Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.10.2010, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 11.10.2010, Qupperneq 4
4 11. október 2010 MÁNUDAGUR FRÉTTASKÝRING Breytir synjun slitastjórnar Spari- sjóðabankans á kröfu Seðlabankans einhverju um endanlegt tap Seðla- bankans? Þó að ríkissjóður og Seðlabankinn hafi gert yfir 200 milljarða kröfu í bú Sparisjóðabankans (áður Ice- bank) var aldrei reiknað með að sú fjárhæð fengist greidd. Ástæð- an er einföld; eignir búsins eru aðeins nokkrir tugir milljarða. Það er hins vegar venja í málum sem þessu að menn krefjist þess sem þeir telja sig eiga. Slitastjórn Sparisjóðabankans hafnaði kröfunum. Ekki er þó þar með sagt að niðurstaðan verði sú að Seðlabankinn fái ekki neitt. „Það kemur til álita að hann [Seðlabankinn] yfirtaki kröfu okkar á þá [gömlu viðskiptabank- ana],“ sagði Andri Árnason, for- maður slitastjórnarinnar, í sam- tali við Fréttablaðið í september. Sigli samningaviðræður þar um í strand verður það dómstóla að skera úr um. Krafa Seðlabankans á Spari- sjóðabankann er vegna lána sem Sparisjóðabankinn fékk hjá Seðla- bankanum og lánaði áfram til við- skiptabankanna þriggja. Að veði voru skuldabréf, gefin út af bönk- unum. Við fall þeirra hrundi verð- mæti bréfanna. Ósennilegt er að hver einasta króna sem Seðlabankinn lán- aði með þessum hætti sé honum eða ríkissjóði endanlega glötuð. Þó að ekki takist samningar við slitastjórnina um yfirtöku krafna í bú viðskiptabankanna og þó að Aldrei reiknað með að 200 milljarðar fengjust Krafa Seðlabankans í bú Sparisjóðabankans er ekki með öllu glötuð þó að slita- stjórn hafi hafnað henni. Seðlabankinn gæti eignast kröfur Sparisjóðabankans á bú gömlu bankanna. Ár eru í að endanlegt tap Seðlabankans liggi fyrir. Fjallað er um „ástarbréfaviðskiptin“ í skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis. Í skýrslutöku var Davíð Oddsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri, spurður hvort ekki hefði komið til greina að taka önnur og traustari veð fyrir lánunum til bankanna en óvarin skuldabréf þeirra. „Davíð svaraði: „Mínar skýringar eru þessar: Það var auðvitað vitað, og það kemur fram í fundargerðum í bankaráðinu, ég sagði frá því í bankaráðinu, að þessi ástarbréf – eins og ég kalla þau, ég bjó nú til það nafn – væru, ef allt færi á versta veg, í eðli sínu ákveðin froða og því gerði ég ríkisstjórninni auðvitað grein fyrir. En um leið og við segjum að Sparisjóður Reykjavíkur eða Sparisjóður Keflavíkur eða Spari- sjóðabankinn – við tækjum ekki mark á bréfi sem Landsbankinn ábyrgðist af því að við teljum að hann mundi fara á hausinn þá færi hann á hausinn, ekki daginn eftir heldur síðdegis þann sama dag. Svona var þetta.“ Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis Davíð Oddsson um veðin sem SÍ tók dómstólar dæmi slitastjórninni í vil á Seðlabankinn enn veðin. Þó að virði þeirra hafi hrunið eru þau ekki með öllu verðlaus. Endanlegt tap Seðlabankans af lánveitingum til viðskiptabank- anna í gegnum smærri banka er enn óljóst. Talið er að það muni liggja á bilinu tvö til þrjú hundr- uð milljarðar. Heimtur úr búum bankanna ráða mestu um hver niðurstaðan verður en ár og dagar eru í að það liggi fyrir. bjorn@frettabladid.is VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 17° 14° 12° 17° 19° 11° 11° 25° 17° 25° 21° 31° 10° 17° 24° 8°Á MORGUN 5-10 m/s V-til, annars hægari. MIÐVIKUDAGUR Veður breytist lítið. 9 12 10 5 12 12 10 12 11 11 8 8 6 6 4 2 1 2 1 2 2 4 10 9 10 13 11 10 11 11 9 12 HÆGLÆTIS VEÐUR víðast hvar á land- inu í dag og næstu daga. Þykknar smám saman upp vestan til á landinu á morgun en ann- ars staðar verður þurrt að mestu. Hitinn verður áfram prýðilegur um allt land. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður DÓMSMÁL Fyrrverandi aðaleigend- ur og stjórnendur Glitnis, sem slita- stjórn bankans hefur stefnt fyrir dóm í New York, segja málaferlin ekki eiga heima þar ytra. Fram kemur í fréttatilkynningu að Brynjar Níelsson hæstaréttar- lögmaður hafi lagt fyrir dómstól- inn ytra yfirlýsingu um að íslensk- ir dómstólar ráði vel við málaferli af þessu tagi. Málaferli sem fjalli um íslenska hagsmuni eigi að fara fram á Íslandi. Ein af meginrök- semdum slitastjórnarinnar fyrir málarekstrinum í New York lúti að því að íslenskir dómstólar ráði ekki við málaferli af þessu tagi. „Glitnir held- ur því fram að tengsl umræddra einstaklinga