Fréttablaðið - 27.10.2010, Page 22

Fréttablaðið - 27.10.2010, Page 22
 27. OKTÓBER 2010 MIÐVIKUDAGUR Að sögn Tinnu Guðmundsdóttur hjá ILVA er vert að hafa nokkur atriði í huga þegar velja á gott ljós fyrir heimilið. „Í fyrsta lagi er val á lýsingu mikilvægur þáttur, hvort sem um er að ræða vinnulýsingu eða stemn- ingslýsingu. Þeir sem sækjast til dæmis eftir þekktri hönnun þurfa að vera viðbúnir því að leggja út meiri pening,“ bendir hún á en bætir við að verð og gæði haldist þó ekki alltaf sjálfkrafa í hendur. „Vissulega er hægt að fá bæði falleg og vönduð ljós eða lampa á lágu verði í ILVA.“ Þá segir Tinna að margir stílflokkar séu í boði fyrir viðskiptavini hvort sem fólk sækist eftir nú- tímalegum stíl með björtum litum eða klassískum rómantískum stíl þar sem meira er lagt í notalegheit. „Gott er að koma í verslun ILVA og fá ráðleggingar hjá sölufólki eða útstillingahönnuði hvað henti fólki og rými best.“ Stærð ljóssins segir hún sömuleiðis mikilvæga. „Þegar til dæmis velja á ljós í réttri stærð yfir borð er best að mæla fyrst breidd eða ummál borðsins, draga um það bil þrjátíu sentimetra frá þeirri tölu sem hefur verið mæld og gefur það góða hugmynd að stærð ljóssins.“ Loks getur Tinna þess að áríðandi sé að átta sig á væntanlegu hlutverki ljóssins. „Það þarf að hugsa hvort því sé ætlað að lýsa vel í rýminu, skapa stemn- ingu, vinnulýsingu eða vera eingöngu til skrauts.“ Mikilvægt að vanda valið Góð lýsing eða augnakonfekt? Þetta og fleira þarf fólk að hafa í huga þegar það festir kaup á ljósi fyrir heimilið að sögn Tinnu. Ljósa- og lampahönnun einkennist af náttúrulegu útliti og efnisvali í verslunum ILVA í vetur, segir Tinna Guðmunds- dóttir sölustjóri smávöru- deildar ILVA á Korputorgi. „Það eru ákveðin þáttaskil að verða í ljósum og lömpum í vetur þar sem náttúrulegt útlit og efn- isval er að koma sterkt inn sem viðbót við það vöruúrval sem þegar er til staðar,“ segir Tinna og getur þess að þetta sjáist bæði af hönnun og efnisvali. „Beinar línur, akrýl og málmar verða þannig í minna magni en áður, en tágum, bambus og þessum nátt- úrulegu efnum leyft að njóta sín til hins ýtrasta.“ Tinna telur þessar breyttu áherslur henta vel hérlendis þar fólk vilji almennt hafa hlýlegra í kringum sig en áður. „Hugar- farið hefur bara mikið breyst frá góðærinu þegar allir sótt- ust eftir nýtískulegum og hörð- um stíl, háglans og þess háttar. Nú kýs fólk notalegheit og þessi nýju ljós og lampar frá ILVA eru vel til þess fallnir að svara þeirri eftirspurn.“ Ekki er þó þar með sagt að allt nýtískulegt sé með öllu horfið á bak og burt að sögn Tinnu. „Nei, auðvitað geta þeir sem sækjast eftir slíku fengið ýmislegt við sitt hæfi í verslunum ILVA, bæði í ljósum og lömpum og annarri gjafavöru,“ segir hún og getur þess að ljós og lampar séu einn- ig fáanlegir í fleiri en eingöngu náttúrulegum útfærslum. „Fjólu- blátt er til dæmis áberandi um þessar mundir, einnig grænt og appelsínugult.“ Hjá ILVA er líka hægt að fá alls kyns gjafavöru í fyrrgreind- um litaafbrigðum og stílflokkum en Tinna segir fara vel á því að blanda henni saman við bast, bambus og hvers kyns viðar- tegundir. „Smáhlutir í sterkum litum lífga óneitanlega upp á um- hverfið og oft þarf ekki nema að skipta um einn eða tvo lampa- skerma til að ná tilætluðum áhrifum,“ bendir hún á og nefnir í því samhengi lampaskerma með áprentuðum myndum, ljósmyndum af trjám og blóm- um, sem fáist í ýmsum útgáfum í ILVA. „Allt saman á þetta sinn þátt í að gera heimilið að notalegum verustað.“ Viðartegundir og tágar beint frá móður náttúru Tinna segir náttúrulegt útlit og efnisval í ljósum og lömpum marka ákveðin þáttaskil. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.