Fréttablaðið - 27.10.2010, Side 10
Velgengni repúblikana í skoð-
anakönnunum er að stórum hluta
byggð á vinsældum Teboðshreyf-
ingarinnar svonefndu, sem hefur
verið áberandi í bandarískri
stjórnmálaumræðu síðustu miss-
erin.
Teboðshreyfingin þykir þó á
köflum öfgakennd í málflutningi,
svo hófsamir repúblikanar óttast
sigurgöngu hennar ekkert síður en
demókratar.
Sérstaklega hafa margvísleg
ummæli frambjóðanda hreyfingar-
innar til öldungadeildarþingsætis
fyrir Delaware vakið furðu. Hún
hefur til dæmis fullyrt að þróunar-
kenningin sé goðsögn: „Hvers
vegna eru apar þá ekki enn að þró-
ast í menn?“ spurði hún.
Einnig hélt hún því fram að
bandarískir vísindamenn væru
að rækta saman menn og dýr með
þeim árangri að á rannsóknarstof-
um þeirra væru nú til „mýs með
fullvirka mannsheila“.
Þá hefur hún lagt mikla áherslu
á nauðsyn skírlífis og telur frjáls-
ræði í kynferðismálum hafa haft
skelfilegar afleiðingar: „Við feng-
um kynlífsbyltinguna á sjöunda
áratugnum og nú er fólk að deyja
úr alnæmi,“ sagði hún eitt sinn.
Við sama tækifæri sagði hún
aðskilnað kristni og skólastarfs
hafa haft skelfilegar afleiðingar:
„Við fjarlægðum Biblíuna og bæna-
hald úr almenningsskólum, og nú
er verið að skjóta á fólk í hverri
viku.“
Þetta eru kannski öfgakennd-
ustu dæmin, en samkvæmt skoð-
anakönnunum eru áherslur stuðn-
ingsmanna hreyfingarinnar dálítið
langt úti á jaðri stjórnmálanna.
Þannig er yfirgnæfandi meirihluti
þeirra til dæmis á móti auknum
réttindum samkynhneigðra. Þeir
eru einnig almennt andvígir mikl-
um samskiptum stjórnvalda við
múslimaríki og þeir vilja sýna inn-
flytjendum fulla hörku.
Þekktasti málsvari Teboðs-
hreyfingarinnar er Sarah Palin,
fyrrverandi ríkisstjóri Alaska,
sem John McCain fékk til að vera
varaforsetaefni hans í forsetakosn-
ingunum fyrir tveimur árum. Hún
er ekki í framboði nú, en heldur
áfram að vekja athygli á hreyfing-
unni með afdráttarlausum yfirlýs-
ingum af ýmsu tagi.
Demókratar vonuðust reyndar
lengi vel til þess að öfgar Teboðs-
hreyfingarinnar yrðu til þess að
fæla kjósendur frá Repúblikana-
flokknum. Sú þróun myndi þá
vinna á móti óánægju Bandaríkja-
manna með Demókrataflokkinn, nú
þegar Barack Obama hefur glímt í
tvö ár með misjöfnum árangri við
bæði erfiða efnahagskreppu og
óvinsæla hernaðar arfleifð fyrri
stjórnar Repúblikanaflokksins.
Sú virðist þó ekki ætla að verða
raunin. Sigurganga repúblikana
með Teboðshreyfinguna í farar-
broddi fer ekki framhjá neinum
lengur.
10 27. október 2010 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Er teboðið að tryggja repúblikönum sigur?
Teboðshreyfingin er nefnd eftir „teboðinu í Boston“, sögufrægri mót-
mælaaðgerð sem átti sér stað í desember árið 1773, þremur árum áður
en Bandaríkjamenn sögðu skilið við Bretland og stofnuðu sjálfstætt ríki.
Hópur manna réðst um borð í þrjú skip frá Bretlandi, sem lágu í höfninni í
Boston, og eyðilögðu þar þrjá heila skipsfarma af tei með því að henda því
í höfnina. Með þessu vildu þeir mótmæla skattlagningu breska konungsins
á te, sem flutt var frá breskum nýlendum í Austurlöndum til Bretlands og
þaðan aftur til Bandaríkjanna. Bandaríkjamönnum þótti ranglátt að þurfa að
greiða þennan skatt, og mótmælin í Boston urðu til þess að efla sjálfstæðis-
hreyfingu þeirra.
Teboðið í Boston 1773
Nýja teboðshreyfingin fór af stað með látum snemma árs
2009 og efndi til mótmæla gegn ríkisstjórn Baracks Obama
víða um Bandaríkin. Hún á sér þó rætur í sams konar
mótmælum sem efnt hefur verið til nokkuð reglulega
síðustu áratugina þar í landi. Boðskapurinn er einfald-
ur: skattar eru ranglátir, ríkisútgjöldum á að halda í
lágmarki. Við þetta bætast ýmsar kristilegar áherslur,
misjafnlega sérvitringslegar. Uppistaðan í hreyfingunni
er laustengdir einstaklingar yst til hægri í Repúblikana-
flokknum, með dyggum stuðningi fjársterkra repúblik-
ana.
