Fréttablaðið - 27.10.2010, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2010
Fyrirtækið Lumex var stofnað
1985 og á því 25 ár að baki.
Það hefur alla tíð lagt áherslu á
ráðgjöf í réttri hönnun lýsing-
ar.
„Meginmarkmið fyrirtækisins
hefur frá upphafi verið það að
hjálpa fólki að velja lýsingu við
hæfi, þannig að það keypti sér
ekki bara ljós heldur fengi ráð-
gjöf um hvernig það ætti að nota
það,“ segir Ingi Már Helgason,
framkvæmdastjóri Lumex. Hann
tekur fram að Lumex hafi líka
alltaf verið með umboð fyrir flott
ljós, bæði fylgst með því sem er
að gerast í nýjum hlutum ásamt
því að vera með gamla klassíkera.
„Svo reynum við að blanda þessu
saman sem heildarlausnum, því
þegar verið er að innrétta nýtt
húsnæði eða breyta gömlu viljum
við helst vera með puttana í því
hvar ljósin eru sett til að þau nýt-
ist sem best. Lumex er eina fyrir-
tækið sem hefur haft þetta hlut-
verk í forgrunni.“
Lumex hefur ávallt rekið teikni-
stofu og verið með sérmenntað
fólk í lýsingarhönnun. „Við náum
okkur í nýtt efni og sækjum okkur
kunnáttu erlendis á þessu sviði,“
segir Ingi Már, sem sjálfur miðlar
af þekkingu sinni í Tækniskólan-
um þar sem lýsingarhönnunarnám
er tiltölulega nýtt af nálinni.
Lumex er í Skipholti 37 og
verslun in er nýbúin að fara í gegn-
um gagngerar endurbætur. „Það
stóð til að flytja en sökum breyttra
aðstæðna í þjóðfélaginu ákváðum
við að vera hér áfram en endurnýja
búðina að stórum hluta og opnuð-
um hana í nýrri mynd nú í vikunni.
Það er ákveðin tiltekt eftir að hafa
verið hér í þrettán ár,“ lýsir Ingi
Már. Hann bendir á að allt sé nú
málað í hlýjum litum. „Fólk er að
fara úr hvítu yfir í hlýrri liti og
samtímis er krafa um meiri mýkt
í lýsingu en hefur verið undan-
farin ár, fleiri lampa og skerma.
Við fylgjum þeirri þróun og bjóð-
um alla flóruna,“ segir hann. „Við
erum líka að taka inn nýja, ein-
falda, danska hönnun á góðu verði,
leslampa, borðlampa og ýmislegt
til að skreyta heimilið með.“
Lumex flytur líka inn húsgögn
frá tveimur framleiðendum, Moooi
og Tom Dixon, svolítið sérstök
húsgögn og ekki alveg hefðbund-
in. Auk þess kveðst Ingi Már vera
búinn að semja við fyrirtæki sem
getur útvegað honum allar algeng-
ar glóperur. „Við ætlum ekki að
hlíta þessu glóperubanni fullkom-
lega,“ segir hann ákveðinn. „Við
erum á þeirri skoðun að ef fólk
kaupir einhvern fallegan lampa
þá sé ekki hægt að setja í hann
hvaða peru sem er. Þessi reglu-
gerð um bann við gló perum er út
úr kú. Við Íslendingar eigum nóg
af hreinni orku þannig að bannið
er óþarft hér.“
Leiðandi í hönnun lýsingar
Verslunin Lumex í Skipholti 37 var opnuð í nýrri mynd nú í vikunni eftir gagngerar endurbætur. Þar er lögð aukin áhersla á mýkt í
lýsingu að sögn framkvæmdastjórans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Markmiðið er að hjálpa fólki að velja
lýsingu við hæfi,“ segir Ingi Már Helga-
son, framkvæmdastjóri Lumex.
„Ljóstvistar er nýtt íslenskt nafn
á díóðuljósum en þegar slík ljós
komu fyrst á markað voru þau
gráhvít og köld. Nú er kominn
nýr hvítur litur sem gefur hlý-
legri birtu og hægt er að nota í
óbeinar og faldar lýsingar, með
möguleika á að dimma og jafnvel
breyta litum.“ Þetta segir Ingi
Már Helgason, framkvæmdastjóri
Lumex í Skipholti 37. Hann segir
fyrirtækið hafa verið að prófa sig
áfram á þessum markaði.
„Nú erum við með tvö fyrirtæki
sem útvega okkur mjög góða ljós-
tvista, endingargóða og vandaða.
Annað þeirra er Insta í Þýska-
landi sem er eitt það stærsta í
þessum bransa, hitt er í Asíu og
er með mikið af útiljósum til að
nota þar sem menn vilja fá daufa
og þægilega birtu. Þau eru líka
til með litaskiptum. Við höfum
verið að auka úrvalið í þessum
ljósum en þó þannig að gæðin séu
í fyrir rúmi. Endingin á þeim er
góð og þau hjálpa fólki að spara
orkuna.“
Hjálpa til við orkusparnað
Lumex er með úrval af ljósvistum.