Fréttablaðið - 13.10.2010, Síða 18

Fréttablaðið - 13.10.2010, Síða 18
 13. október 2010 MIÐVIKUDAGUR2 Auglýsingasími Fyrri hluti: Miðvikudaginn 13. okt kl: 19.30-21.30 Bættu samstarfið við eigin huga. Hefur þér mistekist að breyta slæmum ávana, oftar en einu sinni. Svaraðu 3 spurningum áður en þú leggur af stað í breytingar. Óttinn sigraður. 2 Lykilatriði til að falla ekki í “ gamla farið”. Skemmtilegar sögur sem minnka mótstöðu undirvitundar gegn breytingum. Seinni hluti: Fimmtudaginn 21. okt kl: 19.30-21.30 Nýr fyrirlestur með Matta Ósvald Sögur hugans Við sem stöndum að baki klúbbnum þekkjum þetta af eigin raun þar sem við eigum allir svona hjól og vildum með klúbbnum hefja þau til vegs og virðingar,“ útskýr- ir Guðmundur, en ekki er lengra síðan en fjögur ár að áhugi hans á þessari gerð mótorhjóla kviknaði í heimsókn til Indlands. „Þetta var alveg einstök lífs- reynsla. Við Þóra Guðmundsdóttir, sem höfum staðið fyrir jógaferð- um fyrir Íslendinga til Indlands, urðum okkur úti um svona hjól til að ferðast um frá Cophin í Kerala- héraðinu í suðri upp eftir til Góa. Ég hafði áður farið nokkrum sinn- um til Indlands en þarna á mótor- hjólinu upplifði ég enn sterkar á hraðri yfirferð töfra landsins, það fjölbreytilega litróf mannslífs og dýra sem þar búa og fallega nátt- úru,“ segir Guðmundur sem lagði af stað með litla sem enga reynslu af mótorhjólum en varð sér úti um Royal Enfield mótorhjól í lok ferðar og flutti til Íslands. Mótorhjól Guðmundar er með 500 kúbika vél, sparneytið og afar meðfærilegt að sögn eigand- ans sem þykir þó einna mest vert um útlitið en það er nákvæm eftir- mynd hjóla frá seinni heimsstyrj- öldinnni. „Indverjarnir tóku við framleiðslu þessara hjóla af hendi Breta árið 1968 og þótti engin sér- stök ástæða til að betrumbæta hana, þeim þótti hún einfaldlega svo vel heppnuð. Hjólin er því hægt að fá í lítillega uppfærðum útgáfum eða í sinni upprunalegu mynd,“ sem Guðmundur telur vera eina ástæðuna fyrir vinsældum hjólanna. Skömmu eftir heimkomu kynnt- ist Guðmundur fleiri áhugamönn- um um Royal Enfield mótorhjól sem varð til þess að klúbburinn varð síðan stofnaður fyrir skemmstu. Áhuginn er að hans sögn eitt helsta skilyrðið fyrir inngöngu. „Við tökum vel á móti áhugasömum og svo er auðvitað gott stefni viðkom- andi á að kaupa sér svona hjól.“ Sem stendur eru félagar níu tals- ins, allt saman menn á besta aldri sem hittast reglulega til að ræða hugðarefnið og skella sér á rúnt- inn. „Konurnar hafa hins vegar af einhverjum ástæðum haldið sig í skefjum og ég auglýsi bara hér með eftir þeim.“ Ýmislegt er á döfinni hjá klúbbnum, meðal annars fyrirhug- uð ferð til Indlands að sögn Guð- mundar. „Við stefnum á að fara saman út eftir svona þrjú til fjögur ár og þá ætla ég að nota tækifær- ið og sýna félögunum hversu hent- ugt er að ferðast um á svona hjólum og lenda í spennandi ævintýrum á framandi slóðum.“ roald@frettabladid.is Framhald af forsíðu Vefsíðan www.faninn.is fór í loftið á dögunum. Henni er meðal ann- ars ætlað að minna á tólf lögskipaða fánadaga Íslands en þá daga er fánanum flaggað á öllum opinberum byggingum auk þess sem almenn- ingur er hvattur til að gera slíkt hið sama. Síðan er upphitun fyrir bókina Þjóðfáni Íslands eftir Hörð Lárusson sem kemur út í mars á næsta ári. Á Indlandi er ekki óalgengt að fjölskyld- ur ferðist saman um á einu mótorhjóli. Guðmundur segir mótorhjól vinsælli fararskjóta en bíla á Indlandi. Skráðu þig inn – drífðu þig út Ferðafélag Íslands Skráðu þig inn – drífðu þig út Ferðafélag Íslands Fyrsta myndakvöld Ferðafélags Íslands á þessum vetri verður haldið í sal félagsins í Mörkinni 6 miðvikudaginn 13. október og hefst kl. 20.00. Myndakvöldið ber yfirskriftina: Sumar á fjöllum og verða sýndar myndir úr ferðum Ferðafélags Íslands á liðnu sumri. Dagskráin verður sem hér segir: Litast um í Lónsöræfum -- Hjalti Björnsson sýnir myndir úr gönguferðum um Lónsöræfi. Votlendi og víðerni – Þóra Ellen Þórhallsdóttir sýnir myndir úr Þjórsárverum. Kaffihlé Frá Hattveri til Hornstranda - Páll Ásgeir Ásgeirsson sýnir my dir af Fjallabaki, úr Djúpárdal, Hornströndum og víðar. Kaffi og meðlæti er innifalið í aðgangseyri að vanda. Vandaðir skór fyrir veturinn! Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10-18. Laug. 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Teg: 48096 Litir: svart og brúnt Stærðir: 40 - 47 Verð: 19.885.-

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.