Fréttablaðið - 27.10.2010, Page 1

Fréttablaðið - 27.10.2010, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 Miðvikudagur skoðun 14 27. október 2010 MIÐVIKUDAGUR 1 Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 Umferðarstofa birtir á vef sínum margvíslegar töl- fræðiupplýsingar. Má þar nefna bifreiðatölur, tölur yfir slys og önnur umferðartengd málefni. Þar er meðal annars að finna upplýsingar um eldsneytiseyðslu tiltekinna bíltegunda sem geta komið sér vel þegar val á nýjum bíl stendur fyrir dyrum. G ísli Ásgeirsson þýðandi er mikill hlaupa garpur, hleypur og syndir alla daga. Það er því eðli-legt að uppáhalds staðurinn hans á höfuðborgarsvæðinu tengist útivist. Enda nefnir haÁ j njóta útivistar, enda hæfilega stutt frá heimili mínu. Ástjörn er líka friðland fugla og mikið fugla-líf þarna á sumrin. Það er meira að segja til áhugamannafélagÁstjörn fylli mig af orku og mér líður allt-af vel þegar ég hef fengið útrás fyrir stressið á hlaupunum.En ég vil tak þ Uppáhaldsstaðurinn áStór-Hafnarfjarðarsvæðinu „Þær stundir dagsins þegar ég slaka best á,“ segir Gísli um hlaupin við Ástjörn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Gísli Ásgeirsson hleypur við Ástjörn í Hafnarfirði tvisvar í viku: Með betri buxum í bænum. Þrjú snið - Str. 36- 56 Kíkið á heimasíðuna okkar www.rita.is Opið virka daga kl. 10-18 Opið laugardaga, í Bæjarlind kl. 10-16 í Eddufelli kl 1 Stretch-buxurnar góðu eru komnar aftur Bæjarlind 6, Eddufelli 2 DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS · Tekur 12 Kg · Hljóðlát· Stórt op > auðvelt að hlaða· Sparneytin 12 kg Þvottavélog þurrkari Hin vinsælu byrjendanámskeið í Yogastöðinni HeilsubótSíðumúla 15, sími 588 5711 og 691 8565Nýtt námskeið helgina 7. og 8. november Innritun hafin á www.yogastodinheilsubot.is Vanir yogaiðkenndur eru hjartanlega velkomnir í hádegis og kvöldtíma Lýsing og lampar Sérblað • 27. október 2010 Kynning 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Lýsing og lampar veðrið í dag 27. október 2010 252. tölublað 10. árgangur NEYTENDUR „Ég hef aldrei séð jafn óhugnanlegan lit á móðurmjólk- inni. Hún var skærgræn,“ segir Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófess- or í næringarfræðum við Háskóla Íslands. Ingibjörg var að keppa í blaki og hafði drukkið eina flösku af bláum Powerade fyrir leik. Hún var með barn á brjósti og mjólkaði sig því inni í búningsklefa þegar leiknum lauk. Mjólkin var þó allt annað en eðlileg á litinn. Ingibjörg lét ekki framkvæma efnagrein- ingu á mjólkinni og getur þar með ekki staðfest að fullu að liturinn geti verið rakinn til viðkomandi drykkjar. Einnig eru til dæmi um marg- litað þvag sem kemur eftir neyslu íþróttadrykkja á fastandi maga, sem getur verið rautt, skærgult eða heiðgrænt. Svokölluð asó-litarefni hafa skaðleg áhrif á hegðun barna, sam- kvæmt breskri rannsókn. Niður- stöðurnar voru birtar í breska læknatímaritinu Lancet árið 2007, og sýndu fram á að neysla barna á litarefnum gæti stuðlað að breyttri hegðun og ofvirkni. Asó-litarefnin eru samheiti yfir sex tegundir gervilitarefna og eru notuð í hin ýmsu matvæli. Þau voru bönnuð hér á landi um árabil en voru leyfð á ný fyrir tilstuðlan EES-samningsins árið 1997. Á síð- asta ári hvöttu Neytendasamtök- in Samtök iðnaðarins til þess að skipta efnunum út hið fyrsta, en viðbrögð hafa verið dræm. Bryn- hildur Pétursdóttir, ritstjóri Neyt- endablaðsins, segir efnin vera til endurskoðunar hjá Matvæla- öryggisstofnun Evrópu og nú hafi verið ákveðið að setja viðvörun á þær vörur sem innihalda eitthvað af þeim sex litarefnum sem talin eru skaðleg. „Þetta verður innleitt hér á landi á næstu misserum, samkvæmt lögum frá Evrópusambandinu,“ segir Brynhildur. „Þegar einhver vafi leikur á því hvort efni séu varasöm á neytandinn að sjálf- sögðu að fá að njóta vafans. Við viljum sjá þetta hverfa af mark- aði sem fyrst.