Fréttablaðið - 27.10.2010, Page 10

Fréttablaðið - 27.10.2010, Page 10
Velgengni repúblikana í skoð- anakönnunum er að stórum hluta byggð á vinsældum Teboðshreyf- ingarinnar svonefndu, sem hefur verið áberandi í bandarískri stjórnmálaumræðu síðustu miss- erin. Teboðshreyfingin þykir þó á köflum öfgakennd í málflutningi, svo hófsamir repúblikanar óttast sigurgöngu hennar ekkert síður en demókratar. Sérstaklega hafa margvísleg ummæli frambjóðanda hreyfingar- innar til öldungadeildarþingsætis fyrir Delaware vakið furðu. Hún hefur til dæmis fullyrt að þróunar- kenningin sé goðsögn: „Hvers vegna eru apar þá ekki enn að þró- ast í menn?“ spurði hún. Einnig hélt hún því fram að bandarískir vísindamenn væru að rækta saman menn og dýr með þeim árangri að á rannsóknarstof- um þeirra væru nú til „mýs með fullvirka mannsheila“. Þá hefur hún lagt mikla áherslu á nauðsyn skírlífis og telur frjáls- ræði í kynferðismálum hafa haft skelfilegar afleiðingar: „Við feng- um kynlífsbyltinguna á sjöunda áratugnum og nú er fólk að deyja úr alnæmi,“ sagði hún eitt sinn. Við sama tækifæri sagði hún aðskilnað kristni og skólastarfs hafa haft skelfilegar afleiðingar: „Við fjarlægðum Biblíuna og bæna- hald úr almenningsskólum, og nú er verið að skjóta á fólk í hverri viku.“ Þetta eru kannski öfgakennd- ustu dæmin, en samkvæmt skoð- anakönnunum eru áherslur stuðn- ingsmanna hreyfingarinnar dálítið langt úti á jaðri stjórnmálanna. Þannig er yfirgnæfandi meirihluti þeirra til dæmis á móti auknum réttindum samkynhneigðra. Þeir eru einnig almennt andvígir mikl- um samskiptum stjórnvalda við múslimaríki og þeir vilja sýna inn- flytjendum fulla hörku. Þekktasti málsvari Teboðs- hreyfingarinnar er Sarah Palin, fyrrverandi ríkisstjóri Alaska, sem John McCain fékk til að vera varaforsetaefni hans í forsetakosn- ingunum fyrir tveimur árum. Hún er ekki í framboði nú, en heldur áfram að vekja athygli á hreyfing- unni með afdráttarlausum yfirlýs- ingum af ýmsu tagi. Demókratar vonuðust reyndar lengi vel til þess að öfgar Teboðs- hreyfingarinnar yrðu til þess að fæla kjósendur frá Repúblikana- flokknum. Sú þróun myndi þá vinna á móti óánægju Bandaríkja- manna með Demókrataflokkinn, nú þegar Barack Obama hefur glímt í tvö ár með misjöfnum árangri við bæði erfiða efnahagskreppu og óvinsæla hernaðar arfleifð fyrri stjórnar Repúblikanaflokksins. Sú virðist þó ekki ætla að verða raunin. Sigurganga repúblikana með Teboðshreyfinguna í farar- broddi fer ekki framhjá neinum lengur. 10 27. október 2010 MIÐVIKUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Er teboðið að tryggja repúblikönum sigur? Teboðshreyfingin er nefnd eftir „teboðinu í Boston“, sögufrægri mót- mælaaðgerð sem átti sér stað í desember árið 1773, þremur árum áður en Bandaríkjamenn sögðu skilið við Bretland og stofnuðu sjálfstætt ríki. Hópur manna réðst um borð í þrjú skip frá Bretlandi, sem lágu í höfninni í Boston, og eyðilögðu þar þrjá heila skipsfarma af tei með því að henda því í höfnina. Með þessu vildu þeir mótmæla skattlagningu breska konungsins á te, sem flutt var frá breskum nýlendum í Austurlöndum til Bretlands og þaðan aftur til Bandaríkjanna. Bandaríkjamönnum þótti ranglátt að þurfa að greiða þennan skatt, og mótmælin í Boston urðu til þess að efla sjálfstæðis- hreyfingu þeirra. Teboðið í Boston 1773 Nýja teboðshreyfingin fór af stað með látum snemma árs 2009 og efndi til mótmæla gegn ríkisstjórn Baracks Obama víða um Bandaríkin. Hún á sér þó rætur í sams konar mótmælum sem efnt hefur verið til