Fréttablaðið - 27.10.2010, Side 18

Fréttablaðið - 27.10.2010, Side 18
KAFFI Kaffi er ein algengasta verslunarvara heims, næst á eftir hráolíu. Kaffiplantan er upprunnin í Eþíópíu en í dag fer langmesta kaffiframleiðslan fram í Brasilíu. Bakaðar baunir, með kaffiblöndu Fyrir 6-8 Undirbúningstími: 10 mínútur Matreiðsla: Klukkutími og fimm mínútur Sósa 1/4 bolli af sterku kaffi 1/4 bolli eplaedik 1-1/2 msk. smjör 1 msk. melassi 2 tsk. sinnep 2 hvítlauksgeirar, niður- brytjaðir 1 tsk. reykt salt 1/4 tsk. mulinn svartur pipar 1/8 tsk. þurrkað timjan 1/8 tsk. þurrkað rósmarín 30 ml af brandí 1 dós rauðar nýrnabaunir, vökv- inn tekinn frá 1 dós pinto-baunir, vökvinn tekinn frá 1 sætur laukur, skorinn í þunnar sneiðar Hitið ofn við 163°C. Blandið saman kaffi, eplaediki, smjöri, melassa, sinnepi, hvítlauk, salti, pipar, timjan og rósmarín á lítilli pönnu. Látið suðuna koma hægt upp og sósuna svo malla í um það bil fimm mínútur. Fjarlægið af hellunni og hrærið saman við brandí. Setjið baunir í eldfast mót, hellið sósunni yfir og hrærið öllu saman. Setjið lauksneiðar ofan á. Eldið í ofni (sem búið er að hita við 163°C án loks í klukkutíma). Kjöthleifur og grillsósa með kaffi- ívafi Fyrir 8 Undirbúningstími: 20 mínútur Matreiðsla: Klukkutími og fimmtán mínútur Kjöthleifur 1/2 kg af nautahakki 1/2 kg af pylsum, húðin tekin af 1 bolli af fíngerðum brauðmolum 2 meðalstórir laukar, fínt saxaðir 1 msk. karríkrydd 1/2 bolli vatn 1 msk. steinselja, brytjuð smátt 1 egg, hrært 1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt 1/2 bolli mjólk salt og pipar eftir smekk Sósa 1 laukur, fínt saxaður 28,5 g smjörlíki 1/2 bolli tómatsósa 1/4 bolli kjötkraftur (eða rauðvín) 1/4 bolli Worcestershire-sósa 1/4 bolli púðursykur 1/4 bolli vatn 2 msk. edik 1 msk. skyndikaffi 2 tsk. sítrónusafi Kjöthleifur: Blandið vel saman nautahakki, pylsum, brauð- molum, lauk, salti, pipar, hvítlauk, steinselju, karríkryddi og eggi í stórri skál. Hrærið vatni og mjólk saman og bætið smám saman út í þar til bland- an er mjúk en þétt undir tönn. Mótið því næst úr henni hleif og setjið á ofnpönnu, sem hefur verið smurð með feiti. Eldið í hálftíma við 190°C. Sósa: Snöggsteikið lauka upp úr smjörlíki á pönnu þar til þeir eru orðnir gylltir. Bætið við tómatsósu, Worcestershire- sósu, púðursykri, vatni, ediki, kaffi og sítrónusafa. Náið suðu rólega upp, lækkið þá hitann á hellunni og látið malla í tíu til fimmtán mínútur. Þess má geta að sósan er líka góð með rifjum eða kjúklingi. Þegar kjöthleifurinn hefur verið hitaður í 30 mínútur í ofni er tilvalið að hella helmingnum af sósunni yfir hann og elda áfram í 45 mínútur. Á þeim tíma er ágætt að dreypa reglu- lega feiti á kjötið. Skerið kjöthleif í þykkar sneiðar og berið fram heitan ásamt afganginum af sósunni. Líka tilvalið sem álegg í samlokur. Risotto með kaffikeimi, öðruvísi eftirréttur Fyrir 2 Undirbúningstími: um það bil 10 mínútur Matreiðsla: um það bil fjörutíu mínútur 1 msk. skyndikaffi 1/2 appelsína, ysta lagið af berkinum rifið og safi 1/2 bolli hrísgrjón (arborio) 2 bollar af mjólk 2 dropar af vanilludropum 1/2 bolli sykur 2 msk. smjör 3/4 bolli rjómi 3 msk. romm (má sleppa) Hellið appelsínusafa og kaffi út í