel takist til með að finna eftirmann Jóhannesar, en þar er í stór spor að fara og ekki allra að gera svo vel sé. Undirritaður er þó ósam- mála því að leggja beri áherslu á að ráða ekki einhvern hinna fjöl- mörgu hæfu kennara skólans til að taka við starfi skólameistara sýndu einhverjir þeirra því áhuga. Undirritaður telur að fari svo að nýr skólameistari komi úr röðum núverandi kennara eða stjórn- enda skólans, fólks sem gjörþekk- ir allt hans innra starf, geti það varla komið skólanum til annars en góðs. Skólanefnd mun þó í þessu sambandi rækja sína lögformlegu skyldu að veita ráðherra umsögn um þá umsækjendur sem uppfylla þau hæfisskilyrði sem auglýst var eftir. Það er sláandi að á þessum tíma- punkti starfsloka Jóhannesar sé á afar óbilgjarnan hátt og af hvöt- um sem erfitt er að skilja reynt að koma á hann höggi og sverta með því starfsheiður hans og óflekkað- an starfsferil. Er nú berlega komið í ljós að þar fara fyrir skjöldu framangreindir tveir kennarar skólans, sem og einhverjir ónefnd- ir fyrrverandi kennarar sem vel er þó vitað hverjir eru. Þessu fólki væri nær að líta í eigin barm. Veld- ur hver á heldur. Í ljósi þess sem hér hefur verið greint frá má ætla að farsælast væri fyrir skólann og starfsfólk hans að ofangreindir tveir kennar- ar leituðu fyrir sér um annað starf við annan skóla eða aðra stofn- un svo einangraðar sem þær eru innan skólans í afstöðu sinni og neikvæðni. „Ósættið“ við Iðn- skólann í Hafnarfirði Skólamál Björn Ingi Sveinsson formaður skólanefndar IH . . . farsælast væri fyrir skólann og starfs- fólk hans að ofangreindir tveir kennarar leituðu fyrir sér um annað starf. Bryndís Ósk Þ. Ingólfsdóttir, Námufélagi og nemi í kvikmyndafræði La us n: Kv ik m yn d at ja ld Aukakrónur fyrir Námufélaga E N N E M M / S ÍA / N M 4 3 3 6 9 N B I h f. ( L a n d s b a n k in n ), k t. 4 7 10 0 8 -0 2 8 0 . * G ild ir í L au g ar ás b íó i, S m ár ab íó i, H ás kó la b íó i o g B or g ar b íó i m án .- fim . s é g re it t m eð N ám uk or ti Náman leggur námsmönnum lið með því að bjóða hagstæðari kjör, betri yfirsýn yfir fjármálin, 2 fyrir 1 í bíó*, 150 fríar færslur á ári, Námu A-kort með Aukakrónusöfnun auk fjölda annarra fríðinda. NÁMAN | landsbankinn.is | 410 4000 Það er leikur að læra með Námunni. Kíktu á Námuna á Facebook Svakalegar steikur fyrir helgina. HUMAR - LAXAFLÖK - LÚÐUSTEIKUR -SALTFISKUR OG FLEIRA OG FLEIRA 1290kr. kg. Núna er ég alveg að missa vitið, bjóða humar á 1290 kr.kg!!!!!! ja hérna........... en sjáumst hress á eftir Tilboðið gildir í dag og á morgun Föstudagur opið 8.00 - 18.00 Laugardagur opið 10.00 - 14.00 Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 Sogavegur SAMA VERÐ Á ÖLLUM FISKI Í FISKBORÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.