Fréttablaðið - 11.10.2010, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 11. október 2010
Ef hér væri vinstri stjórn myndi Póstur og sími vera
tekinn af Bakkabræðrum. Þá
gætum við hringt í Símann þegar
eitthvað bilar án þess að hlusta í
hálftíma á þungarokk rofið af og
til með „þú ert númer áttahund-
ruð í röðinni, viltu nokkuð vera
að bíða lengur?“ Okkur fyndist
kannski Póstur&Sími ekkert
rosalega sexí en við hefðum samt
aftur á tilfinningunni að þetta
væri okkar fyrirtæki en við ekki
þegnar þess.
Væri hér vinstri stjórn hefðu
bankarnir og sparisjóðirnir
verið sameinaðir í einn ríkis-
banka sem héti Landsbankinn
og væri banki allra landsmanna.
Þetta væri frekar þurrpumpu-
legur banki sem myndi láta
okkur standa lengi í röð þegar
við kæmum til að fá lán og kall
með flösu myndi svo hvessa
á okkur glyrnurnar og spyrja
höstug lega: „Og hvað þykistu
ætla að gera við peninginn!“ Og:
„Hvurn fjárann hefur þú við
pallbíl að gera!“ Og: „hvernig
hafðirðu hugsað þér að borga
þetta! Með lottópeningum?“
Væri hér vinstri stjórn hefði
ohf-dellan í ríkisútvarpinu verið
stöðvuð fyrir löngu og þessi
stofnun færð þjóðinni á ný vegna
þess að vinstri stjórnir vita sem
er að sumt er þess eðlis að best
fer á því að það sé í almanna-
eigu.
Væri hér vinstri stjórn hefði
maðurinn sem veðsetti bótasjóð
Sjóvár ekki fengið að gerast
framkvæmdastjóri lyfjafyrir-
tækis því að lyf eru til að lækna
fólk og braskarar eiga ekki að fá
að koma nálægt því að selja þau
heldur væri það háð ströngum
takmörkunum hverjir höndluðu
með lyf.
Og ef hér væri vinstri stjórn
yrði séð til þess að sjúkrahúsin í
hinum dreifðu byggðum landsins
hefðu bolmagn til að starfa og
sinna þjónustu við hin smærri
samfélög – ekki bara út af örygg-
inu og ekki bara út af hag-
kvæmninni heldur líka vegna
þess að það eru lágmarkslífs-
gæði og grundvallarmannrétt-
indi að eiga kost á góðri heil-
brigðisþjónustu í nágrenni sínu.
Ef hér væri vinstri stjórn
yrði starfsemi hins svokallaða
Háskóla í Reykjavík sett undir
Háskóla Íslands eða kannski
bara send aftur í Versló og nám-
skeið Stjórnunarfélagsins sem
Árni Sigfússon var alltaf að
halda í gamla daga. Þeir kenn-
arar sem fengju að starfa áfram
á háskólastigi yrðu að læra við-
skiptafræðina og lögfræðina
upp á nýtt. MBA-nám og hin
sjálfstyrkingarnámskeiðin yrðu
svo sett á námskeið Stjórnunar-
félagsins.
Væri hér vinstri stjórn myndi
hún verja fé í mannaflsfrekar
framkvæmdir sem skila þjóð-
félaginu einhverju, efla hagvöxt
og veita atvinnulausu fólki
atvinnu – ekki með því að reisa
samgöngu miðstöð í Vatns mýrinni
handa Akureyringum, heldur
mætti fá styrk hjá Evrópu-
sambandinu til að láta nú loksins
verða af því að járnbrautavæða
Ísland. Það er ekkert smáræðis-
verk að leggja járnbraut um þetta
stóra land og reisa fallegar járn-
brautarstöðvar á helstu þéttbýlis-
stöðum. Önnur stórframkvæmd
sem má hugsa sér er að fjarlægja
byggingar sem lítil not eru fyrir
og eru til lýta og leiðinda og reisa
eitthvað nýtt og fallegt í staðinn.
