Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.10.2010, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 27.10.2010, Qupperneq 39
MIÐVIKUDAGUR 27. október 2010 23 Myndlist ★★★ Power Has a Fragrance Gardar Eide Einarsson – Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús Gardar Eide Einarsson (1976), norskur en af íslenskum ættum, sýnir nú á tveimur hæðum í Listasafni Reykjavíkur, Hafn- arhúsi. Titill sýningarinnar er Power Has a Fragrance. Gard- ar sækir efnivið verka sinna til bandarísks samfélags. Hann er fæddur og uppalinn í Noregi en hefur búið í New York síðan 10. september 2001. Dagsetningin sýnir að Gardar kom inn í banda- rískt samfélag á tímamótum, en ofsóknaræðið sem fylgdi árás- unum 11. september er meira og minna inntak verka hans. Gardar sækir orðfæri og mynd- mál verka sinna út í samfélagið, einna helst í frelsisbaráttu jað- arhópa eða einstaklinga, eða í myndefni og upplýsingar frá hinu opinbera, til dæmis mynd- ir af lögreglumanni með kylfu. Þetta setur hann síðan fram í listrænu samhengi, rétt eins og listamenn hafa gert um áratuga skeið. Á sjöunda áratug síðustu aldar gerði Andy Warhol eftir- minnileg myndverk, meðal ann- ars af byssum og rafmagnsstóln- um auk mynda af frægu fólki. Myndröð Gardars af lögreglu- Heillandi hatur manni með kylfu minnir meðal annars á mynd Warhols af Elvis mundandi byssu. Báðir listamenn gera ofsóknaræði og hatur banda- rísks samfélags að yrkisefni, án þess að ég ætli mér að líkja verk- um þeirra frekar saman. Gardar leitast við að miðla þessum neikvæðu þáttum sam- félagsins á yfirvegaðan máta. Hér getur línan milli óttabland- innar hrifningar á neikvæð- um þáttum og raunverulegri ígrundun þeirra verið fín. Þessi mörk eru ekki meginviðfangs- efni listamannsins heldur leitast hann við að birta ákveðið sam- félagsástand sem litast af ótta, ofsóknaræði og hatri. Það örlar á þeirri spurningu hvort lista- maðurinn sé undir áhrifum hálf- gerðrar hryllingsheillunar, heill- ist af amerísku samfélagi eins og hægt er að heillast af hryllings- mynd. Titill sýningarinnar er einn- ig titill á lagi eftir bresku jaðar- sveitina Death in June. Ég veit ekki hvort Gardar hefur hann þaðan, það skiptir varla máli, en í laginu koma einnig fram þess- ar línur: „we know our god/by the things he creates/life, beauty, but most of all hate,” línur sem eiga ágætlega við verk hans. Helsti kostur sýningar Gardars er sjón- ræn útfærsla verka hans sem einkennist af formfestu og er að mestu dempuð og svart/hvít. Honum tekst með þessu að end- urskapa á sýningunni sjálfri eitt- hvað af þeim ótta sem verkin vísa til. Ragna Sigurðardóttir Niðurstaða: Það er óvenjulegt að sækja heim sýningu þar sem helstu hughrifin eru hatur, áhorfandinn virð- ist jafnvel óvelkominn, ítrekanir um að snerta ekki listaverkin fá óhugnan- legan undirtón. Þetta kemur á óvart og markar listamanninum sérstöðu. Þrjár nýjar bækur hafa komið út á undanförnum dögum sem eiga það sam- eiginlegt að vera frumraun nýrra kven- rithöfunda á skáldsagna- sviðinu. Mál og menning gefur út Stolnar raddir eftir Hugrúnu Hrönn Kristjánsdóttur íslenskufræð- ing. Bókin fjallar um rótlausa Reykjavíkurstelpu sem býr í kjallaranum hjá ömmu sinni ásamt dóttur sinni og veit ekki hvort hún á að halda sig við lög- fræðinemann sem á framtíðina fyrir sér eða kvensaman mið- aldra blaða- mann. Brest- ir koma hins vegar í hvers- dagslífið þegar hún finnur falda mynd bakvið trúlof- unarmyndina af ömmu sinni og afa. Hjá Sögum er komin út bókin Tregðulögmálið eftir Yrsu Þöll Gylfadóttur, doktors- nema í bókmenntum við Parísar- háskóla. Sú bók fjallar einn- ig um unga konu á krossgötum sem finnur hjá sér þörf til að skilgreina allt í umhverfi sínu. Með ófor- skammaðri gráglettni leið- ir hún lesend- ur í vitundar- vakningu um merkingu og tilgang til- verunnar. Þriðja bókin er Geislaþræðir eftir Sig- ríði Pétursdóttur, kvikmynda- fræðing og útvarpskonu, og kemur út hjá Uppheimum. Sú fjallar um fólk sem skrifast á yfir netið, þar á meðal ófríska unglingsstúlku á Íslandi sem skrifast á við aldraða konu í Ástralíu. Nýjar raddir í bókaflóðinu SIGRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR YRSA ÞÖLL GYLFADÓTTIR HUGRÚN HRÖNN KRISTJÁNSDÓTTIR 28 október 16-22 29 október 12-22 30 október 12-22 31 október 12-22 1 nóvember 16-22 2 nóvember 16-22 3 nóvember 16-22 4 nóvember 16-22 Opnunartími fyrir utan þessa daga er virka daga frá kl 16 - laugardaga og sunnudaga 12-16 10% opnunarafsláttur af öllum skóm 28 október - 4 nóvember Skórnir & fötin hjá okkur koma í takmörkuðu magni & verða ekki til sölu aftur? Hvað er gaman við að eiga falleg föt & flotta skó ef allir eiga eins?

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.