Morgunn


Morgunn - 01.12.1976, Page 10

Morgunn - 01.12.1976, Page 10
108 MORGUNN borgarísjaka og sökk. Meiri hluti 2500 farþega fórst með skíp- inu. Það var engin furða, því þegar betur var að gáð kom i ljós að á þessu 70,000 lesta skipi voru aðeins 24 björgunar- bátar, sem ekki gátu riimað helming farþega og áhafnar. En engu að síður vakti þessi gifurlegi hanuleikur litla at- hygli almennings árið 1898. Hvers vegna? Sökum þess að ])('tta gerðist bara á blöðum skáldsögu nokkurrar, sem bar nafnið: Þegar Titan jórst. Skáldsaga þessi var eftir ungan enskan rithöfund, sem barðist í bökkum, enda lítt kunnur. Þessi bók hans vakti litla athygli, þegar hún kom út. F.n það varð annað uppi á teningnum fjórtíin áðum síðar. Þá beindist athygli alLra að þessari litt þekktu bók, sem allt í einu varð efni i stórfréttir allra blaða og nú var henni lýst, sem stórkostlegasta spádómi 19. og 20. aldar- Því alveg eins og sagt var frá í skáldsögunni gerðist það napra aprílnótt, eða þann 14. apríl 1912, að hið raunverulega 66,000 lesta far- þegaskip Titanic (sem höfundur í bók sinni kallaði Titan) rakst á borgarísjaka og sökk og fórst með því fjöldi manns. Og alveg eins og skipið í sögunni, sem bar svona sláandi líkt nafn, gerðist þetta i raunveruleikanum á jómfrúarferð þess yfir Atlantshafið. Og rétt eins og skipið í skáldsögunni frá 1898 hafði þetía skip þrjár skrúfur með hámarkshraðanum 25 sjómílur á klukkustund. Bæði báru skipin fjölda farþega og mannmarga áhöfn og höfðu alltof fáa björgunarbáta fyrir þetta fólk. A Titanic voru þeir ekki nema 20. Og að lokum voru ba>ði skipiri sögð ósökkvandi. I bókinni er einn hásetinn látinn segja um Titan: „Sjálfur guð gæti ekki sökkt þessu skipi.“ En um Titanic er það að segja, að því var skipt í 16 vatnsheld hólf og eigendur skipsins töldu það fullkomnasta skip í heimi og algjörlega öruggt. En þrátt fyrii' þetta allt saman komst snemma á kreik sá orðrómur meðal fólksins um horð, að skipið væri feigt, og kváðust ýmsir þeirra sem af komust hafa allan timann haft sterka tilfinningu þess, að eitthvað ægilegt myndi koma fyrir- Að vísu hafði enginn sagt fyrir um þetta ægilega sjóslys ems nákvamilega og rithöfundurinn Robertson í bók sinni 1898,

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.