Fréttablaðið - 11.10.2010, Síða 2

Fréttablaðið - 11.10.2010, Síða 2
2 11. október 2010 MÁNUDAGUR Birna, vilja læknar ekki lækna Íslendinga af kreppunni? „Jú, enda féllum við frá níu prósenta taxtahækkun í upphafi kreppunnar.“ Birna Jónsdóttir er formaður Læknafélags Íslands. Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, segir sérgreinlækna ekki hafa vilja lækka taxta sína og taka þannig þátt í að koma Íslandi úr skulda- feninu. FÓLK Gissur Ólafur Erlingsson, lang- afi aðalstjörnu óperunnar Rigol- etto, Ólafs Kjartans Sigurðarsonar, mætti á generalprufu sýningarinn- ar á fimmtudaginn. Ólafur Kjartan sjálfur er nýlega orðinn afi þannig að Gissur er þar með orðinn langa- langalangafi en Gissur varð 101 árs í mars síðastliðnum. Rigoletto var frumsýnd á laugardaginn var. „Ég hef séð Ólaf Kjartan syngja þó nokkrum sinnum, hann skilur mig aldrei út undan á gestalistan- um þegar hann syngur hér heima,“ segir Gissur Ólafur. „Mér þótti þetta alveg stórkostlegt, en að vísu þykir mér alltaf best það sem ég sá síðast.“ Gissur Ólafur, sem er fyrr- verandi umdæmisstjóri Pósts og síma á Seyðisfirði og starfaði jafn- framt sem bóka- og skjalaþýðandi, á í dag nærri 150 afkomendur. Þeir langfeðgar Ólafur Kjartan og Giss- ur Ólafur halda góðu sambandi, senda hvor öðrum tölvupóstskeyti milli landa sem innihalda gjarnan limrur. „Jú, ég er líka á Facebook en er orðinn leiður á henni og því lítið þar inni,“ bætir Gissur við. „Langafi vildi fremur koma á generalprufuna en frumsýninguna til að þurfa ekki að vera að þvælast svona síðla kvölds. Hann sat fyrir miðju á þriðja bekk eins og höfð- ingi og hafði þá daginn áður verið á hádegistónleikum í Hafnarborg. Hann er mikill menningarneytandi og ótrúlega sprækur, líkamlega og andlega. þrátt fyrir háan aldur. Hann gaf mér góða krítík sem var mér mikils virði,“ segir óperusöngv- arinn sjálfur, Ólafur Kjartan. „Auðvitað er hálflygilegt að barnabarn mitt eigi langalanga- langafa á lífi, maður klípur sig á hverjum degi að þetta sé hægt. Ég er jafnframt svo lánsamur að geta kallað langafa góðan félaga um leið en þar sem ég bý erlendis skiptumst við á tölvupóstum. Lang- afi hefur leiðrétt tímaskynið hjá manni, mörgum þykir sem óperur tilheyri svo löngu liðnum tíma en þegar hann fæddist voru einung- is sextíu ár frá því að Verdi samdi Rigoletto.“ Ættliðirnir sem hafa séð Rigoletto eru fimm en sjá sjötti og yngsti er aðeins sjö mánaða og fékk því ekki að vera með. Frumsýningin gekk að Ólafs sögn afar vel, við glimrandi undirtektir. „Maður er hálforðlaus yfir viðtökunum og Íslendingar er greinilega ekki orðnir leiðir á óper- um. Það eru sem betur fer ekki allir Ásbjörn.“ juliam@frettabladid.is Fimm ættliðir af sex hafa séð Rigoletto Aðalstjarna óperunnar Rigoletto sem frumsýnd var á laugardagskvöld, Ólafur Kjartan Sigurðarson, fékk fimm kynslóðir ættingja sinna á sýninguna. Þeirra á meðal er langafi Ólafs, sem jafnframt er langalangalangafi afabarns Ólafs. Á 150 AFKOMENDUR Gissur Ólafur Erlingsson, langafi Ólafs Kjartans Sigurðarsonar barítónsöngvara, við generalprufu á óperunni Rigoletto í Íslensku óperunni. MYND/AUÐUR CHILE, AP Fyrstu námumennirnir af þeim 33 sem hafa verið lokaðir niðri í námugöngum síðan í ágúst eiga nú von á því að komast út undir bert loft á miðvikudaginn. Um helgina tókst að bora ný göng niður til þeirra en verið er að styrkja þau að innan með málmröri svo þau falli ekki saman. Mennirnir verða fluttir upp á yfirborðið einn í einu í þar til gerðu hylki og er búist við að á annan sólarhring taki að koma þeim öllum út undir bert loft. Á miðvikudag verða liðnir 69 dagar frá því að mennirnir lokuð- ust inni. - gb Námumennirnir í Chile: Út undir bert loft í vikunni GÖNGIN STYRKT Á miðvikudag er talið að hefja megi björgun. FRÉTTABLAÐIÐ/AP UNGVERJALAND, AP Óhjákvæmilegt er að stífla úrgangslóns við súrál- verksmiðju í Ungverjalandi bresti með nýju flóði rauðrar eiturleðju, að því er haft er eftir Zoltan Illes, umhverfisráðherra Ungverja- lands. Hann segir hagstæð veðurskil- yrði valda því að sprungurnar, sem nýlega uppgötvuðust á norður- vegg lónsins, hafi hætt að víkka út, en þegar veðurskilyrði breytist muni þær víkka að nýju. Verið er að gera við sprungurnar og reisa nýja varnarveggi utan um lónið en óvíst er hvort sú