Fréttablaðið - 27.10.2010, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 27. október 2010 13
OKKAR líftryggingar hf. • Sóltúni 26 • 105 Reykjavík • Sími 540 1400 • Fax 540 1401 • www.okkar.is
Öll börn og ungmenni eiga sér drauma um framtíðina. Undan sumum þeirra er fótunum kippt
fyrirvaralaust vegna slysa eða sjúkdóma í æsku sem haft geta í för með sér ævilanga örorku. Þeir
sem ekki hafa fest sig í sessi á vinnumarkaði standa utan lífeyriskerfisins og njóta því einungis
bóta Tryggingastofnunar.
OKKAR framtíð er ný og kærkomin framtíðartrygging barna og ungmenna sem skipt getur
sköpum fyrir fjárhagslegt sjálfstæði þeirra á fullorðinsárum. Með OKKAR sparnaði, sem laus er til
útborgunar við átján ára aldur, má treysta undirstöðurnar enn frekar.
framtíð
- framtíðartrygging barna fyrir „efin” í lífinu og fjárhag fullorðinsáranna
„…væri það klárlega draumastarfið mitt.
Ég myndi treysta mér í fjöldann
hans langalangalangafa.”
Kæra dagbók.
Langafi var að segja m
ér að afi hans
hefði átt ellefu börn t
akk fyrir kærlega.
Reyndar með þremur
konum.
Ég gæti alveg hugsað
mér að slá það
met. Það er að segja þ
etta með börnin.
Ef maður fengi þokka
lega borgað fyrir
að eignast börn og al
a þau almennilega
upp væri það klárlega
draumastarfið
mitt. Ég myndi treysta
mér í fjöldann
hans langalangalanga
fa. Það gæti
reyndar orðið soldið m
ál að finna konu
sem væri til í þetta me
ð mér. Og einn á
ég auðvitað engan sje
ns í svona lagað.
En mér finnst börn ba
ra alveg frábær.
Líka unglingar og yfir
höfuð allir sem eru
að mótast og reyna að
fóta sig í lífinu.
Vertu samt ekkert að
hafa hátt um þetta.
Svona plön eru kanns
ki ekki sérlega
strákaleg. Ég held rey
ndar að þau séu
ekki neitt stelpuleg he
ldur.
REYKJANESBÆR Bæjarráð Reykja-
nesbæjar samþykkti á síðasta
fundi sínum að takmarka umönn-
unargreiðslur á árinu 2011. Þá
verði greitt með hverju barni til
15 mánaða aldurs en eftir það
verði greiðslur takmarkaðar við
niðurgreiðslu vegna dagforeldra
með börnum til leikskólaaldurs.
Þá var samþykkt að segja upp
samningi um rekstur félagsmið-
stöðvarinnar Fjörheima sem
hefur haft húsnæði að Ásbrú og
flytja starfsemina í húsnæði að
Hafnargötu 88.
Á fundinum fór bæjarstjóri
einnig yfir fleiri niðurskurðartil-
lögur fyrir næsta ár. - þj
Aðhaldsaðgerðir syðra:
Niðurskurður í
Reykjanesbæ
REYKJANESBÆR Frekari niðurskurðir
voru samþykktir í bæjarráði Reykjanes-
bæjar á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Karlmaður lamdi
með hjólabretti utan í bifreið á
sunnudag, en bíllinn var í akstri.
Ökumaðurinn sem var kona
varð skiljanlega skelkuð og kall-
aði til lögreglu.
Þegar lögreglumenn komu á
vettvang var maðurinn mjög
æstur og réðst gegn lögreglu-
mönnunum vopnaður hjólabretti
og sleggju. Var maðurinn hand-
tekinn og vistaður í fangaklefa.
- jss
Æstur maður á Akranesi:
Barði í bifreið
með hjólabretti
NOREGUR Upplýsingar um skattamál einstakl-
inga eru víðar þrætuepli en hér á landi, en
í síðustu viku birtu skattayfirvöld í Noregi
allar upplýsingar um skattgreiðslur norskra
borgara á vefnum.
Þessi siður er umdeildur, en birting gagna
um skattgreiðslu einstaklinga tíðkast víðast
hvar á Norðurlöndum og á sér langa sögu í
Noregi, að því er fram kemur á vef Aften-
posten.
Í Noregi liggja upplýsingarnar fyrir í
afgreiðslum skattayfirvalda og eru einnig
öllum opnar á vefnum í ótakmarkaðan tíma.
Fyrirkomulagið í Svíþjóð og Finnlandi
er í ætt við það sem viðgengst hér á landi
þar sem upplýsingarnar eru opinberar, en
er ekki dreift í stafrænu formi og eru ekki
aðgengilegar á vefnum.
Danmörk sker sig úr hópnum þar sem
opinber birting þessa upplýsinga þykir
brjóta í bága við réttindi einstaklingsins.
Umræðan í Noregi er í grófum dráttum
svipuð og hér á landi þar sem tvö megin-
sjónarmið takast á, það er rétturinn til frið-
helgi einkalífsins gegn því að þetta fyrir-
komulag veiti almenningi aðhald og vinni að
því að allir leggi það sem þeim ber til sam-
félagsins.
Þó eru taldar líkur á að aðgangur verði
skertur næsta ár. - þj
Upplýsingar um skattgreiðslur fólks eru opinberar víðast hvar á Norðurlöndum:
Norðmenn birta upplýsingar um skatta á netinu
ÁLAGNINGARSKRÁ Skattaupplýsingar eru víðar
umdeildar en á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nýtt hótel á Laugavegi
Fyrirspurn um hvort breyta megi
skrifstofuhúsnæði og innrétta 105
herbergja hótel á Laugavegi 178 er
nú til skoðunar hjá skipulagsráði
Reykjavíkur. Húsið, sem stendur næst
gamla sjónvarpshúsinu, er um 3.600
fermetrar.
FERÐAÞJÓNUSTA
Orkubúið jafni verð
Sveitarstjórnarmenn á norðanverð-
um Vestfjörðum óskuðu eindregið
eftir því á kynningarfundi Orkubús
Vestfjarðar fyrir skömmu að orkuverð
á veitusvæði fyrirtækisins yrði jafnað
milli þéttbýlis og dreifbýlis. Einnig
væri mikilvægt að jafna húshitunar-
kostnað á köldum svæðum. Þetta
kom fram á bæjarráðsfundi á Ísafirði.
VESTFIRÐIR
VINNUMARKAÐUR Dregið hefur úr
launamun kynjanna hjá Lands-
virkjun. Í tilefni af 35 ára afmæli
kvennafrídagsins, birti fyrirtækið
í gær niðurstöður um muninn.
„Þegar skoðuð eru heildar laun
og tekið mið af kyni, aldri, starfs-
aldri, menntun, starfaflokki og
vinnustundum, mælist kyn bund-
inn launamunur 4,2 prósent,
konum í óhag,“ segir á vef fyrir-
tækisins. PricewaterhouseCoo-
pers annaðist könnunina.
Árið 2003 var launamunurinn
12 prósent hjá Landsvirkjun og 6,0
prósent árið 2006. - óká
Þriðja könnun Landsvirkjunar:
Dregið hefur úr
launamuninum