Fréttablaðið - 27.10.2010, Síða 34
27. október 2010 MIÐVIKUDAGUR18
Elsku litla dóttir okkar og barnabarn,
Álfrún Emma
Guðbjartsdóttir
fædd 10. október,
lést á Landspítalanum 18. október. Útförin fer fram frá
Garðakirkju fimmtudaginn 28. október kl. 15.00.
Guðbjartur Ólafsson Hugrún Hörn Guðbergsdóttir
Ólafur M. Jóhannesson Þórdís G. Stephensen
Guðberg Þórhallsson Sigrún Stefánsdóttir
Ástkær eiginkona, móðir, amma og
langamma okkar,
Ingibjörg Tryggvadóttir
lést að morgni 24. október á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Hartmann Eymundsson
Hannes Hartmannsson
Jóhanna Hartmannsdóttir
Dóra Hartmannsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
Gyða Gestsdóttir
áður Njálsgötu 72,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 20.
október. Útförin fer fram í Fossvogskirkju föstudaginn
29. október kl. 13.00. Sérstakar þakkir til starfsfólks A-3
á hjúkrunarheimilinu Grund, fyrir hlýju og kærleiksríka
umönnun.
Auður Aðalmundar Sævar Þór Guðmundsson
ömmu og langömmubörn.
Elskulegur bróðir okkar, mágur og
frændi,
Þórhallur Daníelsson
lést að morgni laugardagsins 16. október á Heilbrigðis-
stofnun Fjallabyggðar. Útför hans fer fram frá Siglu-
fjarðarkirkju laugardaginn 30. október kl. 11.00.
Sigurður Gunnar Daníelsson
Soffía Svava Daníelsdóttir og Birgir Guðjónsson
Ingibjörg Daníelsdóttir
og fjölskyldur.
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Sigurlaugar Fjólu
Kristmannsdóttur
fyrrum húsfreyju, Hvammi í Vatnsdal,
Þorragötu 5, Reykjavík.
Hallgrímur Guðjónsson
Hafsteinn Gunnarsson Ásta Jónsdóttir
Ingibjörg Rósa Hallgrímsdóttir Gísli Ragnar Gíslason
Þuríður Hallgrímsdóttir Finnbogi Kjartansson
Margrét Hallgrímsdóttir Gunnar Þ. Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ástríður Kristín
Arngrímsdóttir
áður Sogavegi 174,
sem lést að hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánudaginn
18. október síðastliðinn, verður jarðsungin frá
Neskirkju miðvikudaginn 27. október kl. 15.00.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sóltúns fyrir
mjög góða umönnun, ljúft viðmót og hlýju.
Sigurður Sigurðsson, Áslaug Jóhannsdóttir,
Grímur Sigurðsson, Anna Björg Erlingsdóttir
Magnús Sigurðsson
Ásta Margrét Sigurðardóttir Örn Arnaldsson
og langömmubörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ingibjörg Ólafsdóttir
Grenivöllum 12, Akureyri,
andaðist miðvikudaginn 20. október á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri. Útförin fer fram frá Akureyrar-
kirkju föstudaginn 29. október klukkan 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurlína Jónsdóttir Þórarinn Höskuldsson
Jón Hafþór Þórisson
Tinna Þórarinsdóttir
Rakel Þórarinsdóttir Hafþór Jónasson
Jónas Þór Hafþórsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Benedikt Bjarnason
fv. kaupmaður og útgerðarmaður í
Bolungarvík,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði sl. miðvikudag
20. október. Útförin fer fram frá Hólskirkju
í Bolungarvík, laugardaginn 30. október kl. 14.00.
Hildur Einarsdóttir
Einar Benediktsson María Guðmundsdóttir
Halldóra Benediktsdóttir Sören Pedersen
Bjarni Benediktsson
Ómar Benediktsson Guðrún Þorvaldsdóttir
afabörn og langafabörn.
Ástkær frænka okkar,
Sigþrúður
Guðbjartsdóttir (Sússa)
andaðist 18. október. Útför fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 27. október kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Halldóra Kristín Arthursdóttir
Íris Bryndís Guðnadóttir.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Félag dönskukennara
bjóða til málþings í Norræna húsinu í dag í tilefni af form-
legri opnun á Frasar.net, nýju máltæki sem á að auðvelda
tjáskipti bæði á dönsku og íslensku.
