Fréttablaðið - 27.10.2010, Síða 2
2 27. október 2010 MIÐVIKUDAGUR
FÓLK Íslensk kona leitar nú að
stuðningsaðilum til að fjármagna
þátttöku sína í leiðangi á Suður-
skautslandið. Þórdís Katla Bjart-
marz hyggst þar, ásamt fjölþjóð-
legum hópi, sækja námskeið ætlað
leiðtogum framtíðarinnar.
Þórdís, sem er 27 ára, leggur
um þessar mundir stund á meist-
aranám í viðskiptafræði í Kaup-
mannahöfn. Hún segir að síðustu
sex árin hafi hún starfað sem leið-
togi og að leiðtogaþjálfun innan
alþjóðlegu stúdentasamtakanna
AIESEC og meðal annars verið
þar formaður árin 2006 til 2008.
„Þessi reynsla ýtti undir áhuga
minn á leiðtogamenntun á ýmsum
sviðum og áherslum og því ákvað
ég að sækja um sem þátttakandi
í þennan leiðangur næstkomandi
mars,“ segir Þórdís, sem nú reyn-
ir að fá kostunaraðila til liðs við
sig en segir það ganga erfiðlega
enda sé ferðin dýr og hún hafi
verið með þeim síðustu að fá þátt-
töku sína staðfesta.
„Ég hef nálgast nokkur fyrir-
tæki sem og Hafnarfjarðarbæ í
tengslum við stuðning með því
skilyrðum að ég haldi námskeið
fyrir starfsfólk og aðra tengda
aðila þegar ég kem heim, taki
lógó eða fána fyrirtækja með í
ferð og auglýsi þau sem styrktar-
aðila. Því er ákveðin ávinningur
fyrir fyrirtæki að leggja hönd við
þetta verkefni og eru allur styrk-
ur og stuðningur vel þeginn svo
þátttaka takist,“ segir Þórdís.
Meðal þeirra sem ekki hafa
tekið afstöðu til styrkbeiðnar
Þórdísar er heimabærinn Hafnar-
fjörður. „Það er gríðarlegur heið-
ur að vera valinn en hver ein-
staklingur þarf að fjármagna
ferðina sjálfur og því leita ég til
Hafnarfjarðarbæjar um möguleg-
an stuðning,“ undirstrikar Þórdís
í bréfi til bæjarins.
Lagt verður af stað í mars á
næsta ári og á ferðin að standa
í fimmtán daga. Farið verður
frá suðurodda Argentínu eftir
nokkurra daga undirbúning þar
í landi.
Á vef samtakanna 2041 kemur
fram að nafn þeirra er miðað við
árið þegar núverandi samning-
ur um friðun Suðurskautslands-
ins fyrir námavinnslu og borun
rennur út. Umhverfisvernd og
sjálfbærni eru þar ofarlega á
blaði.
„Við miðum að persónlegri
þróun, bættum hæfileikum til
samskipta og liðsanda og notum
til þess reynslu Shackletons,
Scotts, Amundsen og fleiri frum-
herja meðal landkönnuða,“ segir
á 2041.com. gar@frettabladid.is
Íslensk stúlka lærir til
leiðtoga á suðurskauti
Þórdís Katla Bjartmarz stefnir á Suðurskautslandsið að sækja námskeið fyrir
leiðtoga framtíðarinnar. Þórdís óskar eftir fjárstyrk frá Hafnarfjarðarbæ og fyrir-
tækjum gegn því að flytja fána þeirra á suðurskautið og uppfræða starfsfólk.
ÞÓRDÍS KATLA BJARTMARZ Í lok september fékk Þórdís að vita að hún væri meðal
þeirra sem stæði til boða að sækja leiðtoganámskeið á Suðurskautslandinu í mars.
Hún freistar þess að fjármagna ferðina sem mun kosta um þrjár milljónir króna.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Það er gríðarlegur
heiður að vera valinn
en hver einstaklingur þarf að
fjármagna ferðina sjálfur...
