Fréttablaðið - 22.11.2010, Síða 46
30 22. nóvember 2010 MÁNUDAGUR
Anna Þóra Alfreðsdóttir, fyrir-
sæta hjá Eskimo, leikur í nýju
myndbandi hinnar vinsælu
hljómsveitar Hurts. Anna Þóra
flaug til London á föstudag og
dvaldi í borginni þar til í gær.
Þetta er í annað sinn sem Anna
Þóra leikur í myndbandi Hurts
en hún fór einnig með aðal-
hlutverkið í myndbandi lagsins
Stay ásamt söngvaranum Theo
Hutchcraft. Myndbandið var
tekið upp hér á landi í september
síðastliðnum. Nýja myndbandið
sem Anna Þóra leikur í er aftur á
móti við jólalag sem hljómsveitin
hyggst gefa út á næstunni.
„Hlutirnir gerðust mjög hratt
þegar við tókum upp fyrra
myndbandið. Ég fékk hring-
ingu á fimmtudegi og var beðin
um að koma í prufu og tökurnar
fóru svo fram á laugardegi. Ég
og Theo hittumst kvöldið áður
til þess að kynnast aðeins og
þá fékk ég líka að heyra lagið í
fyrsta sinn,“ segir Anna Þóra.
Hún ber Hutchcraft og Adam
Anderson, hinum meðlimi tví-
eykisins, vel söguna og segir
þá afskaplega viðkunnanlega
og sjarmerandi. „Ég kynntist
þeim mjög vel við tökurnar og
við Theo höfum verið í reglu-
legu sambandi eftir það. Hann
er mjög indæll og bauð til dæmis
mér og vinkonum mínum á Air-
waves-hátíðina, sem mér fannst
mjög fallega gert.“
Hutchcraft þykir afskaplega
myndarlegur piltur og er vin-
sæll hjá ungum stúlkum víða
um heim og því hljóta margar að
öfunda Önnu Þóru af vinskapn-
um við hann. „Ja, ég hef lesið
athugasemdir við myndbandið á
Youtube þar sem stelpur lýsa því
yfir að þær öfundi mig á því að
fá að vera nálægt honum,“ segir
hún hlæjandi.
Anna Þóra stundar nám í tann-
lækningum og hefur engar áhyggj-
ur af því að fara út svona stuttu
fyrir próf. „Þetta var svo skemmti-
legt tilboð og ég hef fulla trú á því
að ég rúlli önninni upp. Ég stend
það vel að vígi,“ segir hún að lokum
glaðlega. sara@frettabladid.is
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
Ég kynntist þeim
mjög vel við tökurnar
og við Theo höfum verið í
reglulegu sambandi eftir það.
ANNA ÞÓRA ALFREÐSDÓTTIR
FYRIRSÆTA
„Ég elska Gossip Girl og hið
endalausa Chuck Bass og Blair
Waldorf drama. Það er eitthvað
við þennan þátt sem er geggjað
og svo er nú fatnaðurinn ekki af
verri endanum.“
Erla Dís Arnardóttir, háskólanemi.
„Þetta boð kom í gegnum sýning-
una mína um Grænland og ég er
bara mjög spenntur,“ segir ljós-
myndarinnar Ragnar Axelsson,
RAX. Hann er á leiðinni á Suður-
skautslandið með mörgum af fær-
ustu vísindamönnum Frakklands
og Michel Rocard, fyrrverandi for-
sætisráðherra Frakklands. Rocard
var einmitt staddur á Íslandi fyrir
skömmu og er mikill áhugamaður
um heimskautasvæðin en því er
spáð að mikilvægar siglingaleiðir
fari að opnast með hlýnun jarðar.
Til stóð að sjálfur Albert Monakó-
prins yrði einnig með í för en af því
verður ekki.
Ragnar segist reyndar ekki hafa
hugmynd um hvert nákvæmlega
ferðinni sé heitið, hann viti bara að
þeir séu að fara á þriðjudaginn og
verði þar sem mikið af mörgæsum
er. „Þetta verður mjög áhu gavert,
núna er náttúrlega farið að vora
þarna og því hlýrra en venjulega.