Til dæmis Smáralind: ekki er
húsið sjálft einungis hlálegasta
bygging í víðri veröld – risa-
reður teiknaður af enskum arki-
tektum sem hljóta að hafa grátið
af hlátri á meðan – heldur virðist
hvorki hægt að reka verslunar-
kjarnann í núverandi mynd né
selja hann. Best væri því að rífa
Smáralind og breyta svæðinu í
líflegan garð fyrir Kópavogsbúa,
og svipað brúk má hugsa sér
fyrir önnur risaverslunarhús
sem reist voru í öngviti aldamóta-
áranna og munu aldrei verða til
annars en armæðu.
Væri hér vinstri stjórn væri
forgangsmál að þjóðin sjálf
fengi hlutdeild í þeim arði sem
ein gjöfulustu fiskimið í heimi
gefa af sér, í stað þess að hann
renni óskiptur til manna sem
fyrir löngu hafa fyrirgert rétti
sínum til kvótans með heimsku-
pörum og veðsetningu á því sem
þjóðin á.
Já og væri þetta vinstri stjórn
sem á að heita að stjórni hér
landinu þá myndi hún róa að
því öllum árum að gera landið
að einu kjördæmi svo að alþingi
Íslendinga endurspegli þjóðar-
viljann og hér komist á raun-
verulegt þingræði og við – fólkið
– getum farið að bera virðingu
fyrir þessari stofnun eins og við
svo sárlega þráum.
Ef hér væri vinstri stjórn yrði starf-
semi hins svokallaða Háskóla í Reykja-
vík sett undir Háskóla Íslands eða
kannski bara send aftur í Versló.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Sogavegur
VERÐLÆKKUN á fiski.
-Fiskikóngurinn hjálpar
þér að taka á kreppunni-
Fiskfars (áður 990).........................................
Kinnar nýjar og saltaðar (áður 990).............
Fiskréttir í sósu (áður 1.590).....................
Fiskhakk (áður 1.390).....................................
Ýsuflök með roði (áður 1590)..............
Sjáumst eldhress.
ATH. þetta er ekki tilboð sem gildir
aðeins í dag. Þessi verð eru komin
til þess að vera á meðan kreppunni
stendur.
nú 550,-
nú 690,-
nú 1.390,-
nú 790,-
nú 1.290,-
Á næstu árum mun Rio Tinto Alcan fjárfesta
fyrir 57 milljarða króna í álverinu í Straumsvík.
Ráðist verður í tvö stór verkefni.
Straumhækkun mun auka afköst kerskálanna
og skapa 360 ný störf þegar framkvæmdir
standa sem hæst á næsta ári. Breytingar á
steypuskála auka verðmæti framleiðslunnar og
skapa um 150 ný störf árið 2011.
Samanlagt kalla þessi verkefni á 620 ný ársverk
á Íslandi.
Rio Tinto Alcan
Straumsvík
Pósthólf 244
222 Hafnarfjörður
Sími 560 7000
www.riotintoalcan.is
620 ný ársverk
í Straumsvík
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Væri hér
vinstri stjórn
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Í DAG
AF NETINU
Fordómar gegn feitum
Feitt fólk mætir fordómum nánast á öllum stigum mannlífsins, hvort sem
það er í vinnu, skóla, verslun og þjónustu, heilsugæslu eða jafnvel heima
hjá sér. Þetta hafa rannsóknir ítrekað staðfest. Sú lausn sem iðulega er
bent á að feitt fólk eigi bara að grenna sig er engin lausn þar sem a) þær
megrunaraðferðir sem þekktar eru leiða yfirleitt ekki til viðvarandi þyngdar-
taps og b) það er ekki á ábyrgð þeirra sem verða fyrir illri meðferð að breyta
sér til að þóknast kvölurum sínum. Ábyrgðin er gerendanna.
Þess vegna er kallað eftir samfélagsbreytingum. Við þurfum að gera sam-
félagið þannig úr garði að öllum geti liðið þar vel, hvort sem þeir eru feitir
eða mjóir, stórir eða litlir, ungir eða gamlir eða hvernig sem er. Veröldin er
fyrir alla.
http://blog.eyjan.is/likamsvirding/
Sigrún Daníelsdóttir