Fréttablaðið - 27.10.2010, Qupperneq 8
8 27. október 2010 MIÐVIKUDAGUR
Sparaðu
með Siemens
Siemens er þekkt fyrir
umhverfisvæna stefnu
sína og er í fremstu röð
þegar skoðaðar eru
tækninýjungar er varða
orkusparnað á heimilum.
A
T
A
R
N
A
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.issparnaður
-50%
1995 2010
0,13 kwst.
sparnaður
-36%
1995 2010
0,11 kwst. 0,07 kwst.
sparnaður
-48%
1995 2010
Þvottavél
WM 16S770DN
Orkunotkun miðuð við
þvott á 1 kg á 60° C.
Uppþvottavél
SN 46T590SK
Orkunotkun miðuð við
borðbúnað fyrir einn.
Kæliskápur
KG 36VX74
Orkunotkun miðuð við
100 l á sólarhring.
0,48 kwst. 0,25 kwst.0,26 kwst.
ERTU MEÐ
VIÐKVÆMA HÚÐ?
Finnur þú fyrir þurrki í leggöngum, kláða, sveppasýkingu
eða færðu sár við notkun dömubinda?
Prófaðu þá Natracare lífrænar hreinlætisvörur, án klórs,
ilm- og plastefna.
www.natracare.is
LÍFRÆNAR HREINLÆTISVÖRUR
Nàttúruleg vellíðan
MENNTAMÁL Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í mannréttindaráði lýsa
því yfir að tillaga meirihlutans sé
óþarfi og flokkurinn muni greiða
atkvæði gegn henni í óbreyttri
mynd.
Mannréttindaráð fundaði í gær
um tillögur að breytingum á sam-
starfi leik- og grunnskóla og þjóð-
kirkjunnar. Afgreiðslu málsins var
frestað til 3. nóvember.
Sjálfstæðisflokkurinn bókaði
tillögu á fundinum þar sem segir
að vonast sé til þess að með því að
fresta tillögunni geri meirihlutinn
sér grein fyrir því að skoða þurfi
málið betur með vilja borgarbúa að
leiðarljósi.
„Ein af forsendum tillögu meiri-
hlutans var sú að fjölmargar kvart-
anir hefðu borist vegna heimsókna
trúfélaga í skólana, ekki fylgdu
þeirri staðhæfingu neinar töluleg-
ar upplýsingar.“
Samkvæmt upplýsingum frá
mannréttindaráði hafa alls bor-
ist 52 formlegar kvartanir síðan í
ágúst 2008. Þar af snúa 22 að sam-
starfi kirkju og skóla.
Þórey Vilhjálmsdóttir, fram-
kvæmdastjóri borgarstjórnar-
flokks Sjálfstæðisflokksins, segir
botninn vera dottinn úr tillögunni
með tilvísuninni í kvartanir for-
eldra.
„Upphaflega var farið af stað
þegar talið var að mikið væri um
þessar kvartanir, en þessi fjöldi
getur ekki talist mjög stórt vanda-
mál,“ segir Þórey. „Mér þykir ólík-
legt að tillagan nái fram að ganga
í óbreyttri mynd sökum skorts á
samstöðu. Það er verið að ganga
mjög hart fram.“
Margrét Sverrisdóttir, formaður
mannréttindaráðs, segir að engar
formlegar tillögur að breytingum
hafi verið lagðar fram á fundinum
og býst ekki við því að miklar til-
færslur verði gerðar á hugmynd-
inni. „Kannski munum við aðeins
skerpa á orðalagi, en ég á ekki von
á efnismiklum breytingum,“ segir
hún.
Menntamálaráðuneytið lét gera
lögfræðiálit á samstarfi þjóðkirkj-
unnar og grunn- og leikskóla og
þar kemur fram að lögmætt sé að
kenna trúarbragðafræði sem hluta
af námsefni. Telji foreldrar að það
eða þátttaka í atburðum og athöfn-
um fari gegn trúar- eða lífsskoðun-
um sínum geti þeir sótt um undan-
þágu fyrir börn sín frá skólaskyldu
í slíkum atvikum.
sunna@frettabladid.is
Ætla að hafna tillögu
Mannréttindaráðs
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í mannréttindaráði munu ekki samþykkja óbreytta
tillögu um breytingar á samstarfi skóla og kirkju. Alls hafa borist 22 kvartanir
á tveimur árum. Formaður ráðsins býst ekki við efnismiklum breytingum.