nokkuð reglulega síðustu áratugina þar í landi. Boðskapurinn er einfald- ur: skattar eru ranglátir, ríkisútgjöldum á að halda í lágmarki. Við þetta bætast ýmsar kristilegar áherslur, misjafnlega sérvitringslegar. Uppistaðan í hreyfingunni er laustengdir einstaklingar yst til hægri í Repúblikana- flokknum, með dyggum stuðningi fjársterkra repúblik- ana. Teboðshreyfingin nýja Örlög demókrata virðast þegar ráðin fyrir þingkosningarn- ar í næstu viku. Repúblik- anar njóta mikils meðbyrs, og þakka það ekki síst hinni umdeildu Teboðshreyfingu, sem hefur vakið athygli fyrir skrautlegan málflutn- ing á köflum. Ljóst þykir að bandarískir demó- kratar muni missa töluvert af þing- sætum í kosningunum, sem haldn- ar verða á þriðjudaginn í næstu viku. Spurningin snýst nú orðið eingöngu um það hversu stór sigur repúblikana verður, og munar þá mestu um hvort repúblikanar nái meirihluta í fulltrúadeild eins og nú virðast horfur á, eða jafnvel báðum deildum Bandaríkjaþings, sem mögulegt virðist. Bandaríkjamenn falla fyrir teboðinu Obama gæti misst þingmeirihluta Repúblikanar gera sér nú vonir um að ná meirihluta í fulltrúadeild og jafnvel öldungadeild Bandaríkjaþings í þingkosningunum, sem haldnar verða 2. nóvember. Kosið er um öll þing- sæti fulltrúadeildar og þriðjung þingsæta öldungadeildar, auk kosninga til ríkisstjóra og fleiri smærri embætta. Spá um úthlutun þingsæta byggð á skoðanakönnunum Fulltrúadeild 180 Demókratar 33 Munar mjóu 222 Repúblikanar Öldungadeild 48 Demókratar 7 Munar mjóu 45 Repúblikanar Líkleg 57 Örugg 123 Líkleg 59 Örugg 163 100 sæti 51 sæti þarf til meirihluta 435 sæti 218 sæti þarf til meirihluta Líkleg 4 Örugg 44 Líkleg 10 Örugg 35 Heimild: RealClearPolitics KOSNINGAFUNDUR Í PHOENIX Slagorðin vantar ekki á kosningaspjöldin þegar Teboðshreyfingin heldur fundi. NORDICPHOTOS/AFP Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@frettabladid.is Allir velkomnir Verkefnin framundan Komdu á opinn fund Samfylkingarinnar Fundir um allt land með stuttum ávörpum um verkefni vetrarins og góðum tíma til umræðna. Komið og takið þátt í lífl egum skoðanaskiptum. Ísafjörður – Edinborgarhúsið miðvikudaginn 27. okt. kl. 21 Ólína Þorvarðardóttir Guðbjartur Hannesson Reykjavík – Grand Hótel fi mmtudaginn 28. okt. kl. 20 Jóhanna Sigurðardóttir Össur Skarphéðinsson Garðabær – Safnaðarheimili Vídalínskirkju fi mmtudaginn 28. okt. kl. 20 Árni Páll Árnason Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Akranes – Gamla kaupfélagið fi mmtudaginn 28. okt. kl. 20 Guðbjartur Hannesson Ólína Þorvarðardóttir Hvolsvöllur – Hótel Hvolsvöllur fi mmtudaginn 28. okt. kl. 20 Oddný G. Harðardóttir Róbert Marshall Hafnarfjörður – Samfylkingarhúsið Strandgötu mánudaginn 1. nóv. kl. 20 Lúðvík Geirsson Guðbjartur Hannesson www.xs.is Kópavogur – Hamraborg 11a mánudaginn 1. nóv. kl. 20.30 Árni Páll Árnason Valgerður Bjarnadóttir Egilsstaðir – Hótel Hérað mánudaginn 1. nóv. kl. 20 Sigmundur Ernir Rúnarsson Þórunn Sveinbjarnardóttir Árborg – Tryggvaskáli Selfossi mánudaginn 1. nóv. kl. 20 Björgvin G. Sigurðsson Róbert Marshall Neskaupstaður – Egilsbúð þriðjudaginn 2. nóv. kl. 20 Kristján L. Möller Jónína Rós Guðmundsdóttir Blönduós – Fundarsalur Samstöðu þriðjudaginn 2. nóv. kl. 20 Guðbjartur Hannesson Magnús Orri Schram Garður – Kaffi húsið Flösin þriðjudaginn 2. nóv. kl. 20 Katrín Júlíusdóttir Oddný G. Harðardóttir Akureyri – Hótel KEA miðvikudaginn 3. nóv. kl. 20 Kristján L. Möller Katrín Júlíusdóttir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.