Mér hefur ekki gefist tími til að
skoða ferðatilhögunina nákvæm-
lega en mér skilst að við heimsækj-
um verulega flotta staði.“
Myndir Ragnars hafa vakið
mikla athygli og nýútkomin bók
hans, Veiðimenn norðursins, hefur
fengið frábæra dóma en hún sýnir
einstakt líf veiðimanna á Græn-
landi. Ragnar segir hins vegar, í
meira gríni en alvöru, að kannski
hefði verið sniðugra hjá sér að
velja eitthvað örlítið hlýrra við-
fangsefni. „Mér hefði þá verið
boðið á hlýrri staði.“ - fgg
RAX í Fransferð á Suðurskautslandið
Á SUÐURSKAUTIÐ Ragnar
Axelsson ljósmyndari er
á leiðinni á Suðurskauts-
landið með hópi franskra
vísindamanna og Michel
Rocard, fyrrverandi for-
sætisráðherra Frakklands.
„Ég er svo mikill „wannabe“ hippi og hef alltaf
verið mjög heilluð af þessu tímabili í samtímasög-
unni,“ segir Bryndís Jóna Magnúsdóttir, sem gefur
út bókina Stelpurokk fyrir jólin.
Stelpurokk er fimmta bók Bryndísar Jónu, en áður
hefur hún gefið út bækurnar „Er ég bara flatbrjósta
nunna?“, „Kossar, knús og málið er dautt!“, „Beygluð
og brotin hjörtu“ og „Senjorítur með sand í brók“.
„Stelpurokk gerist í Keflavík árið 1968 þegar tón-
list ómaði úr plötuspilurum, útvörpum og bílskúrum
úr öðru hverju húsi og unglingar gengu í mussum
og útvíðum buxum. Hún fjallar um hina fimmtán
ára gömlu Sunnu, kjaftfora og kúl tískudrós, sem á
sér þann draum heitastan að slá í gegn með fyrstu
stelpna hljómsveitinni á Íslandi,“ segir Bryndís.
Bókina vann hún á frekar óhefðbundin hátt og
það tók hana tvö ár að púsla sögunni saman. „Ég fór
á námskeið hjá Þorvaldi Þorsteinssyni í skapandi
skrifum, þar sem hann hvatti okkur eindregið til að
handskrifa allt og vinna það svo seinna í tölvu. Ég
ákvað að prófa það, skrifaði söguna í stílabækur og
púslaði svo öllu saman í tíu ára gömlu fartölvunni
minni,“ segir Bryndís, sem kennir við Heiðarskóla í
Keflavík.
Bryndís bjó erlendis í tæp tíu ár en flutti nýverið
heim þegar eiginmaður hennar, Jóhann Birnir
Guðmundsson knattspyrnumaður, gerði samning
við Keflvíkinga. „Við bjuggum í Englandi, Noregi og
Svíþjóð en fluttum heim þegar Keflvíkingar náðu að
krækja í Jóhann og nú höfum við búið hér í tvö ár.
Og það hefur einmitt tekið mig þessi tvö ár að vinna
bókina,“ segir Bryndís. - ka
Heilluð af hippatímabilinu
FIMMTA UNGLINGABÓKIN Bryndís Jóna hefur skrifað fimm
unglingabækur en þá fimmtu, Stelpurokk, handskrifaði
Bryndís í stílabækur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LEIKUR Í MYNDBANDI HURTS Anna Þóra Alfreðsdóttir fyrirsæta leikur í nýju myndbandi
hljómsveitarinnar Hurts. Þetta verður þá í annað sinn sem hún kemur fram í myndbandi
sveitarinnar; áður lék hún í myndbandinu við lagið Stay. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ANNA ÞÓRA ALFREÐSDÓTTIR: LEIKUR Í ÖÐRU MYNDBANDI MEÐ HURTS
Öfunduð af því að vera
nálægt söngvara Hurts
Heillandi
ævisaga Þóru
Pétursdóttur
eftir Sigrúnu
Pálsdóttur
sagnfræðing
„… mjög áhrifamikil og læsileg …
saga sem höfðar til stórs lesendahóps.“
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR / KILJAN
KARL BLÖNDAL / MORGUNBLAÐIÐ
Innsýn í
einstaka sögu
r vindheldsem e
og hrindir frá sér
vatni. Litir: Fjólublá
svört. Dömustærði