skaftpott með 1/2 bolla af vatni og látið suðu koma upp. Takið pönnuna af hellunni, bætið hrísgrjónum við og látið þau liggja í bleyti í fimm mínútur. Setjið pönnuna aftur á heita helluna og bætið mjólk og vanillu- dropum út í. Eldið á lágum hita þar til grjónin eru orðin þétt undir tönn. Fjar- lægið af hellu og bætið við sykri, ysta lagi appelsínubarkar, smjöri, rjóma og rommi (má sleppa). Hrærið varlega í blöndunni og berið fram hvort í sínum bollanum. - rve BAKAÐAR BAUNIR, GRILLSÓSA OG RISOTTO BRAGÐBÆTT MEÐ KAFFI Upplagt í eldamennsku Kaffið er ekki bara gott að drekka heldur kjörið að nota bæði í bakstur og matargerð til að kitla örlítið bragðlaukana. Hér á eftir fylgja uppskriftir þar sem vín hins vinnandi manns gegnir veigamiklu hlutverki. Vinarþel er heiti á kaffi- og kökustenslum frá íslenska hönn- unarfyrirtækinu Bility. Vörur sem íslenska hönnunar- fyrirtækið Bility hefur kynnt til sögunnar síðustu árin hafa sleg- ið í gegn hérlendis en Bility er í eigu hönnuðanna Guðrúnar Lilju Gunnlaugsdóttur og Jóns Ásgeirs Hreinssonar. Í smiðju Bility má um þessar mundir finna afar skemmtilega kaffi- og kökustensla með tvenns konar myndum á þjóðlegum nótum, prjónamynd og stemningsmynd úr sveitinni. Stenslarnir, sem kall- ast Vinarþel, galdra fram mynd- ir á einfaldan hátt þar sem þeim er haldið rétt ofan við kaffifroðu í bolla eða kökusneið og kakódufti eða flórsykri stráð yfir. Hönnuður- inn, Megan Herbert, er ástralskur, en Megan hefur verið búsett hér- lendis í rúmt ár. - jma Smart kaffiskreytir Stenslarnir mynda tvenns konar myndir – sýna annars vegar íslenska sveit og hins vegar prjónaskap. MYND/ÚR EINKASAFNI Mörgum þykir þægilegt að grípa kaffið með sér á ferðinni þegar lítill tími er til annars. Verslan- ir bjóða margar úrval fallegra ferðakrúsa. Í skemmtilegri ferðakrús frá Bodum er beinlín- is hægt að hella upp á kaffið í krúsinni og drekka það síðan beint en í krúsinni sjálfri er kaffipressa. Það eina sem þarf að gera er að skófla kaffi eða te í krúsina, hella sjóðandi vatni í og hræra með skeið. Þá er lokið skrúfað á og pressunni ýtt niður eftir 4 mínútur. Fyrir þá sem vilja er hægt að bæta mjólk við gegnum drykkjaropið en annars er kaffið eða teið tilbúið til drykkjar. Aukalok fylgir krúsinni sem kemur í nokkrum hressandi litum og fæst bæði úr plasti og stáli. Byggt og búið í Kringlunni. Plast 2.497 krónur, stál 3.997 krónur. Hellt upp á kaffið á harðahlaupum Til að ná hámarks bragðgæðum út úr kaffi þarf hita- stigið á vatninu að vera sem næst suðumarki þegar það fer í gegnum kaffið. Einnig ber að varast að láta vatn og kaffi liggja lengi saman. Því skemmri tíma sem uppáhellingin tekur því minna af óæskilegum eigin- leikum kaffisins leysist úr læðingi. Heimild: www.matarlist.is Kaffiplantan vex í hita- beltislöndum. Einung- is tvö afbrigði hennar eru notuð til rækt- unar, arabica-plantan og Robusta-plantan. Ávöxtur hennar er ber á stærð við ólífu sem fær á sig rauðan lit þegar hann er full- þroskaður. Hver ávöxt- ur inniheldur tvær kaffibaunir. Heimild: www. matarlist.is kaffivélar Alsjálfvirkar HÁGÆÐA kaffivélar. Ný sending komin. Verð frá aðeins kr. 69.990

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.