Fréttablaðið - 27.10.2010, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 27.10.2010, Blaðsíða 20
Ferðafélag barnanna var stofnað í fyrra en höfuðmarkmið þess er að fá börn til að upplifa sanna gleði í náttúrunni og kynnast leyndardómum umhverfisins. Ferðirnar eru á forsendum barnanna og sniðnar að þörfum barna upp að tólf ára aldri. Ferðirnar eru auglýstar á www.allirut.is Meðan á stórframkvæmdum stóð á Austur landi efndi Landsvirkjun til samkeppni um gerð listaverka til að setja upp við Kárahnjúka og í nágrenni stöðvarhússins í Fljótsdal. Hringiða eftir Jónínu Guðnadóttur fékk fyrstu verðlaun og var sett upp á síðasta ári við Hálslón. Það er útsýnispallur, gerður úr íslensku grjóti af svæðinu, og á hann er rit- aður texti úr Völuspá. Í miðjunni er hringur, 7,5 metrar í þvermál, sem er breidd aðrennslisganga Fljóts- dalsstöðvar. Spírall liggur frá ystu brún inn að miðju sem táknar hring- iðuna að aðrennslisgöngunum. Annað verðlaunaverk er í Fljóts- dalnum, skammt frá útfallinu úr rafstöðinni. Það er Eilífðardraum- urinn eftir Ólaf Þórðarson, skúlptúr af tólf metra báti sem virðist á sigl- ingu í straumnum. Samkvæmt lista- manninum fer hann um tvo metra á sekúndu miðað við vatnið og það reiknast svo sem hann fari kringum jörðina á um 230 daga fresti. Vindhreindýr er enn eitt úti- listaverk Landsvirkjunar. Það er eftir Ingunni Önnu Þráinsdóttur og stendur á Fljótsdalsheiði nærri Laugafelli. Eins og nafnið ber með sér færist haus hreindýrsins til eftir vindáttum. Listakonan hafði gamlan íslenskan útsaum í huga í mynstur- gerð stöpulsins, sem er meðal ann- ars úr ryðguðum málmi er tónar við mýrarauða heiðarinnar. Eitt tilkomumikið listaverk á svæðinu er svo það sem öldurnar mynda þegar Hálslón er fullt og þær elta hver aðra á yfirfalli niður í stokk. Eftir honum berast þær í mynstruðum straumi niður á gljúf- urbarminn uns þær verða þar að fossi sem fengið hefur nafnið Hverf- andi, þar sem hann hverfur þegar lækkar í lóninu. gun@frettabladid.is Umhverfislist fyrir austan Fleira hefur verið virkjað en vatnsaflið við Kárahnjúka og í Fljótsdal á síðustu árum. Hæfileikar og kraftar listamanna hafa líka verið virkjaðir til að prýða svæðið og öldur Hálslóns leggja þeim lið. Vindhreindýr eftir Ingunni Önnu Þráins- dóttur stendur nærri Laugafelli. Eilífðardraumurinn er eftir Ólaf Þórðarson. „Bátur hlaðinn farmi varnings og væntinga á endalausri siglingu inn í framtíðina,“ segir á skilti á fljótsbakkanum. Hringiða við Kárahnjúkastífluna er verk eftir Jónínu Guðnadóttur. Það er úr íslensku grjóti af svæðinu, skreytt áli og hluta af fyrsta erindi Völuspár. Öldugangur gæti þetta listaverk heitið en það verður til þegar öldur Hálslóns skvett- ast yfir stífluna. Það minnir á skýjabekki í vefnaði eða prjóni. FRÉTTABLAÐIÐ/GUN Oft er erfitt að komast að olíu- síum í bílum en til eru ýmsar gerð- ir tanga sem auðvelda fólki að ná taki á þeim. Þar má nefna skrall- töng með skafti sem er sérstaklega lagað að gripi handar og auðvelt er að vinna með í þröngu rými. Hún er með tenntum klafa sem læsir sig að húsi olíusíunnar og lágmarkssnúningsásinn er fimm gráður. Töngin nýtist mörgum gerðum sía enda er klemm- uvíddin 66 til 106 mm í þvermál og möguleiki er á forstill- ingu. Þessi gripur nýtist þeim sem a f einhverj- um ástæð- um skipta u m o l í u - síurnar sjálfir, hvort sem það er vegna fjarlægðar frá smurstöðvum eða bara meðfæddrar sjálfsbjargar- viðleitni. Töngin fæst í versl- unum Wurt á Íslandi. - gun Gerir skipti á olíu- síum auðveldari Margir sinna viðhaldi bíla sinna sjálfir eftir föngum, meðal annars olíuskiptum og þá líka olíusíuskiptum. Skralltöngin er að hluta til úr ryðfríu stáli. Borgardekk NÝ VERSLUN 20% KYNNINGAR- AFSLÁTTUR Áður en lagt er í ferða- lag er gott að kynna sér reglur um farang- ur, en farþegar sem ferðast með evrópsku flugfélagi á hvaða áfangastað sem er eiga rétt á skaðabót- um fyrir það tjón sem verður á farangri ef hann tefst, glatast, skemmist eða eyði- leggst. Nánari upp- lýsingar um réttindi flugfarþega má fá hjá Flug- mála- stjórn Íslands. Heimild: www.neytenda- stofa.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.