ÞÓRDÍS KATLA BJARTMARZ
MEISTARANEMI
SJÁVARÚTVEGUR Icelandic Group
(IG), sem er stærsta sjávarútvegs-
fyrirtæki á Íslandi, hefur ákveð-
ið að sækja um vottun samkvæmt
staðli Marine Stewardship Council
(MSC) fyrir þorsk- og ýsuveiðar
við Ísland. Þegar vottun er fengin
verður hægt að merkja allar afurð-
ir úr þessum fiskstofnum sem seld-
ar verða í sölukerfi Icelandic með
umhverfismerki MSC. Fyrirtæki
utan IG geta sótt um aðgang að
vottuninni á síðari stigum í sam-
starfi við félagið.
Ingvar Eyfjörð, aðstoðarforstjóri
IG, segir um mikilvægt skref að
ræða í frekari fjárfestingum fyrir-
tækisins í íslenskum sjávarútvegi,
en félagið kaupir og markaðssetur
35 prósent af öllum afla sem veiðist
við Íslandsstrendur á ári hverju.
„MSC-gæðavottun mun að okkar
mati festa í sessi öflugt og ábyrgt
Icelandic Group hefur sótt um vottun hjá Marine Stewardship Council (MSC):
Risaskref í umhverfisvottun
■ Alls eru vottaðar og í vottunarferli fiskveiðar sem nema tæplega sjö millj-
ónum tonna af árlegum afla, eða ríflega tólf prósentum
af fiskveiðum heimsins sem fara til manneldis.
■ Um fjórar milljónir tonna af sjávarfangi eru
vottaðar samkvæmt MSC-staðli en það
gerir yfir sjö prósent af heimsveiðum til
manneldis.
■ Um sjö þúsund vörur í 68 löndum eru
merktar með MSC-umhverfismerkinu
sem hægt er að rekja og staðfesta að
séu úr vottuðum sjálfbærum fiskveiðum.
MSC-umhverfisvottun
fiskveiðistjórnunarkerfi Íslend-
inga og styðja þannig enn fremur
við árangursríka markaðssetningu
á íslensku sjávarfangi á erlendum
markaði nú sem fyrr.“
Rupert Howes, forstjóri MSC,
segir ákvörðun IG um að innleiða
vottunarferli í öllum þorsk- og ýsu-
veiðum við Íslandsstrendur sögu-
lega og munu „setja mark sitt á
flest sem viðkemur veiðum, vinnslu
og sölu á bolfiski á Íslandi“, eins og
segir í fréttatilkynningu frá MSC.
- shá
SAMGÖNGUMÁL Sveitarstjórn
Skaftárhrepps segir hækkun far-
vegs Skaftár ógna vegakerfinu
víða í sveitarfélaginu.
„Sem dæmi hefur farvegur
Skaftár neðan við brúna hjá
Kirkjubæjarklaustri síðustu
tíu árin hækkað afar mikið. Áin
hefur hlaðið upp miklum sand-
eyrum, bæði ofan og neðan við
brúna, en líka farið yfir víð-
áttumikið gróðurlendi kringum
Heimsendasker. Með tilliti til
reynslu fyrri ára og alda er ljóst
hvað mikla hættu af sandfoki það
hefur í för með sér fyrir byggð-
ina á Kirkjubæjarklaustri,“ segir
í bókun sveitarstjórnarinnar, sem
vill fá fund með stjórnendum
Vegagerðarinnar sem fyrst. - gar
Nýjar sandeyrar við Skaftá:
Framburður
ógnar vegum
UTANRÍKISMÁL Ákvörðun Davíðs Oddssonar og
Halldórs Ásgrímssonar um að styðja innrás
Bandaríkjamanna í Írak var tekin í andstöðu
við ráðleggingar embættismanna í utanríkis-
ráðuneytinu. Þetta kom fram í fréttum Stöðv-
ar 2 í gær.
Fram kom í fréttinni að um níutíu skjöl eru
til í utanríkisráðuneytinu sem varpa ljósi á um
tveggja mánaða aðdraganda við stuðninginn.
Af þeim telur utanríkisráðherra örfá vera
mjög athyglisverð.
„Og ég held að í sumum þeirra komi
fram að embættismennirnir höfðu
mjög einarða afstöðu í þessu máli og
hún var hugsanlega ekki sú sama
og stjórnmálamannanna sem síðar tóku
ákvörðun,“ sagði Össur Skarphéðinsson í
viðtali við Stöð 2. Mikilvægar upplýsingar
kunni að fást í viðtölum við þessa starfs-
menn ef Alþingi ákveði að fara í rannsókn
á aðdraganda ákvörðunarinnar.
