Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.10.2010, Qupperneq 29

Fréttablaðið - 27.10.2010, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 27. október 2010 5 Grænt Reykjavíkurkort er sam- vinnuverkefni vefsins Náttúran. is, fjölþjóðlega verkefnisins Green Map System, Reykjavíkurborg- ar og Háskóla Íslands. Tilgang- ur þess víða um heim er að gera vistvæna kosti á sviði viðskipta, menningar og ferðaþjónustu sýni legri og aðgengilegri. „Við hjá Nátt- úran.is byrj- uðum að vinna að grænu korti fyr ir Ísland árið 2005. Þá h ófs t m i k i l vinna við að flokka og skilgreina aðila, fylgjast með hver væri að gera hvað og á hvaða forsend- um en upplýsingar um vistvæna kosti lágu ekki alltaf á lausu og því mikil vinna að fá gögn og upp- lýsingar, meðal annars frá stofn- unum, til að koma á frambæri- legt form fyrir almenning,“ segir Guðrún Arndís Tryggvadóttir hjá Náttúran.is. Heildstætt grænt kort fyrir Ísland birtist á vefnum haustið 2008 og var Ísland fyrsta landið sem flokkaði allt landið eftir Green Map-kerfinu. Græn kort hafa annars verið þróuð í yfir 600 sveitarfélögum, borgum og hverfum í yfir 55 löndum. Prentaða útgáfan af Reykja- víkurkortinu byggir á vefútgáfu Græna Íslandskortsins og er bæði á ensku og íslensku. „Við völd- um 29 flokka til að birta á prent- aða kortinu en á vefnum eru þeir mun fleiri,“ upplýsir Guðrún en Náttúran.is fékk styrk frá Höfuðborgar stofu til að skoða Reykjavík sérstaklega út frá þeim flokkum sem urðu fyrir valinu. Á kortinu er að finna ýmis tákn sem vísa í mismunandi þætti á borð við hvar megi fá vistvænt elds- neyti, hvar séu hættur í umferð- inni og flokka eins og græn fyrir- tæki, græna tækni, matsölustaði, endurnýtingu, sundlaugar, ýmsa ferðaþjónustumöguleika, grænar verslanir, baráttusamtök, nytja- markaði, bílastæði, matvæla- aðstoð, náttúruverndarsvæði og margt fleira. Reykjavíkurkortið virðist aðeins upphafið því prentað kort af Íslandi er væntanlegt næsta vor og Guðrún býst við að fleiri kort af afmörkuðum svæðum líti dags- ins ljós. „Enda hafa viðtökurn- ar við Reykjavíkurkortinu verið mjög góðar,“ segir hún en bend- ir á að fjöldi kortanna fari eftir vilja sveitarfélaganna til að leggja fé í verkefnið, enda mikil vinna að taka út hvern landshluta. Reykjavíkurkortið má nálgast hjá Höfuðborgarstofu en auðveld- asta leiðin er að panta það á www. náttúran.is. Kortið er ókeypis og einungis þarf að borga fyrir pökk- un og flutningskostnað. solveig@frettabladid.is Grænn leiðarvísir um Reykjavíkurborg Grænt Reykjavíkurkort í prentuðu formi var nýverið gefið út. Að því stendur Guðrún Arndís Tryggvadóttir hjá Náttúran.is sem í fjölmörg ár hefur sankað að sér upplýsingum um vistvæna kosti. Á kortinu er að finna ýmis tákn sem vísa í mismunandi þætti allt frá hvar megi fá vistvænt eldsneyti og leigja sér hjól, til grænna verslana, sundlauga og matsölustaða. Guðrún Arndís Tryggvadóttir vann kortið ásamt Signýju Kolbeins- dóttur. Aðventuferðir til Þýskalands eiga jafnan vinsældum að fagna hjá Íslending- um. Ein slík verður farin til Wiesbaden á vegum Bændaferða dagana 25. til 28. nóvember. Fararstjóri verður Smári Ríkharðsson. Wiesbaden er fögur borg með merka sögu. Hún stendur á bökkum Rínar, skammt frá Frankfurt. Þar verður gist á hóteli við göngugötuna. Aðventustemning er í miðbænum og fallegur jólamarkaður þar sem upp- lýstir englar svífa yfir litríkum jólahúsum. Á öðrum degi ferðarinnar er farið til Rüdesheim sem er vinsæll ferða- mannabær. Í hjarta hans er hinn svokallaði jólamarkaður þjóðanna þar sem hægt er að fylgjast með hvernig handverk frá hinum ýmsu löndum er unnið. Jóladrykkurinn Glühwein er gjarnan sötraður meðan rölt er á milli jólabásanna sem þetta árið eru 125 talsins. Á markaðstorginu stendur stærsta jata Þýskalands með jólafígúrum í fullri stærð. Þriðji dagurinn er frjáls dagur í Wiesbaden en fararstjórinn mun bjóða upp á bæjarrölt og leiðsögn fyrir hádegi fyrir þá sem vilja. Komið er heim á fjórða degi sem er sunnudagur. Upplýstir englar yfir jólahúsum ÓVÍÐA Í HEIMINUM ER AÐVENTUSTEMNINGIN MEIRI EN Í ÞÝSKALANDI. Leitarhundar slysa- varnafélagsins Lands- bjargar eru sjálfboða- liðasamtök en innan þeirra starfar björgunar- sveitarfólk um allt land. Æfingarnar eru öllum opnar en til að verða fullgildur félagi þarf að vera fullgildur félagi í björgunarsveit, vera orðinn átján ára og hafa starfað með leitarhundum í 12 mánuði. Heimild: www. leitarhundar.is KAUPMANNAHÖFN - LA VILLA Guesthouse á besta stað í bænum.Stúdíoíbúðir og herbergi. Geymið auglýsinguna. www.lavilla.dk. GSM. 0045 2848 8905 Einn af 29 flokkum á kortinu er Leiga og skipti. Þar eru taldir upp staðir þar sem hægt er að leigja hjól eða umhverfis væn farartæki, eða vefir þar sem hægt er að mæla sér mót og verða samferða í bíl með öðrum á forsendum þess að tekið sé þátt í kostnaði. Borgarhjól sf. Farfuglaheimilið í Reykjavík Farfuglaheimilið Vesturgötu Hreyfill – metan Taxi Háskólinn í Reykjavík www. forskot.is Hertz bílaleiga – vetnisbifreiðar Höldur ehf. Samferða www.samferda.net

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.