ÞÓREY VILHJÁLMSDÓTTIR Fulltrúi Sjálf-
stæðisflokks í mannréttindaráði segir
flokkinn munu greiða atkvæði gegn
breytingartillögunni. MYND/RÓBERT
MARGRÉT SVERRISDÓTTIR Formaður
mannréttindaráðs segir engar formlegar
tillögur að breytingum hafa verið lagðar
fram á fundinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
UMHVERFISMÁL Opnist skipaleiðir á
Norðurslóðum vegna bráðnunar í
kringum Norðurpólinn geta afleið-
ingar af skipaumferð orðið alvar-
legar fyrir umhverfið, að mati
bandarískra og kanadískra vís-
indamanna.
Loftmengun sem fylgir skipaum-
ferðinni mun auka verulega gróð-
urhúsaáhrifin á svæðinu. Þá gæti
sót í útblæstrinum aukið áhrifin
um 17 til 78 prósent að mati vís-
indamannanna. Þetta getur leitt til
mun meiri bráðnunar heimskauta-
íssins vegna skipaumferðarinnar,
segir James J. Corbett, haffræði-
prófessor við Háskólann í Dela-
ware í Bandaríkjunum. - bj
Skipaumferð hefur afleiðingar:
Heimskautaís
bráðnar hraðar
Færeysk skip veiða vel
Heildarbotnfiskafli færeyskra skipa
það sem af er ári er 3.813 tonn sem
eru tæp 76 prósent af leyfilegum
heildarafla þeirra. Á sama tíma í fyrra
höfðu færeysk skip veitt 2.679 tonn. Í
september voru ellefu skip að veiðum
og var heildarafli þeirra 797 tonn.
SJÁVARÚTVEGSMÁL
Afli dregist mikið saman
Heildarafli í kvótabundnum teg-
undum síðustu fimm fiskveiðiár
hefur minnkað töluvert. Heildarafli á
fiskveiðiárinu 2009/2010 er helm-
ingi minni en hann var fiskveiðiárið
2001/2002. Helstu ástæður þessa er
að rekja til minni uppsjávarafla en afli
í kolmunna, síld og loðnu er almennt
minnkandi yfir tímabilið þrátt fyrir
auknar veiðar á makríl.
1. Hver er formaður mennta-
málanefndar Alþingis?
2. Hver er höfundur bókarinn-
ar Þór - Leyndarmál guðanna?
3. Hvað heitir eiginkona
Russell Brand?
SVÖR
VÍN, AP Flokkar utarlega á hægri
væng evrópskra stjórnmála hyggj-
ast efna til undirskriftasöfnunar
til að þrýsta á um almenna þjóðar-
atkvæðagreiðslu innan Evrópu-
sambandsins (ESB) til að koma í
veg fyrir aðild Tyrklands að sam-
bandinu.
Um helgina hittust fulltrúar
hægriflokka í Vín, að undirlagi
Frelsisflokks Austurríkis. Þar voru
samankomnir Sjálfstæðisflokkur
flæmingja í Belgíu, Norðurbanda-
lagið frá Ítalíu, Svíþjóðardemó-
kratar og danski Þjóðarflokkur-
inn.
Var það niðurstaða fundarins að
Tyrkland „ætti ekki heima í Evr-
ópu“ og að borgarar ESB ættu að fá
að segja sína skoðun á málinu. Því
er lagt út í undirskriftasöfnun, en
samkvæmt Lissabon-sáttmála ESB
er hægt að krefja framkvæmdaráð
sambandsins um að íhuga lagasetn-
ingu í tilteknu máli ef ein milljón
undirskrifta fást því til stuðnings.
Heinz-Christian Strache, formað-
ur Frelsisflokksins, sagði eftir fund-
inn að Evrópa væri á villigötum ef
Tyrklandi yrði hleypt inn. „Inn-
ganga Tyrklands myndi boða enda-
lok ESB og upphaf sam-evrópsk-
asísk-afrísks sambands sem er í
andstöðu við friðarverkefni Evr-
ópu og það má ekki gerast.“ - þj
Hægriflokkar Evrópusambandsríkja þrýsta á um almenna atkvæðagreiðslu:
Vilja kjósa um aðild Tyrklands að ESB
VILJA EKKI TYRKLAND Í ESB Heinz-
Christian Strache og félagar hans í
hópi hægrimanna vilja láta kjósa um
inngöngu Tyrklands í ESB. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Tyrkland hefur um árabil stefnt
að ESB-aðild og hefur verið í
formlegum aðildarviðræðum frá
árinu 2005.
Meðal helstu tálma á vegferð
Tyrkja eru mannréttindamál og
deilur vegna afskipta þeirra af
málum Kýpur.
Tyrkland og ESB
VEISTU SVARIÐ?
1. Skúli Helgason. 2. Friðrik Erlingsson.
3. Katy Perry