Fréttablaðið - 27.10.2010, Qupperneq 43
MIÐVIKUDAGUR 27. október 2010 27
KÖRFUBOLTI Reykjanesbæjarliðin
Njarðvík og Keflavík hafa aðeins
unnið 3 af 8 fyrstu leikjum sínum í
Iceland Express-deild karla í vetur
og sitja hlið við hlið í 8. og 9. sæti
deildarinnar.
Þetta er sögulega slök byrjun því
það hefur aldrei gerst áður í sögu
úrvalsdeildar karla að liðin úr
þessum mikla körfuboltabæ hafa
tapað fleiri leikjum en þau hafa
unnið í fyrstu fjórum umferð-
um tímabilsins.
Keflvíkingar eru mun verr
staddir en nágrannar þeirra
í Njarðvík því Keflavíkurliðið
hefur nú tapað þremur leikjum í
röð. Keflavík vann 11 stiga sigur
á ÍR (88-77) í fyrsta leik en hefur
síðan tapað fyrir Snæfelli (81-
90), Stjörnunni (69-78) og Hamri
(85-90).
Þetta er í fyrsta sinn í sögunni
sem Keflavík nær aðeins að vinna
einn af fyrstu fjórum leikjum
sínum og þar er meðtalið tíma-
bilið 1983-84 þegar liðið féll úr
úrvalsdeildinni en þá vann
Keflavík 2 af fyrstu 4
leikjum sínum.
Það háir vissulega Keflavíkurlið-
inu að liðið spilar án Valentino Max-
well sem hefur verið meiddur síðan
fyrir mót en liðið hefur því þurft að
treysta algjörlega á íslensku leik-
mennina sína .
Njarðvíkingar hafa unnið 2
af 4 leikjum sínum þar á meðal
urðu þeir fyrstir til þess að vinna
Íslandsmeistara Snæfells á dögun-
um. Árangur Njarðvíkurliðs-
ins er þó ekki nógu góður til
þess að rífa sigurhlutfall
Reykjanesbæjarliðinna upp
í fimmtíu prósentin.
Það segir sitt um
frábæran árang-
ur Reykjanes-
bæjarliðanna
að það hefur
aðeins fjórum
sinnum gerst
að liðin eru
saman
ekki með
betri en
fimmtíu
prósenta
árang-
ur. Það
gerðist
síðast
fyrir
tveim-
ur
árum
e n í
fyrra
unnu
l iðin 7
af fyrstu
8 leikjum
sínum. - óój
Reykjanesbæjarliðin aðeins í 8. og 9. sæti í körfunni:
Sögulega slök byrjun
GUNNAR
EINARSSON
Þekkir það
ekki á löng-
um ferli
að byrja
svona illa.
Sögulega slök byrjun
Hér fyrir neðan má sjá versta saman-
lagðan árangur Reykjanesbæjarliðanna
tveggja, Keflavíkur og Njarðvíkur, í
fyrstu fjórum deildarleikjum sínum á
tímabili.
Verstu byrjanir í Reykjanesbæ:
38 prósent 3 sigrar - 5 töp
2010-11 (Kef. 1-3, Nja, 2-2)
50 prósent 4 sigrar - 4 töp
2008-09 (Kef. 2-2, Nja. 2-2)
1997-98 (Kef. 2-2, Nja. 2-2)
1995-96 (Kef. 2-2, Nja. 2-2)
1986-87 (Kef. 2-2, Nja. 2-2)
Reiðhjól í miklu
úrvali fyrir alla
aldurshópa.
Það er holl og góð
útivera að hjóla.
HAUSTTILBOÐ
www.markid.is sími 553 5320 Ármúla 40
ÍSLAND–LETTLAND
Undankeppni EM 2012
Laugardalshöll
Miðv. 27.október
Klukkan 19.40
Miðasala á
A-landslið karla hefur leik
í undankeppni EM 2012 og
fyrstu andstæðingarnir eru
Lettar. Strákarnir okkar hafa
staðið sig frábærlega á síðustu
stórmótum og þurfa á þínum
stuðningi að halda til að
tryggja sér sæti á
EM í Serbíu.
Fjölmennum á völlinn og
styðjum strákana okkar!
Áfram Ísland!
M
ed
ia
G
ro
u
p
eh
f
|
A
u
g
lý
si
n
g
ar
|
H
S
Í
2
0
1
0
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU