Kylfingur - 01.05.2001, Side 3

Kylfingur - 01.05.2001, Side 3
Hert eftirlit Golfklúbbur Reykjavíkur hefur ákveðið að Ieggja töluvert í aukið eftirlit á völlum klúbbsins í sumar. Gert er ráð fyrir að vösk sveit eftirlitsmanna verði starfandi á báðum völlum GR og fylgist með að kylfingar fari eftir þeim reglum sem gilda um umgengni á golfvöllum og leikhraða. Fyrir þessu liggja ýmsar ástæður og skal nefna nokkrar hér: 1. Almenn umgengni um vellina hefur verið slæm undanfarin ár og fer versnandi. Þar er helst um að ræða að kylfmgar laga ekki boltaför á flötum, setja torfusnepla ekki aftur í farið sitt, slá æfingahögg á teigum, ganga ekki frá glompum eftir sig osfrv. GR-fél- agar eiga að taka virkan þátt í að koma umgengni um golfvöllinn í gott lag enda öllum í hag. 2. Leiktöf og slór er eitt stærsta vanda- mál í golfheiminum og á það ekkert síður við um velli GR en aðra velli. í fjölmennum klúbbi eins og GR er algjört grundvallaratriði að leikhraði sé í lagi. Alltof algengt er að leikmenn séu með slór úti á velli, séu tregir við það að hleypa framúr og leiti of lengi að bolta sem er týndur. Kylfingar ættu því að kynna sér vel þær reglur sem gilda um leikhraða og fara eftir þeim. 3. Að geta skráð rástíma er nauðsynlegt í stórum klúbbi eins og GR. Það er því mjög dapurt til þess að vita að algengt er að kylfingar skrái í fullan rástíma en mæta síðan tveir eða þiír og boða ekki forföll fyrir þá sem ekki mæta. Sem dæmi skal nefna að síðas- ta sumar gerðist það ítrekað að féla- gar ætluðu að skrá sig í rástíma á háannatíma en allir tímar voru full- bókaðir. Þegar litið var út á völl á þeim tíma sem allt reyndist fullt vom tveggja og þriggja manna hópar úti um allan völl. Þetta er ekkert nema dónaskapur og á þessu verður tekið af fullri hörku í sumar. Allir félagar GR eiga að kynna sér þær reglur sem gilda um ofangreind atriði og fara eftir þeim. Að hafa ekki kynnt sér þes- sar reglur er ekki gild afsökun. Klúbburinn mun á næstunni kynna félögum viðurlög við brotum á reglum um umgengni, leikhraða, skráningu í rástíma osfrv. Ekki verður heimilt að veita undanþágur frá þessum reglum. Hvernig á Korpan að snúa? Hvort eiga fyrstu níu holurnar á Korp- unni að vera á neðri hluta vallarins, þ.e. meðfram sjónum, eða á efri hluta vall- arins? Þetta er auðvitað það sama og að spyrja hvort betra sé að hafa 18. holuna heim við hús eða í 500 metra fjarlægð þar sem hún sést ekki frá hús- inu. Sjálfsagt finnst flesfyrm skemmti- legra að Ijúka leik upp við hús og reyndar er hugmyndin sú að leika Korpuna þannig í mótum, a.m.k. þeim stærri, að leik Ijúki á flötinni fyrir fram- an veitingaaðstöðuna. Það er hins vegar vandamál að leika völlinn þannig venjulega. Til þess að nýta völlinn sem best, vegna hins mikla álags sem er, þarf ræsir helst að geta fylgst með umferðinni á 8. og 9. braut. Sé 9. brautin auð er unnt að hleypa fólki út á 10. teig án þess að það trufli leik. Sama gildir þegar leiknar eru 9 holur. Þetta er auðvelt að gera á efri hluta vallarins. Með þessu er hins vegar erfitt að fylgjast á neðri hluta vall- arins. Þess vegna eru fyrri 9 holurnar hafðar á efri hluta vallarins við venju- legan leik. Studninj Landsbankinn og Landsbréf undirrituðu nú í apnl nýjan samstarfssamning við GR. Samningurinn er framhalds- samningur á samningi sem gerður var í fyrra til eins árs. í þessum samningi felst mikill stuðningur við starf Golf- klúbbs Reykjavíkur, m.a. við unglingastarf, uppbyggingu litla vallarins á Korpu, móta- hald og rekstur golfbfla. Auk þess munu viðskiptavinir Landsbankans og Landsbréfa njóta hags af samningnum. I 3ÍJJ 'i’-’ r *i 1 Kristján Guðmundsson, markaðsstjóri Landsbankans, hafði þetta að segja: „Landsbankinn og Landsbréf hafa um árabil verið samstarfs- aðilar Golfklúbbs Reykjavíkur. Mikil gróska hefur verið í ís- lensku golfi á undanfömum árum og það er ekki síst að þakka miklu og uppbyggjandi starfi innan GR. Það hefur verið ánægju- legt að fylgjast með þeirri uppbyggingu og að geta lagt klúbbn- um lið í því starfi. Samstarfið hefur grundvallast á gagnkvæmu trausti og sameiginlegum skilningi á því hvað skiptir máli fyrir báða aðila.“ KYLFINGUR 3

x

Kylfingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.