vinna gangi nægilega hratt. Bresti stífluveggurinn má búast við nýju flóði rauðrar leðju sem berast myndi yfir nærliggj- andi svæði allt að kílómetra til norðurs. Nær allir íbúar bæjarins Kolont- ar, 800 talsins, yfirgáfu heimili sín um helgina vegna þessarar hættu. Íbúar bæjarins Devecser, sem er örlitlu norðar, voru beðnir um að pakka nauðsynjum niður í tösku og vera búnir undir að hverfa á braut með örskömmum fyrirvara. - gb Sprungur í stíflu úrgangslóns í Ungverjalandi ógna lífríkinu enn frekar: Nýtt leðjuflóð óhjákvæmilegt ALLT Á FLOTI Rauða leðjan verður til þegar báxít er unnið svo úr verði súrál, hráefni sem notað er í álverksmiðjum. NORDICPHOTOS/AFP BANDARÍKIN, AP Átta menn voru handteknir í gær í New York fyrir að hafa gengið hrottalega í skrokk á tveimur unglingspilt- um og einum fullorðnum manni. Svo virðist sem andúð á samkyn- hneigð fórnarlambanna hafi verið ofbeldishvatinn. Mennirnir réðust fyrst á annan piltinn, hinn 3. október, leituðu síðan uppi hinn piltinn og mis- þyrmdu honum, en buðu loks þrí- tugum manni heim þar sem þeir pyntuðu hann klukkustundum saman. Málið hefur vakið óhug í borg- inni, en undanfarið hafa fjölmarg- ir samkynhneigðir unglingar stytt sér aldur í Bandaríkjunum vegna hótana og ofbeldis sem þeir höfðu orðið fyrir. - gb Ofbeldisverk í New York: Gengu í skrokk á unglingum STJÓRNMÁL Fundað verður með full- trúum stjórnarandstöðunnar vegna hugmynda um almenna niðurfærslu skulda heimila landsins í dag. Jóhanna Sigurðardóttir forsæt- isráðherra, Guðbjartur Hannesson félagsmálaráðherra og Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra fund- uðu ásamt umboðsmanni skuldara og embættismönnum úr ráðuneyt- um lausnir á skuldavanda heimil- anna á laugardag. Niðurstaða þess fundar var að kanna hvort almenn niðurfærsla skulda væri raunhæf leið til lausnar. Hafin er vinna í fjármálaráðuneytinu um hvaða áhrif niðurfærslan kunni að hafa á ríkissjóð. Hagsmunasamtök heimilanna hafa talað fyrir almennri niður- færslu skulda og fagna því að ríkis- stjórnin kanni hvort hægt sé að ráðast í þá aðgerð. Jóhanna Sigurðardóttir og Ögmundur Jónasson kalla eftir þjóðarsátt um almenna niðurfærslu skulda. Fram kom í máli Ögmund- ar í fréttum Stöðvar tvö í gær að ekki mætti einblína á kostnað held- ur þyrfti að skoða afskriftir skulda út frá fjármálakerfinu í heild. Áframhaldandi fundir um lausn skuldavandans eru boðaðir í vik- unni. - mmf Forsætisráðherra kallar eftir þjóðarsátt um almenna niðurfærslu skulda: Rætt við stjórnarandstöðuna í dag ÍSRAEL, AP Mitt í viðkvæmum friðar viðræðum við Palestínu- menn hefur Ísraelsstjórn sam- þykkt að gera öllum sem sækja um ísraelskan ríkisborgararétt skylt að sverja ríkinu hollustueið sem „ríki gyðinga“. Nýju reglurnar voru samþykkt- ar á ríkisstjórnarfundi í gær, þrátt fyrir andstöðu ráðherra úr Verkamannaflokknum og þrátt fyrir mótmæli bæði mannrétt- indahópa og arabíska minnihlut- ans í Ísrael. - gb Ísraelsstjórn setur nýjar reglur: Sverja þarf eið að ríki gyðinga Ysta hægrið vinnur á Frelsisflokkurinn í Austurríki, þekktur fyrir andstöðu gegn innflytjendum, vann verulega á í borgarstjórnarkosn- ingum í Vínarborg í gær. Flokkurinn fékk rúmlega 27 prósent atkvæða og er nú næst stærstur flokka borgarinnar. AUSTURRÍKI FÓLK Ungir Íslendingar eru líklegri til að vera í sambúð en gengur og gerist meðal ríkja Evrópusam- bandsins (ESB). Í nýbirtri könnun Eurostat, töl- fræðiskrifstofu ESB, kemur í ljós að 54 prósent kvenna og 47 prósent karla á aldrinum 18-34 ára eru í sambúð, hvort sem þau eru gift eða ógift. Það er nokkru hærra hlutfall en í ríkjum ESB þar sem heild- arhlutfallið er 48 prósent meðal kvenna og 36 prósent meðal karla. Hæst var hlutfallið meðal Finna, þar sem 63 prósent kvenna og 51 prósent karla eru í sambúð. - þj Könnun á heimilishögum: Margir Íslend- ingar í sambúð Fjölskylda gaf 2 milljónir Sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Suð- urnesja fékk tveggja milljóna króna gjöf til tækjakaupa frá fjölskyldu í Garðinum. Gjöfin var þakklætisvottur fyrir umhyggju og fagmennsku sem starfsfólkið veitti fjölskylduföðurnum í líknandi meðferð. LÍKNARMÁL FORSÆTISRÁÐHERRA Hefur boðað fulltrúa stjórnarandstöðu til fundar um skuldamálin. SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.