Máltækið, sem hefur að geyma hátt í 4.000 orðtök, er
afrakstur samanburðarrannsóknar Auðar Hauksdóttur dós-
ents á orðtökum í dönsku og íslensku. Það er hannað af dr.
Ola Knutsson, lektor í tölvumálvísindum við Stokkhólmshá-
skóla og Robert Östling doktorsnema við sama skóla.
Søren Haslund, sendiherra Danmerkur, mun opna máltæk-
ið á málþinginu og flutt verða tvö erindi.
Málþingið hefst í dag kluukkan 16 og lýkur 18.20 með létt-
um veitingum. Dagskráin er öllum opin. - jbá
Tæki til tjáskipta
AUÐVELDAR TJÁSKIPTI Máltækið er meðal annars ætlað til þess að
Félagsmiðstöðvardagurinn
er haldinn hátíðlegur í dag
í sjöunda sinn, með skipu-
lagðri dagskrá í félagsmið-
stöðvum Reykjavíkurborg-
ar.
Dagskrá félagsmiðstöðva-
dagsins verður breytileg
milli félagsmiðstöðva, en
unglingar og unglingaráð
félagsmiðstöðvanna bera
þungann af undirbúningi
hans á hverjum stað ásamt
frístundaráðgjöfum. Þá verð-
ur víða boðið upp á kræsing-
ar sem eru jafnframt fjáröfl-
un unglinganna fyrir ýmis
félagsstörf þeirra.
Markmið dagsins er að
gefa áhugasömum færi á að
heimsækja félagsmiðstöð-
ina í sínu hverfi, kynnast
því sem þar fer fram, ungl-
ingunum í hverfinu og þeim
viðfangsefnum sem þeir
fást við með stuðningi frí-
stundaráðgjafa í félagsmið-
stöðinni.
Þess skal jafnframt getið
að í tilefni dagsins verður
Félagsmiðstöðvablaðið UNG
gefið út í sjöunda sinn.
Hægt er að kynna sér
nánar dagskrá og opnunar-
tíma félagsmiðstöðvanna á
félagsmiðstöðvardaginn á
heimasíðu ÍTR, www.itr.is.
- jbá
Líf og fjör í fé-
lagsmiðstöðvum
MIKIÐ UM AÐ VERA Félagsmið-
stöðvar í Reykjavík standa fyrir
fjölbreyttri dagskrá í dag.
NORDICPHOTOS/GETTY
Eftir fjögurra áratuga hvíld tekur Moli litli flug-
ið á ný og nú í endurhannaðri og fallegri kápu.
Fyrstu tvær bækurnar um hann koma út núna
fyrir jólin en að ári liðnu verða þær orðnar átta
talsins og hefur áttunda bókin aldrei litið dags-
ins ljós áður.
Það er Höskuldur Sigurðarson tölvunarfræð-
ingur sem ásamt konu sinni, Guðrúnu Heimis-
dóttur, gefur bækurnar út. Hver er ástæðan?
„Þetta er bara hugsjónastarf,“ segir Höskuld-
ur. „Ragnar Lár var ömmubróðir minn og ég
á svo góðar minningar um Mola litla frá því
ég var strákur heima hjá Fríðu ömmu minni
því þá voru bækurnar um hann lesnar ofan í
kjölinn. Nú eru 40 ár frá því þær voru síðast
gefnar út og mér fannst ómöguleg tilhugsun
að nútímabörn fengju ekki að kynnast honum.
Þessvegna drífum við í þessu,“ segir hann og
tekur fram að þau hjón hafi stofnað vefsíðuna
www.moliflugustrakur.is og einnig facebok-
síðu.
Ragnar Lár hefði orðið 75 ára 13. desember
ef hann hefði lifað. Þann 12. ætlar Höskuldur að
halda útgáfusamkvæmi á Brúarlandi í Mosfells-
bæ, fæðingarstað Ragnars Lár og hyggst koma
upp sýningu á verkum hans samtímis. „Ragnar
var um margt merkilegur karl,“ segir Höskuld-
ur. „Hann gerði til dæmis fyrstu hreyfimyndina
í sjónvarpið. Hún var um Valla víking.“ -gun
Á góðar minningar um Mola litla
MOLI LITLI Fyrstu tvö bindin um flugustrákinn koma út
á næstu vikum.