Fréttablaðið - 18.10.2010, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 18.10.2010, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 18. október 2010 15 islandsbanki@islandsbanki.is www.islandsbanki.is Sími 440 4000 Fólk án atvinnu fær frystingu á húsnæðislánum Komdu og ræddu við ráðgjafa í næsta útibúi Íslandsbanka Íslandsvinur: Og maður sér fyrir sér sérvitran yfirkenn- ara í litlum skóla í Wiesbaden sem ungur hreifst af Nonnabók- unum. Eða formann Norræna félagsins í Gilleleje. Eða frægðar- menni sem millilenti hér fyrir tíu árum á leið til Ameríku og var svo dópaður að hann hefur aldrei frétt af því. Eða bara hvern þann sem hingað kemur. Þetta hugtak er orðið svo útjask- að að við erum meira að segja hætt að nota gæsalappir kring- um það. Brosum bara þreytulega þegar það ber á góma. Íslands- svinur, he he. Samt eru til raunverulegir Íslandsvinir. Samt er til fólk sem binst þjóðinni slíkum böndum að úr verður ákaft tilfinninga- samband. Stundum rekst hingað, nánast eins og fyrir tilviljun, fólk sem nær slíku sambandi við íslensku þjóðina, og verður fyrir slíkum áhrifum af kynnum sínum við þessa skrýtnu þjóð við ysta haf, að hugtakið „Íslands- vinur“ fær skyndilega ljóma sinn á ný. Eva Joly er ein af þeim sára- fáu sem ber heitið Íslandsvinur með sæmd. Þegar mest lá við … Þegar mest lá við kom hún hing- að. Grandalaus þjóð hafði verið blekkt og svívirt af glæpamönn- um sem komust upp með grip- deildir sínar vegna þess að öfga- menn um eftirlitsleysi, bóluvöxt og einkavæðingu höfðu komist til valda, afnumið allt regluverk, blásið upp bóluna og afhent grip- deildarmönnunum banka og fjár- málastofnanir. Hún var ekki ein. Katastrófur draga ekki bara að sér samúðar- fulla hjálparstarfsmenn heldur líka hýenur og hrægamma. Af slíku liði fengum við nóg að sjá þá hörmungardaga þegar Ísland var að hrynja: skorstöðumeist- ara sem mættir voru til að hirða restina af verðmætunum sem gripdeildamennirnir höfðu skil- ið eftir og glaðværa blaðamenn sem hentu gaman að þessari ves- alings þjóð í geislandi fyndnum greinum í heimspressunni sem skrifaðar voru á hótelbarnum á 101 milli viðreynslna og kokteila … Þegar mest lá við: Þegar ríkis- stjórnin steig það gæfuspor að ráða Evu Joly sem sérstakan ráðgjafa hins tiltölulega nýskip- aða sérstaka saksóknara hafði hún ekki aðeins fram að færa dýrmæta þekkingu á því hvern- ig aflandseyjapeyjarnir fela slóð sína heldur færði hún þessu unga og brothætta embætti annað sem var ekki síður mikilvægt: traust og trúverðugleika. Við sjáum þegar árangur af starfi hennar. Embætti sérstaks saksóknara hefur eflst og við höfum ástæðu til að ætla að það muni ná árangri með tíð og tíma. Árangurinn af starfi og ekki síður nærveru Evu Joly í íslensku þjóðlífi má þó ekki síst sjá í viðbrögðum þeirra sem óttast hana og þann árangur sem starf hennar kann að hafa. Nýlega vakti mikla athygli – og má skoða á youtube og sjálfsagt víðar – einræður Ingva Hrafns Jónssonar, eins helsta talsmanns Sjálfstæðisflokksins í þjóðmál- um um árabil, þar sem hann er beinlínis gólandi hástöfum af hatri og heift í garð þessar- ar konu. Svipaðar rokur höfum við heyrt með reglulegu millibili – en gargið og ýlfrið aldrei verið sem nú. Enginn erindreki En allt kemur fyrir ekki: Íslend- ingar skynja velvild hennar og virðingu fyrir hinum venjulega Íslendingi og algjört virðingar- leysi hennar fyrir valdaöflunum sem hafa átt Ísland frá því ein- hvers staðar í Sturlungu. Hvar í flokki sem við stöndum finnum við að hún tilheyrir engum þeirra. Hún gengur engra erinda annarra en íslensku þjóðarinnar. Þegar hún talar er hún ekki að villa um fyrir þjóðinni í þágu LÍÚ eða BÍ eða SA eða KFUM, Eimreiðarklík- unnar, Engeyjar ættarinnar, Briem-aranna, Ásbirninga, Baugs, Bakkabræðra, Frímúr- ara, Félags íslenskra útrásarvík- inga eða hvað þetta allt saman heitir þetta lið sem stendur fyrir því frámunalega skækla- togi sem íslensk umræða er, þar sem atvinnukjaftaskar á launum reyna að spila með okkur í þágu ískaldra peningahagsmuna og valda. Nei: þegar Eva Joly talar vitum við að hún hefur hugsað málið út frá því sem hún heldur að reynist íslensku þjóðinni best. Það tákn- ar ekki að hún sé véfréttin sjálf frá Osló: það táknar hins vegar að við getum treyst því að hún vill okkur vel og við eigum að hlusta þegar hún talar. Hlustum á Evu þegar hún hvetur ríkisstjórnina til að fara sér hægar í niðurskurði ríkisút- gjalda til velferðarmála því að það verður að vera hægt að búa hér – það verður að vera gott að búa hér. Hlustum á hana þegar hún varar okkur við því að gera bráð- ræðissamninga við aðvífandi fyrirtæki eins og Magma samn- ingurinn virðist vera dæmi um. Hlustum á hana þegar hún segir að við eigum heima við borðið hjá Evrópusambandinu þar sem sjálf- stæðar þjóðir ráða ráðum sínum og semja um sín mál sem jafn- ingjar. Eva + Ísland = Sönn ást Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Árangurinn af starfi og ekki síður nærveru Evu Joly í íslensku þjóðlífi má þó ekki síst sjá í viðbrögðum þeirra sem óttast hana AF NETINU Ísland og Eva Joly Stórfellt framsal á fullveldi Íslands til meginlands Evr- ópu er í mótsögn við kjarnahugsun sjálfstæðisbarátt- unnar: Íslendingar eiga að hafa forræði á sínum málum. Fullveldi sem við njótum í dag væri stórlega skert með inn- göngu í Evrópusambandið og allar líkur að það myndi skerðast enn frekar eftir því sem Evrópusam- bandið fær auknar valdheimildir. Evu Joly gengur eflaust gott eitt til. Heimili hennar er Frakkland og hún horfir á heiminn út frá sjónarhorni íbúa meginlands Evrópu. Frá Íslandi lítur heimurinn öðruvísi út. pallvil.blog.is Páll Vilhjálmsson Um Ríkislögreglustjóra Við þessa uppstokkun er óhjákvæmilegt að hafa að leiðarljósi, að sérsveit lög- reglunnar verði ekki eyðilögð sem sérstæð eining, sem sé ávallt til taks til að sinna sérstökum verkefnum. Nú þegar eru sérsveitarmenn í Reykjavík, á Suðurnesjum og Akureyri. Menn með þjálfun sérsveitar- manna starfa einnig í einstökum lögregluliðum. Þá verði áfram lögð áhersla á greiningarvinnu með forvirkar rannsóknarheimildir sem markmið. Loks verði lögð rækt við öflugt alþjóðasamstarf lögreglu. bjorn.is Björn Bjarnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.