Teboðshreyfingin nýja
Örlög demókrata
virðast þegar ráðin
fyrir þingkosningarn-
ar í næstu viku. Repúblik-
anar njóta mikils meðbyrs,
og þakka það ekki síst hinni
umdeildu Teboðshreyfingu,
sem hefur vakið athygli
fyrir skrautlegan málflutn-
ing á köflum.
Ljóst þykir að bandarískir demó-
kratar muni missa töluvert af þing-
sætum í kosningunum, sem haldn-
ar verða á þriðjudaginn í næstu
viku. Spurningin snýst nú orðið
eingöngu um það hversu stór sigur
repúblikana verður, og munar þá
mestu um hvort repúblikanar nái
meirihluta í fulltrúadeild eins og
nú virðast horfur á, eða jafnvel
báðum deildum Bandaríkjaþings,
sem mögulegt virðist.
Bandaríkjamenn falla
fyrir teboðinu
Obama gæti misst þingmeirihluta
Repúblikanar gera sér nú vonir um að ná meirihluta í fulltrúadeild og jafnvel öldungadeild
Bandaríkjaþings í þingkosningunum, sem haldnar verða 2. nóvember. Kosið er um öll þing-
sæti fulltrúadeildar og þriðjung þingsæta öldungadeildar, auk kosninga til ríkisstjóra og fleiri
smærri embætta.
Spá um úthlutun þingsæta byggð á skoðanakönnunum
Fulltrúadeild
180
Demókratar
33
Munar mjóu
222
Repúblikanar
Öldungadeild
48
Demókratar
7
Munar mjóu
45
Repúblikanar
Líkleg
57
Örugg
123
Líkleg
59
Örugg
163
100
sæti
51 sæti þarf til meirihluta
435
sæti
218 sæti þarf til meirihluta
Líkleg
4
Örugg
44
Líkleg
10
Örugg
35
Heimild: RealClearPolitics
KOSNINGAFUNDUR Í PHOENIX Slagorðin vantar ekki á kosningaspjöldin þegar
Teboðshreyfingin heldur fundi. NORDICPHOTOS/AFP
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
Allir velkomnir
Verkefnin
framundan
Komdu á opinn fund Samfylkingarinnar
Fundir um allt land með stuttum ávörpum um verkefni vetrarins og góðum tíma
til umræðna. Komið og takið þátt í lífl egum skoðanaskiptum.
Ísafjörður – Edinborgarhúsið
miðvikudaginn 27. okt. kl. 21
Ólína Þorvarðardóttir
Guðbjartur Hannesson
Reykjavík – Grand Hótel
fi mmtudaginn 28. okt. kl. 20
Jóhanna Sigurðardóttir
Össur Skarphéðinsson
Garðabær – Safnaðarheimili
Vídalínskirkju
fi mmtudaginn 28. okt. kl. 20
Árni Páll Árnason
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
Akranes – Gamla kaupfélagið
fi mmtudaginn 28. okt. kl. 20
Guðbjartur Hannesson
Ólína Þorvarðardóttir
Hvolsvöllur – Hótel Hvolsvöllur
fi mmtudaginn 28. okt. kl. 20
Oddný G. Harðardóttir
Róbert Marshall
Hafnarfjörður – Samfylkingarhúsið
Strandgötu
mánudaginn 1. nóv. kl. 20
Lúðvík Geirsson
Guðbjartur Hannesson
www.xs.is
Kópavogur – Hamraborg 11a
mánudaginn 1. nóv. kl. 20.30
Árni Páll Árnason
Valgerður Bjarnadóttir
Egilsstaðir – Hótel Hérað
mánudaginn 1. nóv. kl. 20
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Árborg – Tryggvaskáli Selfossi
mánudaginn 1. nóv. kl. 20
Björgvin G. Sigurðsson
Róbert Marshall
Neskaupstaður – Egilsbúð
þriðjudaginn 2. nóv. kl. 20
Kristján L. Möller
Jónína Rós Guðmundsdóttir
Blönduós – Fundarsalur Samstöðu
þriðjudaginn 2. nóv. kl. 20
Guðbjartur Hannesson
Magnús Orri Schram
Garður – Kaffi húsið Flösin
þriðjudaginn 2. nóv. kl. 20
Katrín Júlíusdóttir
Oddný G. Harðardóttir
Akureyri – Hótel KEA
miðvikudaginn 3. nóv. kl. 20
Kristján L. Möller
Katrín Júlíusdóttir