Fréttablaðið hefur óskað eftir afriti
af skjölunum sem um ræðir en ekki
fengið enn. - sh
Davíð og Halldór studdu innrás í Írak þvert á ráðleggingar embættismanna:
Var ráðlagt að styðja ekki innrásina
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Segir
skjöl í ráðuneytinu sum hver mjög
merkileg. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ólafía, ert þú þessi arkitekt
hrunsins?
„Nei, ég reyni frekar að byggja upp
og teikna meira en skýjaborgir.“
Ólafía Zoëga útskrifaðist nýlega með
hæstu einkunn úr Arkitektaskólanum
í Bergen. Hún nýtti sér birtingarmynd
hrunsins á Íslandi við gerð verkefnisins.
VIÐSKIPTI Nýherji hagnaðist um
tæpar 132 milljónir króna á
fyrstu níu mánuðum ársins. Þar
af nam hagnaðurinn 26,8 milljón-
um króna á þriðja fjórðungi árs-
ins. Fyrirtækið tapaði 172 millj-
ónum króna fyrstu níu mánuði
ársins í fyrra.
Sala á vöru og þjónustu Ný -
herja nam tæpum 10,3 milljörð-
um króna á fyrstu níu mánuðum
ársins, sem er sambærilegt við
síðasta ár. Á móti dró úr rekstrar-
kostnaði auk þess sem fjármagns-
gjöld lækkuðu á milli ára. - jab
Nýherji fer úr mínus í plús:
Hagnaðist um
132 milljónir
ÍRAK, AP Tariq Aziz, sem lengi
var utanríkisráðherra Saddams
Hussein, hefur verið dæmdur til
dauða í Írak
fyrir hlutdeild
sína í ofsóknum
gegn sjíamús-
limum á valda-
tíma Saddams.
Aziz hefur
þrjátíu daga
frest til að
áfrýja úrskurði
dómstólsins.
Staðfesti áfrýj-
unardómstóll niðurstöðuna þarf
að fullnægja dómnum innan þrjá-
tíu daga, en forseti Íraks þarf þó
fyrst að skrifa undir aftökuskip-
un.
Aziz er 74 ára gamall. Hann
hefur þegar hlotið fimmtán ára
fangelsisdóm fyrir þátt sinn í
aftöku 42 manna árið 1992 og sjö
ára fangelsisdóm fyrir þátt sinn
í nauðungarflutningum Kúrda í
norðanverðu landinu. - gb
Tariq Aziz dæmdur í Írak:
Fékk líflátsdóm
fyrir ofsóknir
TARIQ AZIZ
LÖGREGLUMÁL Forláta Benz-bifreið,
sem eitt sinn var ráðherrabíll
Gylfa Þ. Gíslasonar, kom í leitirn-
ar í gærkvöldi eftir að hafa verið
stolið úr bílageymslu við Sól-
vallagötu í Reykjavík aðfaranótt
þriðjudags.
Bíllinn fannst í Kleppsholti
og höfðu engar skemmdir verið
unnir á honum. Lögreglu höfðu
borist ábendingar um bílinn eftir
umfjöllun fjölmiðla um þjófnað-
inn.
Bíllinn er nú í einkaeigu en var
lengst af notaður sem ráðherra-
bíll Gylfa Þ. Gíslason, sem var
ráðherra frá 1956 til 1971. - sh
Var bíll Gylfa Þ. Gíslasonar:
Ráðherrabíll
kom í leitirnar
BENZ-BÍLLINN Fannst óskemmdur í
Kleppsholti í gærkvöldi.
EFNAHAGSMÁL Seðlabankinn hefur
hafnað því að upplýsa um fjölda
undanþága sem gerðar hafa verið
á gjaldeyrishöftunum frá því að
þeim var komið á.
Fréttablaðið óskaði í byrjun
október eftir upplýsingum um
fjölda tilvika þar sem óskað hefur
verið eftir undanþágu frá höft-
unum, um fjölda undanþága sem
hafa verið veittar, og þær upp-
hæðir sem þar var um að ræða.
Í svari sem borist hefur frá
bankanum kemur fram að þess-
ar upplýsingar séu ekki tiltækar.
Ákveðin upplýsingavinnsla sé í
gangi. - bj
Seðlabanki segir tölur ekki til:
Undanþágur
enn á huldu
SPURNING DAGSINS