við New York megi rekja til skulda- bréfaútgáfu sem Glitnir stóð að í september árið 2007. Þessu til stuðnings vísar Glitnir til vafa- samrar yfirlýsingar Alexanders Guðmundssonar, fyrrverandi fjár- málastjóra bankans. Slitastjórnin veitti Alexander friðhelgi í tengsl- um við ákveðna þætti málsins gegn því að hann veitti henni aðstoð,“ segir í tilkynningunni. Þá segir enn fremur að skulda- bréfaútgáfan hafi hvorki verið skipulögð né leidd af hinum stefndu. Hún hafi verið hluti af reglulegri fjármögnun bankans og verið skipulögð og stjórnað af Alex- ander og undirmönnum hans á fjár- málasviði. „Ef slitastjórn Glitnis trúir því í raun að umræddir ein- staklingar hafi valdið Glitni tjóni þá er Ísland rétti vettvangurinn til að fá úr því skorið.“ - gar Fyrrverandi aðaleigendur og stjórnendur Glitnis vilja málaferlin heim frá New York: Yfirlýsing fjármálastjóra sögð vafasöm BRYNJAR NÍELSSON SEÐLABANKINN Talið er að tap hans verði á bil- inu tvö til þrjú hundruð milljarðar króna. DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða karl- manni fimm hundruð þúsund krón- ur í skaðabætur vegna þess að hann var látinn sæta gæsluvarð- haldi í um það bil fjóra sólarhringa. Maðurinn var handtekinn að kvöldi 29. janúar 2004 vegna rann- sóknar á tilraun til íkveikju. Í framhaldi var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald til 4. febrúar sama ár. Með bréfi ríkissaksóknara 8. nóvember 2007 var honum tilkynnt að málið á hendur honum hefði verið fellt niður. Héraðsdómur hafði áður sýknað íslenska ríkið af kröfum mannsins. - jss Hæstiréttur snýr héraðsdómi: Fær bætur fyrir varðhaldsvist VIÐSKIPTI Rúna Magnúsdóttir, eig- andi Connected-Women.com og meðstofnandi BRANDit, komst á lista sem birtur var á heimasíðu viðskiptatíma- ritsins Forbes yfir tuttugu konur í alþjóða- viðskiptalífinu sem Forbes telur vert að fylgja eftir á samfélagsvefn- um Twitter. Connected- Women.com er alþjóðleg samfélagssíða fyrir konur og BRANDit er fjögurra daga alþjóðleg þjálfunarstofa fyrir athafnakonur sem vakið hefur athygli víða um heim. BRAND- it verður næst haldin í Reykjavík 14.-17. október og í Rotterdam í nóvember. Þá hefur félag kvenna í atvinnurekstri í Bretlandi óskað eftir því að setja upp BRANDit í London á næsta ári. - jma Forbes velur 20 konur á lista: Vert að fylgjast með Rúnu RÚNA MAGNÚSDÓTTIR AKUREYRI Töluverður fjöldi fólks var saman kominn á Akureyri um helgina og var eitthvað um pústra í miðbænum enda „stuð á mannskapnum“ að sögn lögregl- unnar á staðnum. Þrír karlar fengu að dúsa í fangaklefa aðfaranótt laugar- dagsins eftir að hafa viðhaft ógn- andi tilburði á öldurhúsi í bænum og einn karl til viðbótar fékk að gista í fangaklefa kvöldið eftir. Sama morgun var ökumaður tekinn vegna gruns um ölvunar- akstur. - jma Ólæti á Akureyri: Fjórir teknir fyrir slagsmál HRAFNSEYRI Framkvæmdir eru hafnar við gerð nýrrar heim- reiðar að Hrafnseyri við Arnar- fjörð. Heimreiðin er liður í fyrir- huguðum hátíðarhöldum vegna 200 ára afmælis Jóns Sigurðs- sonar á næsta ári. Gagnrýnendur þessarar fram- kvæmdar hafa bent á að gróður og ræktað land á staðnum stór- spillist við gerð nýju heimreiðar- innar. Aðalkennileitið á staðnum verði nýi vegurinn. Þá neitaði bóndinn á Auðkúlu Vegagerðinni um efnistöku í landi sínu vegna framkvæmdarinnar. - þeb Gerð nýrrar heimreiðar hafin: Framkvæmdir á Hrafnseyri HRAFNSEYRI Undirbúningur afmælis- hátíðar er kominn á fullt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BANDARÍKIN, AP Á næsta ári munu tvíburarnir Scott og Mark Kelly væntanlega hittast í geimnum. Þeir eru báðir geimfarar. Scott er nú þegar nýkominn út í geim- inn og mun næstu fimm mánuði, eða ríflega það, hringsóla í kring- um jörðina í alþjóðlegu geimstöð- inni. Í mars fer Mark í kjölfar bróð- ur síns og munu þeir hittast í geimstöðinni ef áætlanir banda- rísku geimferðastofnunarinnar NASA standast. „Þetta var ekki skipulagt,“ segir Mark, „en við vonuðumst báðir til þess að þetta myndi fara svona.“ - gb Óvenjulegur atburður: Tvíburar hittast í geimferðalagi AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is GENGIÐ 08.10.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 205,6473 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 111,22 111,76 176,35 177,21 154,32 155,18 20,693 20,815 19,051 19,163 16,577 16,675 1,3490 1,3568 174,25 175,29 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.