Morgunn - 01.12.1976, Blaðsíða 37
DULSKYNJANIR
135
spiritisma, eða ]>au hákristilegu trúarbrögð, sem Allan Kardec
útlistaði í hinu fræga ritverki sínu Le livre des Espits og út
kom í París 1857- Kardec er svo virtur í Brasilíu, að myndir
af honum Jiafa þrisvar prýtt frímerki ríkisins. Pílagrímsför
Cliicos að gröf hans verður þá skiljanlegri. í sömu ferð heim-
sótti hann einnig stöðvar spiritista í Lissabon, London, New
York, Washington D.C. og Norður-Karólínu. Árið 1971, höfðu
bækur Cliicos verið þýddar á 23 erlend tungumál.
Þegar einhver heldur þvi fram að hann liafi skrifað ósjálf-
rátt skyldu menn því fara sér liægt: í þvi að fordæma slíkt að
lítt atliuguðu máli.
Hér verður að sinni ekki lengra haldið áfram frásögninni af
furðulegum hæfileikum Cliicos Xaviers. En því skal aðeins
bætt við, að liann hefur jafnan verið reiðubúinn að gangast
undir livers konar vísindalegar rannsóknir á hæfileikum sín-
um, en það liefur til lítils leitt. Heimilislæknir Chicos, Dr.
Elias Barbora, hefur gert heilaritaprófanir á honum bæði í
og utan trans. Blaðamaður við tímarit í Brasilíu komst ein-
hvern veginn vfir árangurinn af þessum tilraunum og sýndi
þetta einum fremsta taugasérfræðingi Brasilíu, án þess að
geta þess á liverjum prófanirnar liefði verið gerðar. Niður-
staða sérfræðingsins var sú, að viðkomandi sýndi sterka til-
Imeigingar til flogaveiki.
Chico Xavier hefur aldrei sýnt minnstu tilhneigingar til
þess sjúkdóms.