“ - sv Brjóstamjólkin varð græn eftir neyslu á íþróttadrykk Prófessor í næringarfræðum drakk bláan Powerade og mjólkaði skærgrænni brjóstamjólk eftir blakleik. Litar- efni geta stuðlað að ofvirkni í börnum, samkvæmt breskri rannsókn. Neytendasamtökin vilja efnin af markaði. Hafa skaðleg áhrif á hegðun barna og færast út í móðurmjólk og þvag. Leyfð hér á landi. ■ Tartrazine (E101) ■ Ponceau 4R (E124) ■ Sunset Yellow (E110) ■ Carmoisine (E122) ■ Quinoiline Yellow (E104) ■ Allura Red AC (E129) Asó-litarefnin FÓLK Einar Aðalsteinsson, 23 ára gamall leikari, fær tækifæri til að stíga vals í stórri hóps- enu Holly- wood-myndar- innar Sherlock Holmes 2. Senan er tekin upp í hinu forn- fræga Elstree- myndveri þar sem Star Wars var meðal ann- ars gerð en meðal þeirra sem taka þátt í senunni eru Robert Downey Jr. og Jude Law. Leikstjóri mynd- arinnar er Guy Ritchie, fyrrver- andi eiginmaður Madonnu. Einar kveðst ákaflega heppinn með dansfélaga. „Hún er bæði menntuð leikkona og dansari og ég kann sjálfur alveg eitthvað að dansa,“ segir Einar. - fgg / sjá síðu 30 Einar Aðalsteinsson leikari: Dansar í Sher- lock Holmes 2 Hvert þó í strumpandi! STRUMPAR ÓDÝRT FYRIR ALLA! Nýr tilboðsbæklingur í dag Annar genginn út Bieber-tvíburinn Jóhannes Þorkelsson kominn á fast. fólk 30 Vel lukkaður reyfari Morgunengill eftir Árna Þórarinsson hefur allt sem prýða má einn krimma að mati Jóns Yngva Jóhannssonar. menning 22 BJART SV-LANDS Í dag verða víða norðaustan 8-15 m/s en 10-18 NV- og V-til. Rigning eða slydda N- og A-lands en annars úrkomulítið. Hiti 0-7 stig. VEÐUR 4 3 1 1 4 4 Leikið gegn Lettum Ísland hefur leik í undankeppni EM 2012 í kvöld. sport 26 EINAR AÐALSTEINSSON SAGAN ENDURBYGGÐ Páll V. Bjarnason arkitekt og Trausti Sigurðsson húsasmíðameistari ræddu málin fyrir framan hið sögufræga hús við Laugaveg 6 í gær. Í húsinu hefur verið fjölbreytt starfsemi í gegnum tíðina. Þar var verslun Benedikts H. Sigmundssonar til margra ára sem seldi meðal annars „sirz, hvít lérept, tvisttau. Enn fremur handsápur, Chocolade, barnaleikföng“, svo vitnað sé í auglýsingu frá árinu 1904. INDÓNESÍA/BBC Yfir eitt hundrað manns eru látnir og 500 er saknað eftir að flóðbylgja skall á eyja- klasa í Indónesíu á mánudag. Flóðbylgjan fylgdi jarðskjálfta sem mældist 7,7 stig á Richter- kvarða. Vont veður hefur komið í veg fyrir að björg- unarsveitir komist til hamfarasvæðanna. Mikl- ar rigningar gera þyrlusveitum ókleift að fara í loftið og bátar komast ekki til nauðstaddra þar sem hafnir eru ónýtar. Þá liggja fjarskipti að mestu niðri. Björgunarsveitir gera sér vonir um að hluti þeirra 500 sem saknað er hafi náð að flýja til fjalls og bíði þess að aðstoð berist. Hamfarirnar koma á sama tíma og þúsundir manna eru fluttar brott vegna eldgoss í fjallinu Merapi á Jövu í Indónesíu sem hófst í gær. Þar hafa átján farist. Óttast er að gríðarlega stórt sprengigos sé yfirvofandi í fjallinu. Atburðirnir tveir, flóðbylgjan og eldgosið, tengjast ekki, segja sérfræðingar í Indónesíu. - shá Yfir 100 lík hafa fundist og 500 er saknað eftir að flóðbylgja skall á Indónesíu: Tíu þorp skoluðust á haf út FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A N TO N

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.